155. löggjafarþing — 13. fundur,  9. okt. 2024.

Sundabraut.

61. mál
[17:17]
Horfa

Flm. (Bryndís Haraldsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna og ég gleðst auðvitað yfir því að hann sé mér sammála um mikilvægi Sundabrautar. Ég ætla líka að fagna því sérstaklega að fá Flokk fólksins í lið með okkur Sjálfstæðismönnum að tala fyrir mikilvægi einkaframtaksins í þessum málum og að það sé einmitt nauðsynlegt að taka veggjöld fyrir þegar farið er í það. Þannig að ég er ánægð að heyra það sem ég taldi nú kannski vera einhvern viðsnúning, en gott að heyra að við erum sammála um það mikilvæga mál að byggja hér upp samgönguinnviði og að til þess þurfi veggjöld.

Það er gaman að geta rætt um mikilvægi Sundabrautar og leyft þingmönnum Norðvestur- og Norðausturkjördæmi að koma að alls konar svona óskalistum um framkvæmdir í þeirra kjördæmum líka. Það er kannski rétt að benda aðeins á, ja, kannski svona smá mistök í röksemdafærslunni því að hv. þingmaður færði rök fyrir því áðan að þjóðvegurinn ætti fyrst og fremst að snúast um að tengja helstu þéttbýliskjarna. Mosfellsbær er einn af helstu þéttbýliskjörnum á landinu og með Sundabraut erum við einmitt að tala um að fólk frá Norðvesturkjördæmi geti komist hraðar og öruggar til Reykjavíkur.

En ég er algerlega sannfærð um mikilvægi Sundabrautar, eins og ég fór yfir í ræðunni áðan, bæði fyrir landsbyggðina en líka að einhverju leyti fyrir höfuðborgarsvæðið út frá m.a. flóttaleiðum. Auðvitað er það þjóðhagslega hagkvæmt upp á að minnka akstur og mengun og annað. En Sundabraut leysir auðvitað ekki umferðarvanda höfuðborgarsvæðisins og þegar verið er að ræða hér um mikilvæga brú sem er hluti af höfuðborgarsáttmálanum er varðar það að tengja Kársnesið við Reykjavík og stærstu atvinnusvæðin þar, háskólana og Landspítalann, þá mun Sundabraut ekki gera neitt til að leysa þann vanda sem þar er. Þannig að ég segi: Við þurfum bæði. Við þurfum að sjálfsögðu að uppfylla þær framkvæmdir sem ritaðar eru inni í samgöngusáttmálanum um höfuðborgarsvæðið. En það er líka mikilvægt að byggja hér upp Sundabraut þannig að ég fagna þeim stuðningi sem kemur hér frá hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni um það efni.