Sundabraut.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Ég er algerlega sammála hv. þingmanni um að bættar samgöngur á höfuðborgarsvæðinu eru gríðarlega mikilvægar. Það þarf ekki annað en að fara að keyra hérna á háannatímanum eitthvað austur fyrir Hringbraut — ég er reyndar heppinn að búa mjög nálægt Hringbraut, á Snorrabraut reyndar — til að sjá hvernig ástandið er. Það er algert ófremdarástand í umferðarmálum borgarinnar. En ég hefði talið það vera eðlilegt að Sundabraut væri inni í höfuðborgarsáttmálanum til að knýja á um þá framkvæmd.
Og varðandi önnur atriði varðandi samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu þá tel ég ekki hafa verið farið nógu róttækar aðgerðir á höfuðborgarsvæðinu. Ég tel að Fossvogsbrú hefði verið óþörf. Það átti að fara í Skerjafjarðarbrú eða göng undir Skerjafjörðinn. Af hverju? Vegna þess að þarf að taka botnlangaáhrifin af því að vera á Reykjavíkurskaganum og hafa hringtengingu þar. Það er það sem þarf að gera. Ég get tekið dæmi. Ég var í Þórshöfn í lok ágúst. Þar er hringur, þar eru hringvegir, ég held að það séu tveir hringvegir í Þórshöfn. Í Ósló í Noregi eru tveir hringir í kringum Ósló. Á Íslandi, í Reykjavík, er enginn hringakstur í kringum höfuðborgarsvæðið, ekki einn einasti, þetta er bara botnlangi fram og til baka, út á Seltjarnarnes og til baka og svo geturðu farið Kringlumýrarbrautina suður í Hafnarfjörð eða áfram upp í Mosfellsbæ. Að sjálfsögðu þarf að vera miklu meiri hringakstur og myndi Skerjafjarðarbrúin leysa þann vanda. En það virðist einhvern veginn ekki vera þannig að menn geti hugsað út fyrir rammann eða út fyrir þessa umferðargrind sem er komin núna. Þeir vilja bara fá einbreiða brú fyrir strætó, Fossvogsbrú, sem á að vera svo falleg að hún á að vera úr ryðfríu stáli. (Gripið fram í.)
Það breytir því ekki að ég er mjög ánægður með að við séum öll sammála um Sundabraut eða Sundabrú, ég tel að það verði brú. Ég tel að við getum haft brúna þannig að hún yrði algjör prýði fyrir höfuðborgarsvæðið eins og Hallgrímskirkja og fleiri mannvirki sem eru helstu einkenni höfuðborgarinnar. (Forseti hringir.) Ég efast ekki um að það verði og notkunin yrði miklu meiri með brú heldur en göngum. En þetta er umræða sem á eftir að taka (Forseti hringir.) 15 mánuðum áður en framkvæmd á að hefjast.
(Forseti (ÁsF): Ég minni hv. þingmenn á að ræðutíminn er tvær mínútur.)