155. löggjafarþing — 13. fundur,  9. okt. 2024.

Sundabraut.

61. mál
[17:29]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég held að ef Sundabraut kæmi og svo tvöföldun Hvalfjarðarganga — og það var gott að heyra hann koma með þetta innlegg um það að brattinn í núverandi göngum, og þá væntanlega norðanmegin í Hvalfjarðargöngum, væri of mikill. Ég vil segja að ég hef verið sektaður fyrir að láta bílinn renna þarna niður. Ég fór upp í 82 km á klukkustund, gleymdi mér.

Ég held að við áttum okkur ekki á því hvers konar bylting Sundabraut yrði og líka tvöföldun Hvalfjarðarganga. Þetta myndi opna ný byggingarsvæði á Kjalarnesi og uppi í Hvalfirði og myndi líka leiða til þess að við gætum horft til þess af alvöru að það mætti flytja hafnarsvæði höfuðborgarinnar, aðalflutningahöfn landsins, upp í Hvalfjörð. Það yrði gríðarlegur fengur að fá þar flott hafnarsvæði, gámahöfn sem gæti þá tekið við af Sundabraut framtíðarinnar. Það eru gríðarleg tækifæri þar, mikið land þar undir sem mætti nýta undir höfn, vöruflutningahöfn. Hvalfjörður er náttúrlega gríðarlega þekkt hafnarsvæði úr stríðinu. Svo má líka hugsa um flugvöll á Mýrunum. Þetta yrði alger bylting fyrir Akranes og Vesturland og svo svæðin áfram. Tengingarnar frá höfuðborginni og norður úr myndu verða alger bylting og við sjáum ekki enn þá fyrir hver áhrifin yrðu.

Varðandi öryggi í jarðgöngum þá vil ég minna á það að í göngunum fyrir vestan, undir Breiðadalsheiði, varð slys. Það kviknaði í rútu þar rétt fyrir utan og þar eru öll öryggismál í algjörum lamasessi. Við eigum að taka það slys, þegar kviknaði í þessari rútu, sem viðvörun inn í framtíðina. Það verður að taka þessi mál föstum tökum strax og þau kosta ekki mikinn pening. Við verðum að taka höndum saman og knýja ríkisstjórnina til að hefja framkvæmdir sem allra fyrst. Ég óttast að það verði þrasað um hvort þetta verði jarðgöng eða brú og það verði mótstaða í Grafarvoginum og í Vogahverfi gegn þessu og farið verði að kæra þetta út í hið óendanlega. (Forseti hringir.) En það er hægt að gera í skipulagslögum og lögum um mat á umhverfisáhrifum.