155. löggjafarþing — 13. fundur,  9. okt. 2024.

Sundabraut.

61. mál
[17:34]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Ég vil bara ítreka þá skoðun mína að ég tel að fyrst og fremst eigi að fjármagna samgöngumannvirki á fjárlögum, með skattfé borgaranna. Nógar er nú álögurnar á bifreiðaeigendur. En við eigum líka að horfa til einkaframkvæmdar. Af hverju? Vegna þess stórkostlega árangurs sem við höfum vegna Hvalfjarðarganga. Við getum haldið því til haga að það mun geta leitt til þess að við flýtum framkvæmdum. Það er vel til þess vinnandi að flýta mikilvægum framkvæmdum eins og Hvalfjarðargöngum og Sundabraut sem hér er til umræðu.

Vissulega eru komnir aðrir öryggisþættir varðandi Hvalfjarðargöngin en þá er það bara að breyta hönnuninni þannig að hún standist nútímaöryggiskröfur. Ég tel að atvikið sem átti sér stað á Vestfjörðum sé ákveðin viðvörunarbjalla. Það er oft þannig í sögunni að það gerist lítill atburður á undan sem viðvörun og ef menn taka ekki mark á því og bregðast við þá getur stóra slysið gerst síðar. Það getur kviknað í fólksflutningabifreið inni í jarðgöngum og þá er stóri skaðinn skeður. Ég tel að öryggi í jarðgöngum sé mál sem þarf að taka föstum tökum. Við vorum í umræðum á Ísafirði varðandi öryggi í jarðgöngum fyrir vestan og þar virðist víða vera pottur brotinn — t.d. varðandi ljósin sem eru meðfram vegunum í Hvalfjarðargöngum, það er búið að kaupa þannig ljós fyrir göngin fyrir vestan, á Ísafirði, en þau eru bara í gám. Það er ekki búið að setja þau upp. Það kostar fjármuni að setja þau upp í göngunum.

Ég tel að til að þetta sé fín umræða og ég skynja það að allir þingmenn sem ég hef talað við um þessi mál séu sammála um að fara að gera stórátak. Landsbyggðin getur ekki beðið lengur. Norðvesturkjördæmi getur ekki beðið lengur eftir því að sé farið í þessar mikilvægu vegaframkvæmdir til að stytta leiðina til höfuðborgarsvæðisins. (Forseti hringir.) Það sama á við Norðurland og íbúa Norðausturkjördæmis.