trúarbragðafræði sem valgrein í framhaldsskólum.
Forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um trúarbragðafræði sem valgrein í framhaldsskólum. Flutningsmenn eru hv. þingmenn Birgir Þórarinsson, Ásmundur Friðriksson, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Bryndís Haraldsdóttir, Diljá Mist Einarsdóttir, Óli Björn Kárason og Vilhjálmur Árnason.
Tillagan hljóðar svo:
„Alþingi ályktar að fela barna- og menntamálaráðherra að tryggja að í framhaldsskólum landsins verði boðið upp á kennslu í trúarbragðafræði sem valgrein.“
Í greinargerð segir að íslenskt samfélag var lengst af tiltölulega einsleitt og kristin trúararfleifð mótandi afl í menningu og samfélagi. Á síðustu árum hefur myndin hins vegar breyst og nú einkennist samfélagið æ meir af trúarlegum margbreytileika, bæði innan hinnar kristnu trúarhefðar og ekki síst vegna vaxandi áhrifa annarra trúarbragða og lífsskoðana. Þessi breytta staða kallar á vandaða trúarbragðafræðslu á öllum skólastigum. Hér á landi hefur trúarbragðafræðsla einkum átt sér stað í grunnskólum og gert er ráð fyrir henni innan samfélagsgreina í aðalnámskrá grunnskóla, og er þar undir greinasviði frá 2013, bls. 194–207, fyrir þá sem vilja kynna sér það. Það vekur aftur á móti athygli að meðan trúarbragðafræðsla er hluti af menntun ungmenna á framhaldsskólastigi í nágrannalöndunum hafa nemendur í framhaldskólum hér á landi ekki átt kost á námsáföngum á þessu sviði svo neinu nemi. Í ljósi vaxandi margbreytileika er þörf á að bæta þar úr.
Í nágrannalöndunum hefur á undanförnum árum og áratugum átt sér stað mikil umræða um stöðu og hlutverk trúarbragðafræðslu í fjölmenningarlegum samfélögum nútímans. Benda má á að Evrópuráðið hefur sent frá sér skýrslur og greinargerðir sem árétta mikilvægi trúarbragðafræðslu sem þátt í almennri menntun á tímum vaxandi menningarlegs og trúarlegs margbreytileika. Rauður þráður í þessum skýrslum er mikilvægi þess að vinna gegn fordómum, staðalímyndum og misskilningi á trúarbrögðum, og auka víðsýni og umburðarlyndi með því að efla þekkingu og skilning á ólíkum trúarbrögðum og lífsviðhorfum, bæði eigin og annarra.
Í þessu sambandi hefur verið gerð skýrsla sem á ensku heitir Toledo Guiding Principles on Teaching About Religions and Beliefs in Public Schools, með leyfi forseta, sem hefur að geyma ítarlegar leiðbeiningar um kennslu um trúarbrögð og lífsviðhorf í opinberum skólum. Þessi skýrsla er frá 2007 og er að mörgu leyti mjög áhugaverð. Meginniðurstöður skýrslunnar fela í sér ríka áherslu á gildi þekkingar á trúarbrögðum. Í henni er því haldið fram að sú þekking geti stuðlað að viðurkenningu á mikilvægi þess að virða rétt allra til að ástunda trúarbrögð sín eða lífsviðhorf, enda er trúfrelsi algild mannréttindi, enn fremur að góð þekking á trúarbrögðum og lífsviðhorfum geti aukið skilning á félagslegum margbreytileika, eflt félagslega samloðun og dregið úr ágreiningi og átökum sem stafa af skorti á skilningi á trú annarra. Jafnframt stuðli hún að betri skilningi á sögu, bókmenntum og listum, og efli menningarlega víðsýni.
Herra forseti. Flutningsmenn telja að á þessum grundvelli sé mikilvægt að í framhaldsskólum bjóðist tækifæri til menntunar á sviði trúarbragðafræði þar sem nemendur njóta faglegrar og vandaðrar kennslu og eigi kost á málefnalegri samræðu um helstu trúarbrögð og lífsviðhorf. Það stuðli að víðsýni og umburðarlyndi og virðingu fyrir trú og lífsviðhorfum og réttindum annarra.
Ég árétta það bara, herra forseti, að hér er gert ráð fyrir að trúarbragðafræði verði valgrein í framhaldsskólum og að barna- og menntamálaráðherra tryggi að það verði boðið upp á kennslu í þessari grein í framhaldsskólum, þá sem valgrein, eins og ég nefndi áðan.
Að þessu sögðu, herra forseti, þá vísa ég þessari tillögu til hv. allsherjar- og menntamálanefndar.