afskipti ráðherra af störfum lögreglu.
Herra forseti. Ég ætla að vísa hér í blaðaskrif sem við sáum í gær eftir þetta furðulega og stórundarlega mál sem átti sér stað þar sem ráðherra hlutast til í rauninni um störf lögreglu í miðri lögregluaðgerð. Með leyfi forseta, þá stendur hér:
„Embættið getur upplýst um að ríkislögreglustjóri fékk símtal kl. 06:04 frá félags- og vinnumarkaðsráðherra þar sem ráðherrann lýsti yfir áhyggjum sínum af framkvæmd fylgdar sem fyrirhuguð var sama dag.“
Það segir í svari ríkislögreglustjóra kl. 07:09 að dómsmálaráðherra hafi hringt til baka í ríkislögreglustjóra eftir að hafa misst af símtölum frá honum. Símtölum, það vakti víst athygli að þetta var í fleirtölu. Dómsmálaráðherra upplýsir síðan ríkislögreglustjóra símleiðis um þá ákvörðun að fresta beri brottflutningi til að ræða málið í ríkisstjórn og þá er klukkan 07:29. Ríkislögreglustjóri telur sig þurfa að hafa þessa ákvörðun skriflega og sendi dómsmálaráðherra eftirfarandi textaskilaboð klukkan 07:38:
„Sæl. Í kjölfar samtals okkar rétt í þessu stöðva ég flutning að beiðni forsætisráðherra. Vinsamlegast staðfestu móttöku.“
Dómsmálaráðherra sendi sitt svar kl. 07:46:
„Frá Bjarna: Ákvörðun um brottvísun stendur eðli málsins samkvæmt. Óska eftir að framkvæmd brottvísunar verði frestað í þeim tilgangi að tækifæri gefist til að eiga samráð innan stjórnarinnar.“
Ég spyr hæstv. forsætisráðherra: Hvaða hringavitleysa hefur átt sér stað, að félags- og vinnumarkaðsráðherra í ríkisstjórn hæstv. forsætisráðherra hlutist til um það og sé í sambandi við lögreglustjóra fram hjá dómsmálaráðherra? Hvers lags eiginlega hringavitleysa er að verða hér í öllum þessum kúltúr sem lýtur að þessu kerfi sem við eigum að búa við? Það er gengið um þetta á skítugum skónum. (Forseti hringir.) Hæstv. forsætisráðherra sagði sjálfur: Þessi ákvörðun mun standa. En nú er þetta góða fólk komið með alþjóðlega vernd hér og ég spyr: (Forseti hringir.) Er allt innantómt blaður sem kemur hér frá hæstv. ráðamönnum þjóðarinnar?