afskipti ráðherra af störfum lögreglu.
Forseti. Já, ég get upplýst um það að þegar við erum að fylgja eftir framkvæmd á hælisleitendakerfinu okkar þá hafa af og til komið upp tilvik sem hafa orðið ríkisstjórninni tilefni til þess að ræða málin. Í þeim tilvikum þegar í hlut eiga einstaklingar sem eru í viðkvæmri stöðu þá hefur það gerst oftar en einu sinni að mál ber á góma í ríkisstjórn. Þá er því velt upp hvort tryggt sé að við Íslendingar höfum gætt að öllum þeim atriðum varðandi framkvæmd slíkra brottvísana sem mikilvægt er þegar fólk í slíkri stöðu á í hlut. Þetta hefur gerst og ég get alveg upplýst að í tilviki því sem vísað er til hér þá hafði málið á fyrri stigum borið á góma í ríkisstjórn og þá undir þeim formerkjum að það sé gríðarlega mikilvægt að við séum að gæta að öllum réttindum um leið og við erum að tryggja framgang laganna. Hafandi sagt þetta þá hef ég ávallt fylgt þeirri meginlínu að við hlutumst ekki til um niðurstöðu í einstökum málum þannig að það var algerlega skýrt í þessu máli. Það er ekki verið að hlutast til um niðurstöðuna. Það kom hins vegar fram mjög skýr ósk um að gengið yrði úr skugga um það áður en til framkvæmdar brottvísunarinnar kæmi að gætt hefði verið að öllum réttindum og einhverjar efasemdir voru uppi um að það hefði verið svo. Ég hef ekki séð neina meinbugi á þessari framkvæmd enn þá eftir að málið hafði verið tekið til sérstakrar skoðunar og þannig liggur í þessu máli. En á þessu ári höfum við brottvísað um 1.000 manns og vel rúmlega það og ég verð að segja að það er nokkur framför (Forseti hringir.) að við séum ekki sífellt að ræða um brottvísanir heldur verður það að teljast talsverð framför (Forseti hringir.) ef eitt mál af rúmlega 1.000 verður tilefni til opinberrar umfjöllunar.