155. löggjafarþing — 14. fundur,  10. okt. 2024.

afskipti ráðherra af störfum lögreglu.

[10:39]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir akkúrat ekki neitt svar. Ég var ekki að tala um viðkvæma stöðu lítils drengs. Ég er ekki að tala um mannúð sem við getum beitt í þeim tilvikum þegar svo ber undir. Ég er ekki að tala um það, ég er að tala um verkferla sem fóru hér af stað og ríkisstjórn sem hefði verið í lófa lagið að vera búin að taka þetta mál til sinna kasta löngu, löngu fyrr. Hér er hins vegar verið að hlutast til um og gengið beint inn í aðgerðir sem voru í framkvæmd og var vitað að voru í framkvæmd eftir að niðurstaða hafði fengist á tveimur sjálfstæðum stjórnsýslustigum. Ég spyr hæstv. ráðherra: Finnst honum þetta verjandi? Er það verjandi að félagsmálaráðherra hlutist til og hringi bara beint í lögreglustjórann? Er það ekki hæstv. dómsmálaráðherra að gera slíkt? Fattaði sem sagt hæstv. forsætisráðherra það eftir að hlutirnir voru komnir á hans borð, eftir að hann sagði að hann myndi ekki hlutast til um þegar ákveðnar niðurstöður Útlendingastofnunar og kærunefndar? Hvenær áttaði hæstv. forsætisráðherra sig á því að hann var í rauninni að skipta um skoðun? (Forseti hringir.) Honum finnst ekkert athugavert við þetta verklag, ekki neitt, (Forseti hringir.) það er það sem ég fæ úr þessu engu svari sem ég fékk hér áðan.