afskipti ráðherra af störfum lögreglu.
Virðulegi forseti. Ég get tekið undir með hv. þingmanni að það er í hæsta máta mjög óeðlilegt að um miðja nótt sé hringt í ríkislögreglustjóra út af framkvæmd á niðurstöðu stjórnkerfisins okkar og viðkomandi ráðherra hlýtur sjálfur að veita svör í þinginu vegna þess. Hvað varðar reglurnar sem við höfum sett um þessi efni er alveg ljóst að félagsmálaráðherra hefur ekkert boðvald yfir ríkislögreglustjóra en hann hefur hins vegar með málefni fatlaðra að gera og það eru skjólstæðingar hjá ráðherra sem hann vill ganga úr skugga um að njóti þess réttar sem lög og reglur kveða á um. Það var sjónarhornið sem viðkomandi ráðherra hafði á lofti í þessu tiltekna máli og óskað eftir því að málið yrði skoðað ofan í kjölinn með hliðsjón af þeim réttindum og reglum sem viðkomandi einstaklingur ætti að njóta. Það er bara mikið áhorfsmál og mikið matsatriði hvort það sé á þeim tímapunkti sem við vorum stödd þarna þennan morguninn eðlilegt að óska eftir því að málið sé tekið til skoðunar. En það varð niðurstaðan.