forgangsmál stjórnvalda og kosningar.
Virðulegi forseti. Fyrir síðustu kosningar skrifaði hæstv. forsætisráðherra grein þar sem fram kom, með leyfi forseta:
„Það skiptir öllu hvort eftir kosningar taki við sundurlaus samtíningur margra flokka eða öflug ríkisstjórn sem getur tekist á við stór verkefni og hefur burði til að leysa áskoranir til framtíðar.”
Í sömu grein sagði ráðherrann að verði Sjálfstæðisflokkurinn ekki við völd muni verðbólgan fara úr öllu valdi og afborganir á húsnæðislánum stóraukast. Eflaust hefur kjósendur Sjálfstæðisflokksins ekki grunað að ráðherrann færi með öfugmæli og að við tæki sundurlaus samtíningur margra flokka, Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og VG, þar sem verðbólga færi upp úr öllu valdi og húsnæðislánin líka.
Til hvers að kjósa í vor? Að þessu spurði hæstv. forsætisráðherra um daginn þegar vantraustsyfirlýsing VG í garð stjórnarsamstarfsins var borin undir hann. Þá sagði hæstv. forsætisráðherra, með leyfi forseta:
„Ég er með frekar einfalda sýn á þetta. Hún er sú að við höfum skyldu til þess að vinna að framgangi okkar mála, sem stjórnin hefur komið sér saman um. […] Hitt er miklu meiri spurning, hvort að ríkisstjórn hefur burði til þess að klára verkefnin sín og vinna í þágu þjóðarinnar.“
Nefndi ráðherrann í því samhengi að framgangur í efnahagsmálum, útlendingamálum og orkumálum ætti að ráða úrslitum um það hvenær kosið er.
Forseti. Þjóðin setur hvorki útlendinga né orkumál í forgang. Það er skýrt í öllum könnunum þar sem kjósendur eru beðnir um að forgangsraða málaflokkum. Þeir treysta augljóslega ekki ríkisstjórninni til að takast á við verðbólguna sem þessi ríkisstjórn hefur leyft að grassera í að verða heilt kjörtímabil. VG hefur sagt: Hingað og ekki lengra, þegar kemur að útlendingamálum og varaformaður flokksins og hæstv. utanríkisráðherra lýstu því yfir að ríkisstjórnin komist ekkert áfram í orkumálum vegna samstarfsflokkanna. Ég spyr því eins og hæstv. forsætisráðherra: Hvers vegna að kjósa í vor? Hvers vegna ekki að kjósa núna strax?