155. löggjafarþing — 14. fundur,  10. okt. 2024.

forgangsmál stjórnvalda og kosningar.

[10:44]
Horfa

forsætisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Forseti. Sundurlaus samtíningur fólks er nú það fyrsta sem mér dettur í hug þegar ég hugsa um Pírata. En þessi ríkisstjórn hefur auðvitað fengið gríðarlega stór verkefni til að fást við og fyrir síðustu kosningar voru þau verkefni ekki öll fyrirséð, alls ekki öll fyrirséð. Henni hefur hins vegar tekist mjög vel að takast á við miklar efnahagssveiflur og það er hárrétt hjá hv. þingmanni að verðbólga hefur hér á landi verið allt of há en það er að breytast. Síðast í morgun sáum við frá greiningardeild Landsbankans spá um að strax í janúar verði verðbólgan komin undir 5% og haldi áfram að lækka á þessu ári og vextir geti haldið áfram að lækka. Það gerist ekki nema vegna þess að það hefur verið brugðist við, sem ríkisstjórnin hefur gert. Við höfum skilað stórbættri afkomu og raunvaxtastig Seðlabankans er að vinna niður vandann. Það sem er merkilegt við þetta tímabil er að Ísland sker sig úr í hópi þjóða þegar horft er á það hvernig stjórninni hefur tekist að verja heimilin við þessar sömu aðstæður, vegna þess að hér á landi hefur kaupmáttur heimilanna, að teknu tilliti til vaxtanna, vaxið 11 ár í röð. Hér hefur líka verið meiri hagvöxtur og fleiri störf orðið til, þess vegna hafa margir flutt til landsins, þannig að ríkisstjórninni hefur sannarlega tekist vel að takast á við risavaxin verkefni. En það getur alveg gerst að tímarnir breytist og á kjörtímabilinu koma upp nýjar áskoranir og ég stend við það sem ég segi að það er grundvallaratriði fyrir okkur Íslendinga að hafa stjórn á landamærunum, að í útlendingamálum þurfi að auka skilvirkni stjórnkerfisins, að við þurfum áfram að ná niður vöxtunum og ég hafna þeirri fullyrðingu hv. þingmanns að Íslendingar skilji ekki mikilvægi þess að sækja frekari græna orku (Forseti hringir.) til þess að stækka vinnumarkaðinn, auka framleiðnina (Forseti hringir.) og látum ekki hjá liggja að nefna orkuskipti.