forgangsmál stjórnvalda og kosningar.
Virðulegur forseti. Ég var einfaldlega að benda hæstv. ráðherra á að þjóðin setur aðra hluti en rifrildi um útlendingamál og hræðsluáróður um orkuskort í forgang. Það er bara mjög skýrt af öllum könnunum sem hafa verið gerðar um það. En þetta var mjög áhugavert svar frá hæstv. forsætisráðherra, hann byrjar á: Spegill, þið eruð asnaleg. Ókei, allt í lagi, „fine“, segi ég bara. En svo fer hann í að já, það eru ytri aðstæður, það er allt einhverjum öðrum að kenna heldur en okkur hversu illa gengur og í janúar þegar ég er búinn að fara með nýársávarpið mitt þá verður allt betra. Við skulum bíða þangað til þá með að fara í kosningar. Þetta er svona u.þ.b. svarið sem við fengum frá hæstv. forsætisráðherra. Á meðan leikur allt ljósum logum í þessari ríkisstjórn. Hver þingmaðurinn á fætur öðrum úr röðum Sjálfstæðisflokksins lýsir vantrausti á ríkisstjórnina. Landsfundur VG lýsir vantrausti á ríkisstjórnina. Framsókn er greinilega komin með upp í kok á að sitja þarna mitt á milli gaggandi hæna sem hætta ekki að rífast. (Forseti hringir.) Er þetta ekki komið gott, virðulegi forseti? Ég veit að þjóðin er a.m.k. orðin mjög leið á þessu.