155. löggjafarþing — 14. fundur,  10. okt. 2024.

afstaða gagnvart EES-samningnum.

[10:51]
Horfa

forsætisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Já, ég tek undir það sem hv. þingmaður segir um mikilvægi EES-samningsins og þeirra framfara sem hafa orðið á Íslandi á gildistíma EES-svæðisins. Þessi saga hefur nú nýlega verið skrifuð í skýrslu sem ríkisstjórnin átti frumkvæði að láta taka saman og ég held að það sé óhætt að segja að meginniðurstaða þeirrar skýrslu er gildi EES-samningsins og mikilvægi hans fyrir þróun samfélagsins okkar. Ég stend mjög eindregið með EES-samningnum og hefur reyndar ítrekað skrifað stjórnarsáttmála sem gera EES-samninginn að grundvallaratriði í okkar utanríkis- og viðskiptastefnu. En ég veit að hv. þingmaður vill ganga lengra og ganga í Evrópusambandið og taka upp evru. En ég kannast ekki við að Sjálfstæðisflokkurinn sé að tala sig frá EES-samningnum. Umræðan hefur verið lifandi hér í þinginu. Það er gert lítið úr því að ég leggi fyrir þingið skýrslu um þetta efni sem varðar bókun 35 og mér finnst það furðulegt. Mér finnst furðulegt að menn geri lítið úr því að álitaefni séu tekin saman. Nú erum við með sem sagt kvörtun frá ESA og við þurfum að bregðast við en menn gera lítið úr því að gögn séu tekin saman, álitamálin reifuð, lögfræðiálit tekin saman og lögð í hendur þingsins og sagt: Eigum við ekki aðeins að ræða þetta og kalla fram sjónarmið um það hvernig best verði úr leyst? Hér kallast á sjónarmið um það hvort ESA hafi í raun og veru alveg rétt fyrir sér í málinu eða hvort í raun og veru hægt sé að búa við lögin eins og þau standa í dag. Um það snýst þessi togstreita um þetta mál. En þingið hafði ekki burði til að svara. Utanríkismálanefnd gat ekki svarað. Hún gat ekki klárað málið og sagt við utanríkisráðherrann: Við leggjum til, í ljósi alls þess sem við höfum skoðað (Forseti hringir.) og í ljósi þeirra funda sem hér hafa farið fram, að málið verði fellt í þennan og þennan farveg. (Forseti hringir.) Það er ekki lítillækkandi fyrir ráðherrann sem lagði málið í hendur þingsins. Það segir allt of mikla sögu um stöðu Alþingis.