afstaða gagnvart EES-samningnum.
Virðulegi forseti. Það var svolítið skondið að heyra þetta því að Viðreisn m.a. margítrekaði það að klára málið en meiri hlutinn hafði bara ekki vald á málinu. Þetta er gott dæmi um enn eitt málið sem stjórnin hefur ekki tök á, ekki völd á, hefur ekki afl til þess að keyra í gegnum þingið. Við erum margoft búin að ítreka okkar stuðning við það að klára málið. En gott og vel, ég undirstrika hann aftur. Það sem skiptir máli er að spyrja: Hefur hæstv. forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins ekki stjórn á sínu eigin fólki eða erum við bara að blaðra eitthvað út í buskann, bara í einhverri samkeppni við t.d. aðra flokka á hægri vængnum eins og Miðflokkinn? Hvers konar skilaboð eru þetta sem forsætisráðherra setur hérna fram?
Ég óska eftir því að hæstv. forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins — ég hef áhyggjur af því hvert Sjálfstæðisflokkurinn er að fara þegar kemur að alþjóðasamstarfi og hæstv. forsætisráðherra verður einfaldlega að standa í lappirnar gegn þessum röddum og (Forseti hringir.) segja með afgerandi hætti að við ætlum að standa með EES-samningnum og við ætlum að gera það sem þarf, m.a. að staðfesta bókun 35 (Forseti hringir.) til að tryggja öryggi fólksins, tryggja réttindi fólksins hér heima við. Þetta snýst um réttindi okkar Íslendinga en ekki um tilvist Sjálfstæðisflokksins.