155. löggjafarþing — 14. fundur,  10. okt. 2024.

afskipti ráðherra af brottvísun og birting gagna.

[11:02]
Horfa

forsætisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Á endanum er það dómsmálaráðherra sem tekur ákvörðunina og ég kann ekki að segja frá því nákvæmlega hvers vegna þetta er orðað svona í samskiptunum. Ég hef hins vegar engar athugasemdir við það. Það er alveg hárrétt að í samskiptum mínum við dómsmálaráðherra vildi ég að það væri 100% skýrt að við værum ekki að hafa afskipti af niðurstöðu í máli. Ákvörðun um brottvísun stendur. Það var meginatriðið í þessum skilaboðum. En það var hins vegar fram komin ósk og við héldum síðan fund, ja, við getum sagt að það hafi farið fram fundur tíu klukkustundum síðar í Stjórnarráðinu, óformlegur fundur þar sem var hægt að fara yfir ýmsar hliðar og undirbúa það síðan að málið kæmi til frekari umræðu í ríkisstjórn á þriðjudeginum.

Það sem er undir hér eru mál sem hafa margoft komið upp í umræðu um hælisleitendamál og brottvísanir, sem er það hvort taka þurfi sérstakt tillit til fólks í viðkvæmri stöðu. Það kemur aftur upp í þessu máli og spurningin er: (Forseti hringir.) Er mjög langt seilst með því að óska eftir því að málið komi til umræðu næsta dag eða í ríkisstjórn á þriðjudegi? Er það mjög langt seilst? (Forseti hringir.) Það verður hver og einn að meta. En ég ætla að lýsa yfir ánægju með að það séu þó ekki fleiri umdeild mál í umræðunni miðað við (Forseti hringir.) þann mikla árangur sem við erum í heild sinni að ná við að framkvæma brottvísanir.