155. löggjafarþing — 14. fundur,  10. okt. 2024.

virðisaukaskattur.

50. mál
[11:28]
Horfa

Flm. (Berglind Ósk Guðmundsdóttir) (S) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Það er gott að við séum sammála um þetta mál. Eins og ég sagði undir lok ræðu minnar þá er þetta bara hófleg hækkun og má alveg færa rök fyrir því að þetta verði kannski ekki nóg eftir þrjú til fimm ár. Ég náði svo sem ekki að reikna fyrir flutningsræðuna hver vænt hækkun yrði; þau rök sem hafa staðið fyrir því að hækka þessi mörk hingað til hafa einmitt verið að þau lækka að raunvirði. Ég tek bara undir það með hv. þingmanni að mér þætti fara vel á því ef þetta væri hluti af bandormi með fjárlögum, en það eru alltaf gerðar breytingar á virðisaukaskattslögum á hverju ári; að þetta mætti líka vera þar inni eða einhver önnur útfærsla. En ég legg þessa breytingu til að sinni. Ef nefndin kafar dýpra ofan í þetta mál og kemst að því að það væri skynsamlegra að vísitölutengja þessa upphæð þá er það bara eitthvað sem hægt er að skoða og væri kannski skynsamlegt. Ég ætla alla vega ekki að vera á móti þeirri hugmynd.