155. löggjafarþing — 14. fundur,  10. okt. 2024.

virðisaukaskattur.

50. mál
[11:31]
Horfa

Flm. (Berglind Ósk Guðmundsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni kærlega fyrir síðara andsvarið. Ég er ekki hagfræðingur. Ég myndi einmitt hafa áhyggjur af því að það að tengja allt við vísitölu myndi valda ruðningsáhrifum og snjóboltaáhrifum á kerfin okkar og þar af leiðandi á vísitöluna og verðbólguna. Ég skal því ekki segja hvort það sé endilega skynsamlegt að fara alltaf þá leið, en við mættum vissulega vera kvikari á fæti hér og vera tilbúin að bregðast við mun hraðar en við gerum. Við sjáum það t.d. af þessu litla góða máli mínu hér að þessi veltumörk hafa ekki hækkað síðan 2017. Það finnst mér bagalegt og það finnst aðilum úti um landið bagalegt og eins með aðrar upphæðir sem hv. þingmaður nefndi, vissulega. Þetta er eitthvað sem við munum kannski ekki ná að útkljá hér í dag í þessum þingsal við þessa umræðu. En það verður auðvitað bara að skoða það í framhaldinu og mér finnst mikilvægt að við eigum þessa umræðu reglulega um þessar fjárhæðir sem við erum að festa í krónutölum í lögum, hvort tilefni sé til þess í einhverjum tilfellum að tempra það að vera með þessar krónutöluhækkanir í hvert skipti sem við förum í gegnum fjárlög. En ég nefni þetta með þeim fyrirvara að ég er ekki hagfræðingur og átta mig ekki alveg á því hvaða ruðningsáhrif það gæti síðan haft á fjárhag ríkissjóð. Með þeim fyrirvara er ég alltaf opin fyrir samtali.