almannatryggingar.
Frú forseti. Enn og aftur kem ég hér upp til þess að mæla fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, afnám skerðinga ellilífeyris vegna atvinnutekna. Með mér á þessu frumvarpi er gjörvallur þingflokkur Flokks fólksins.
1. gr. frumvarpsins orðast svo:
„Eftirfarandi breytingar verða á 22. gr. laganna:
a. Við 2. mgr. bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Atvinnutekjur.
b. 2. málsl. 3. mgr. fellur brott.“
Og 2. gr. er svohljóðandi: „Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2025.“
Í greinargerð með frumvarpinu segir, með leyfi forseta:
„Flokkur fólksins hefur ítrekað lagt til að skerðingar vegna atvinnutekna ellilífeyrisþega verði afnumdar. Málið var áður flutt á 148., 149., 151., 152., 153. og 154. löggjafarþingi (93. mál) …“.
Ég er sem sagt að mæla fyrir þessu frumvarpi í sjöunda sinn. Í sjöunda sinn kem ég hér upp til að mæla fyrir augljósu réttlætismáli sem enginn ætti að velkjast í vafa um að er ekkert annað en sjálfsagt. Tvær umsagnir bárust um frumvarpið á 154. löggjafarþingi. Í umsögn Landssamtaka lífeyrissjóða var lögð áhersla á þörfina til að meta samspil greiðslna almannatrygginga við greiðslur frá lífeyrissjóðum. Í umsögn Félags eldri borgara í Reykjavík var lýst yfir eindregnum stuðningi við frumvarpið.
Í 2. málsl. 3. mgr. 22. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um að ellilífeyrisþegar skuli hafa 2.400.000 kr. í sérstakt frítekjumark vegna atvinnutekna. Þetta sérstaka frítekjumark kemur til viðbótar við hið almenna frítekjumark laganna sem nemur 300.000 kr. á ári. Þar er ég að tala um hið almenna frítekjumark, þessar 25.000 kr. sem eru teknar fram hjá skerðingunum þegar einstaklingur nýtir sér töku úr lífeyrissjóði. Það eru eingöngu 25.000 kr. frá lífeyrissjóðnum sem ekki hafa gengið beint inn í skerðingarkerfið. Ef ellilífeyrisþegi hefur launatekjur yfir 2.400.000 kr. á ári skerðist ellilífeyrir hans um 45% af því sem er umfram það. Það er þá í raun kominn hátekjuskattur á einstaklinginn þegar hann er kominn í 2,4 milljónir á ári, hvorki meira né minna, 200.000 kr. á mánuði, takk, pent. Lengi vel stóð þetta frítekjumark í 1.200.000 kr.; það voru þá 100.000 kr. á mánuði sem einstaklingurinn mátti hafa í tekjur án þess að vera skertur. Þetta er samt ofboðslega falskt allt saman vegna þess að þá var einstaklingurinn sviptur hinum sérstöku greiðslum sem komu til framkvæmda þegar einstaklingurinn var mjög tekjulágur, hann var sviptur hinni sérstöku framfærsluuppbót. Um leið og fólk fór að vinna, þó svo að það væri að vinna innan þeirra viðmiða sem gefin voru með löggjöfinni, var það samt svipt hinni sérstöku framfærsluuppbót. Ef fólk ætlaði að vera með 100.000 kr. á mánuði, eins og það var, þá týndi það sérstöku framfærsluuppbótinni og fékk nánast ekki neitt. En nú var þetta sem sagt hækkað upp í 200.000 kr. á mánuði, 2,4 millj. kr. á ári. Við viljum afnema allar þessar skerðingar. Skerðingar á atvinnutekjum ellilífeyrisþega hafa sætt mikilli gagnrýni undanfarinn áratug. Frítekjumarkið þótti of lágt, skerðingarhlutfallið of hátt. Eldra fólk benti ítrekað á að þetta hefði þær afleiðingar að vinna hefði lítil sem engin áhrif á ráðstöfunartekjur þegar launatekjur eru skattlagðar og leiða einnig til skerðinga á ellilífeyri. Þá situr fólk nánast eftir með ekki neitt eins og ég var að benda á áðan.
Dr. Haukur Arnþórsson vann greinargerð um fjárhagslega stöðu aldraðra fyrir Félag eldri borgara í Reykjavík. Hann ritaði líka grein um rannsókn sína í Morgunblaðinu þann 23. nóvember fyrir sjö árum. Þar kemur fram að afnám skerðinga á lífeyrisgreiðslur vegna atvinnutekna þurfi ekki að fela í sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð og það sé vel hugsanlegt að ríkissjóður gæti meira að segja haft fjárhagslegan ávinning af aðgerðinni. Í kjölfar þinglokasamninga sumarið 2019 samþykkti Alþingi að láta framkvæma úttekt á því hver kostnaður yrði ef frumvarp Flokks fólksins, um afnám skerðinga ellilífeyris vegna atvinnutekna, næði fram að ganga. Félagsmálaráðuneytið fékk Capacent til að framkvæma úttektina. Capacent skilaði síðan úttektinni snemma árs 2020. Samkvæmt þeirri niðurstöðu myndi afnám skerðinga ellilífeyris vegna atvinnutekna leiða til ríflega 2 milljarða kr. aukins kostnaðar fyrir ríkissjóð. Það vekur spurningar þegar tvær úttektir um sama viðfangsefnið skila misvísandi niðurstöðum. Þingmenn Flokks fólksins hafa ítrekað kallað eftir því að fá aðgang að þeim forsendum sem voru lagðar til grundvallar þessari niðurstöðu hjá Capacent en ráðuneytið hefur enn ekki veitt aðgang að þeim þrátt fyrir að þáverandi félagsmálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, hæstv. mennta- og barnamálaráðherra, hafi ítrekað sagt í samtali við mig: Þetta er allt að koma. Við vitum að það er kjörorð Framsóknar núna: Þetta er allt að koma. Það hefur nú tekið tímann sinn og enn er það ekki komið. En um áramótin 2021–2022 voru gerðar breytingar á lögum um almannatryggingar og það var þá sem frítekjumark ellilífeyris var hækkað, úr þessum 1.200.000 kr. á ári í 2,4 milljónir.
Þessum breytingum ber að fagna en betur má ef duga skal. Fullt tilefni er til að stíga næsta skref og afnema þessar skerðingar með öllu. Óumdeilt er að áframhaldandi vinna eftir að ellilífeyrisaldri er náð eykur möguleika aldraðra til að bæta kjör sín, einkum þeirra sem lægstar hafa tekjurnar. Þá hafa rannsóknir sýnt fram á að vinna og virkni á efri árum stuðlar að betri heilsu, dregur úr einangrun og hefur almennt mikið félagslegt gildi fyrir eldri borgara. Núgildandi lagarammi dregur verulega úr atvinnuþátttöku eldra fólks. Fyrsta skrefið í rétta átt hefur verið stigið með tvöföldun frítekjumarksins en næsta skref þarf að stíga til fulls. Því er lagt til að skerðingar ellilífeyris vegna atvinnutekna verði afnumdar. Við skulum átta okkur á því að það eru ekki margir fullorðnir sem eru komnir á lífeyristökualdur sem kæra sig um að vinna, ætla í rauninni að eyða efri árunum sínum með fjölskyldu og vinum eða bara að gera eitthvað allt annað. Þeir þurfa kannski ekki einu sinni á því að halda að reyna að bæta kjör sín því að til landsins er það nú svo að stór hluti af eldra fólkinu okkar hefur það gott. Hér erum við í raun að tala um að þeir sem vilja og geta fái að vinna án þess að vera refsað fyrir það. Við skulum átta okkur á því að einstaklingurinn greiðir tekjuskatt. Við skulum átta okkur á því að við erum að aðstoða hann við að rífa sig út úr fátækt. Við erum líka að koma í veg fyrir þetta viðvarandi skattundanskot sem er þegar fólk er að vinna svokallaða svarta vinnu. Ég hef heyrt í eldra fólki, nokkrum sem hafa bara sagt: Ég er ekki tilbúinn að hætta að vinna núna. Ég vil fá að halda áfram. Mér líður líkamlega vel, er andlega hress og ég vil fá að vinna, en mér er refsað þannig að núna er ég sem sagt að vinna í svartri vinnu. Hugsið ykkur. Svona er Ísland í dag. Þetta er land tækifæranna. Í stað þess að efla og styrkja þessa einstaklinga, efla til dáða og gefa þeim betra líf á efri árum, þá er þeim refsað fyrir að vinna áfram. Þeim er refsað fyrir að reyna að bjarga sér. Við vorum líka með útreikninga um að þetta myndi skila hreinum arði til ríkissjóðs upp á ríflega 3 milljarða kr. Enda getur hér ekki verið um kostnað að ræða því að það er engin breyting hjá ríkissjóði sem slíkum þegar einstaklingurinn fær að vinna. Hann bara skerðir hann ekki í staðinn, hann er bara ekki að mergsjúga hann. Hann er bara ekki að eyðileggja fyrir honum tækifærið. Það er því löngu orðið tímabært að við áttum okkur á því að allt þetta skerðingarhagkerfi sem hér er rekið er í rauninni algjört mannvonskukerfi og við í Flokki fólksins höfum aldrei orðið leið á að minna á það.
Ég nefndi hér áðan þetta almenna frítekjumark, greiðslur úr lífeyrissjóði, sem einnig skerða og skerða en á nú að hækka, ef ég skil það rétt, um nokkrar krónur. Eldri borgarar hafa ekki farið fram á meira en að reyna að hækka það í 100.000 kr., að frítekjumark vegna hins almenna kerfis verði bara 100.000 kr. í staðinn fyrir 25.000 kr. þannig að fólk verði ekki skert eftir 25.000 kr. strax um 45% og þaðan af verra heldur fái að hafa 100.000 kr. áður en það skerðir greiðslurnar frá Tryggingastofnun. Nei, það er of mikið. Hins vegar voru þeir núna að koma með það að þeir ætla að hækka þetta, ég man ekki hvaða krónutölur það voru, en ég veit að hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson er nú örugglega með þessar tölur á hreinu; það voru ekki margar krónur sem áttu að skila sér í launaumslag eldra fólks.
En hér er enn eitt frumvarp, ég mæli fyrir því í sjöunda sinn, Flokks fólksins til að bæta hag og koma til móts við fólkið í landinu. Við viljum gefa því kost á að lifa hér í okkar góða landi með reisn án þess að vera ítrekað refsað fyrir það að hafa vilja, getu og þrá til að reyna að bjarga sér sjálft og vilja hreinlega ekki láta þvinga sig út af vinnumarkaði inn í einmanaleika efri áranna. Efri árin eiga að vera gæðaár. Þau eiga ekki að vera ár skorts, kvíða og vanlíðunar. Við í Flokki fólksins munum aldrei gefast upp á því að berjast fyrir réttlætinu. Það eru algerlega hreinar línur að ef við í Flokki fólksins værum að stýra þessari þjóðarskútu væri enginn af þeim sem verst standa í samfélaginu að bíða eftir réttlætinu. Við í Flokki fólksins myndum færa því það réttlæti og munum gera það strax eftir næstu kosningar.