155. löggjafarþing — 14. fundur,  10. okt. 2024.

almannatryggingar.

70. mál
[11:46]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Við erum að fjalla um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, afnám skerðinga ellilífeyris vegna atvinnutekna. Ég verð bara að segja eins og er að ég er með bullandi ofnæmi og sennilega fyrir ríkisstjórninni; og sennilega er ríkisstjórnin með ofnæmi fyrir sjálfri sér, en það er annað mál. Þetta frumvarp er með ólíkindum. Hverjum hefur dottið þetta í hug? Ég held að það væri hægt að hengja verðlaunagrip um hálsinn á viðkomandi fyrir að stefna að heimsmeti í heimsku, þegar einhverjum dettur í hug að setja hindranir á það að fólk vinni. Það á ekki að hindra fólk í að vinna. Vinnandi fólk borgar skatta og fær tekjur sem það getur síðan eytt til samfélagsins.

Það er fáránlegt að setja upp hindranir gegn því að fólk geti unnið, og við erum ekki að tala um neinar smáhindranir heldur svakalegar hindranir. En það er annað verra í þessu og það er það sem er falið. Það er þessi ótrúlegi feluleikur í þessu grimma bútasaumaða kerfi sem almannatryggingakerfið er og hvernig það hefur farið og fer með eldri borgara og öryrkja, þ.e. þessar gildrur sem fólk er alltaf að detta í. Nú erum við að flytja mál um afnám skerðinga vegna tekna ellilífeyris en það sem er merkilegast við þetta frumvarp er að það dugir ekki öllum sem eru á ellilífeyri. Fólk sem er að fá greiðslur úr lífeyrissjóði verður að hugsa sig um tvisvar áður en það fer yfir í þetta falska 200.000 kr. frítekjumark sem ríkisstjórnin er að hæla sér af. Þetta dugir ekki fyrir þennan hóp. Það er ekki að skila þessum hópi neinu, það er bara að skila ríkissjóði tekjum.

Við getum bara horft á það sem dæmi að ef viðkomandi einstaklingur er með 200.000 kr. úr lífeyrissjóði og vinnur sér inn 200.000 kr. úti á vinnumarkaðnum, hverju skilar það viðkomandi í tekjum, í hreinum tekjum? Jú, 70.000 kr. Og við getum tekið annað dæmi sem er enn meira sláandi. Við getum tekið einstakling sem er með 100.000 kr. í lífeyrissjóð og ætlar síðan að fá 200.000 kr. í tekjur, það er að skila honum einhverjum 13.000 kr. Það er innbyggt í þetta kerfi að níðast á þeim sem eru með lífeyristekjur og það hentar ríkisstjórninni, fjórflokknum. Hann hefur leikið þennan ljóta leik áratugum saman, nært þetta kerfi, bútasaumað það í þeim tilgangi einum að fela þá staðreynd að ár hvert aukast skerðingar í kerfinu umtalsvert.

Við erum með kerfi sem er að nálgast það að vera 110 milljarða skerðingar. Þetta eru svo ótrúlegar tölur sem ríkissjóður er að spara sér á þessu skerðingarkerfi gagnvart almannatryggingum, eldri borgurum og öryrkjum. Svo koma þeir fram og hæla sér af því að þetta sé svo rosalega flott kerfi, að þeir séu búnir að auka frítekjumarkið úr 100.000 kr. í 200.000 kr. En þeir passa sig að auka bara atvinnutekjur en auka ekki frítekjumarkið, sem er 25.000 kr. á öllum tekjum og er þá líka notað á lífeyrissjóðstekjurnar — þeir passa sig á að auka það ekki. Jú, þeir ætla nú að auka það aðeins, vera voðalega rausnarlegir þegar fer að líða að kosningum og auka það um heilar 11.500 kr. Þvílík ofrausn sem skilar bara ekki neinu; ég efast um að það dugi fyrir hálfu kindalæri á mánuði, það sem það skilar, þannig að það er bara plat. Og líka þessi frítekjumörk, 200.000 kr., það eina sem það skilar, og við skulum ekkert taka það af þeim, er til þeirra sem eru ekki með lífeyrissjóð, eru með engar aðrar tekjur, það er eini hópurinn sem getur virkilega nýtt sér frítekjumark. En þá verður sá hópur líka að passa sig svakalega á því að fara ekki yfir frítekjumarkið vegna þess að þá er fólki refsað grimmilega. Þetta er refsikerfi. Það er ákveðin gulrót og síðan taka refsingarnar við og þær geta verið keðjuverkandi. Svo verður fólk líka að átta sig á því, fólk sem er í þessu kerfi, að þessar skerðingar, þó að það fái tekjur á einum stað og eiga að kallast frítekjur, geta skert langt yfir í félagsbótakerfið.

Ef viðkomandi er á leigumarkaði í félagslega bótakerfinu og er með sérstakar húsaleigubætur — bomm, þangað fer hann strax. Svona eru gildrurnar sem eru faldar í þessu kerfi út um allt. Ef einhver heldur að þetta sé einhver tilviljun þá getur hann gleymt því; þetta er útspekúlerað kerfi til að klekkja á þeim sem eru að reyna að tóra í þessu ömurlega almannatryggingakerfi, þessu bútasaumaða kerfi, þar sem keðjuverkandi skerðingar eru út um allt. Margar þeirra eru vel faldar þannig að fólk áttar sig ekki á þeim. Þess vegna erum við með þá stórfurðulegu stöðu að 1. júní ár hvert koma bakreikningarnir. Ég hef hitt fólk sem er í öngum sínum. Það hefur farið til Tryggingastofnunar og spurt: Má ég vinna? Svarið er alveg á stundinni: Já, já, þú mátt vinna fyrir 200.000 kr. Tryggingastofnun spyr ekki á móti: Sestu hérna niður. Á hvaða bótum ertu? Hvað ertu að fá? Þeir hefðu átt að spyrja viðkomandi út í þær greiðslur sem hann fengi og hefðu átt að segja við hann: Nei, góði besti, farðu ekki að vinna. Þú færð ekkert út úr því, ekkert nema skerðingar. Þetta gera þeir ekki. Viðkomandi fer að vinna. Síðan vinnur hann út árið. Niðurstaðan, eins og hann sýndi mér: Allt tekið, hann missir allar bætur árið á eftir. Er hægt að finna upp ömurlegra kerfi? Er hægt að koma á ömurlegri hátt fram við veikt eða aldrað fólk?

Þess vegna segi ég í eitt skipti fyrir öll: Ekki leyfa fjórflokknum að halda áfram að næra þennan ömurlega bútasaumaða óskapnað sem þeir hafa búið til. Við verðum að breyta til. Við verðum að losna við þessa ríkisstjórn. Við verðum að finna þá ríkisstjórn sem sér að ekki er lengur hægt að koma svona fram við þá sem eru veikir og slasaðir og hvað þá eldri borgara sem hafa byggt upp okkar land, byggt það upp í því formi sem það er. En einhverra hluta vegna hefur misvitrum stjórnmálamönnum, í Framsóknarflokknum, Sjálfstæðisflokknum, Vinstri grænum og Samfylkingunni, tekist í gegnum áratugina að hafa þetta kerfi svona. Við vitum hvernig kjaragliðnunin hefur verið í gegnum árin, áratugina. Við vitum að það vantar inn í þetta kerfi, ekki 100.000 kr., ekki 200.000 kr., örugglega nær 300.000 kr. Við vitum það líka að ef farið hefði verið eftir því sem segir í stjórnarskránni, að allir séu jafnir fyrir lögum, og ef farið hefði verið eftir launaþróun og eins og lofað var 2017, með bréfi til eldri borgara, að það ætti svo sannarlega að fara að taka á þessu kerfi — það hefur ekkert verið gert.

Ég lofa því að við í Flokki fólksins munum standa við og gera það sem við höfum verið að lofa; við höfum reynt að mæla fyrir því hér og í öllum okkar frumvörpum. En hafið varann á gagnvart þeim sem ætla að lofa að draga úr skerðingum. Við þekkjum það. Króna á móti krónu, úr 100% í 65%; það var að draga úr skerðingum sem skilar engu. Nú er talað um að það eigi að taka á í nýja örorkukerfinu, það er ekki, því miður, það er bara langt í frá. Það eru svo margir lausir endar þar og þar á margt eftir að koma í ljós og er þegar byrjað að koma í ljós, eins og með víxlverkun lífeyrissjóða sem maður hefði haldið að væri búið að taka á fyrir löngu. En því miður. Þeir ætla að taka á því, þeir ætla að ráðast á það, þeir ætla að búa til starfsgetumat og þeir ætla líka að sjá til þess að þeir sem trúa því að allir sem eru í þessu kerfi eigi rétt á 200.000 kr. frítekjumarki eigi það ekki, langt í frá. Það er bara ákveðinn hópur. Ég skora á fólk, áður en það fer af stað, að fara til Tryggingastofnunar og fá þetta á hreint, leggja á borðið hvernig greiðslum þeirra er háttað, eða þá að fara inn á reiknivél hjá Tryggingastofnun ríkisins og setja dæmið upp þar. Þar kemur það strax nokkurn veginn ljós hvað viðkomandi er að fá út úr því að fara að vinna. Ég segi fyrir mitt leyti: Ef fólk er að fara að vinna og vinna fyrir 200.000 kr. og það skilar því einhverjum 20.000 kr. og upp í 70.000 kr. verður viðkomandi að reikna með því að það kostar að fara í vinnu. Það kostar að vera í vinnu. Það kostar að fara fram og til baka og það er fljótt að hverfa. Þess vegna segi ég: Þeir eru með vinnuletjandi kerfi. Þeir eru með kerfi þar sem þeir eru að letja fólk, reyna að fá fólk til að vera heima. Samt eru þeir alltaf tilbúnir, með einhverjum gulrótum, að reyna að fá fólk til að fara af stað. En þeir vita það nákvæmlega að ári seinna hirða þeir það í flestum tilfellum að stórum hluta, ef ekki bara allt, til baka.