155. löggjafarþing — 14. fundur,  10. okt. 2024.

meðferð einkamála.

72. mál
[13:32]
Horfa

Flm. (Þórhildur Sunna Ævarsdóttir) (P):

Frú forseti. Þetta mál er mikilvægt tjáningarfrelsismál. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um meðferð einkamála er varðar málskot í meiðyrðamálum. Það sem við leggjum til með þessu máli er einföld en mikilvæg breyting til að standa betur vörð um tjáningarfrelsi á Íslandi en líka til þess að standa betur vörð um jafnræði fyrir dómstólum landsins. Eins og staðan er í dag, ef einstaklingur er ákærður fyrir meiri meiðyrði þá fer það í gegnum ákveðinn einkarefsiramma. Það þarf að höfða mál og slíkt mál fer eftir lögum um meðferð einkamála. Og ef þú lendir í því að fá á þig kæru fyrir meiðyrði og tapar málinu þá er minna líklegt að þú fáir leyfi til að áfrýja málinu heldur en manneskja sem kærir fyrir meiðyrði og tapar málinu.

Hvernig má þetta vera? Jú, það er þannig að ef Óli kærir Siggu fyrir meiðyrði þá krefst hann kannski 1,5 millj. kr. í skaðabætur. Ef Óli, sem kærði Siggu, tapar málinu og dómstólar komast að þeirri niðurstöðu að Sigga hafi fullan rétt á því að senda þessi ummæli frá sér, að segja það sem hún sagði, og það sé verndað af tjáningarfrelsinu þá fær Óli leyfi til þess að áfrýja málinu vegna þess að það var ein og hálf milljón sem var lagt til að yrði krafa um skaðabætur. Það er þannig að til þess að komast í æðra dómstig með niðurstöðu máls þá þarf fjárkrafan á bak við það að vera hærri en milljón. Ókei, þannig að ef þú krefur Siggu um eina og hálfa milljón þá uppfyllirðu þetta skilyrði til að fá að áfrýja ef þú tapar málinu. Segjum hins vegar að Sigga tapi málinu. Þá er mjög ólíklegt að dómurinn dæmi eina og hálfa milljón í skaðabætur, það er reyndar líklegra að dómurinn dæmi eitthvað eins og 100.000 eða 300.000 kr. í skaðabætur, eitthvað slíkt, langt undir þessari milljón sem þarf til þess að máli verði áfrýjað. Þá er miklu erfiðara fyrir Siggu sem tapar málinu að áfrýja heldur en fyrir Óla ef hann hefði tapað málinu. Það er ekki jafnræði hér á milli málsaðila.

Það sem við erum að leggja til með þessu frumvarpi er að breyta þessu þannig að þessar upphæðir eigi ekki við þegar kemur að meiðyrðamálum og þegar kemur að því að fólk óski eftir því að ákveðin ummæli verði dæmd ómerk, sem er venjulega líka hluti af meiðyrðamálum. Við leggjum þetta til til að standa betur vörð um tjáningarfrelsið og til að standa betur vörð um jafnræði aðila fyrir dómstólum landsins. Það er nefnilega þannig í dag að dómstólar rökstyðja mjög sjaldan þá niðurstöðu sína hvort einhver fái áfrýjunarleyfi eða ekki. Það er sem sagt hægt að sækja um undanþágu frá því að þú megir ekki áfrýja ef upphæðin er undir milljón en það er erfitt að átta sig á því hvað þarf til til þess að fá það leyfi. Við erum með þessu að segja að þegar kemur að tjáningarfrelsinu, þegar kemur að kærum fyrir meiðyrði, þá eigi þessi peningafjárhæð ekki að skipta máli. Það á að skipta máli að það sé jafnræði milli aðila og tryggja það að ef þú ert dæmdur fyrir meiðyrði þá eigir þú að geta áfrýjað málinu til jafns við þann sem kærði þig fyrir meiðyrði ef hann skyldi hafa tapað málinu. Það er ákveðið ójafnræði á milli þeirra sem kæra tjáningu og þeirra sem sæta kæru fyrir tjáningu og með þessu máli viljum við laga þennan ójöfnuð. Við viljum standa betur vörð um tjáningarfrelsi.

Við höfum séð það undanfarið að tjáningarfrelsi á undir högg að sækja á Íslandi sem og annars staðar. Þetta mál er lítið skref í þá átt. Þetta er lítið framlag. En þetta er mikilvægt framlag vegna þess að dómstólar landsins hafa það helsta hlutverk gagnvart tjáningarfrelsinu að vernda það og framkvæmdin eins og hún er núna, löggjöfin eins og hún er núna, tryggir ekki jafnræði á milli þeirra sem tjá sig og sæta fyrir það kæru og þeirra sem ákveða að kæra fólk fyrir tjáningu. Auðvitað skiptir máli að hafa rétt til þess að geta varið sig fyrir ærumeiðingum en það er mikilvægt að það sé jafnræði þarna á milli.

Við erum með annað mál langt komið og stutt í að það verði lagt fram sem snýr að öðrum þætti í réttarkerfinu og varðar rökstuðning við ákvörðun um málskostnað hjá dómstólum, sérstaklega þegar kemur að tjáningarfrelsinu, en við erum reyndar að leggja til að það eigi við um öll mál. Þegar dómstólar ákveða hver eigi að greiða málskostnað þá rökstyðja þeir sjaldan þá ákvörðun sína. Samt er það svo að við eigum rétt á að fá rökstuðning frá dómstólum. Það er auðvitað bagalegt eins og tíðkast hér á landi að dómstólar rökstyðja heldur ekki ákvarðanir sínar varðandi áfrýjunarleyfi. Það er a.m.k. ekki birt þannig að það er erfitt að átta sig á því hvenær þessar ákvarðanir eru teknar en dómstólar rökstyðja mjög sjaldan, svo gott sem aldrei, ákvörðun um hver eigi að greiða málskostnað, og það getur skipt gríðarlega miklu máli í meiðyrðamáli.

Tökum aftur Óla og Siggu, Óla sem kærði Siggu fyrir eitthvað sem Sigga sagði sem Óli lítur á sem ærumeiðandi. Ef Sigga vinnur málið er allt eins líklegt að dómstóll ákveði að hún þurfi samt sem áður að bera sinn eigin málskostnað þrátt fyrir að dómstóll hafi komist að þeirri niðurstöðu að hún hafi haft fullan rétt á því að segja það sem hún var að segja. Þessi framkvæmd dómstóla er sjaldan rökstudd enda er það almenn regla að ef þú tapar máli í öllum meginatriðum þá átt þú að greiða málskostnað en það er oft ekki þannig í meiðyrðamálum. Þannig hefur það oft sligað minni fjölmiðla, sjálfstæða fjölmiðla, að fá á sig meiðyrðakæru, vinna málið í héraði, í Landsrétti en sitja samt sem áður uppi með himinháar fjárhæðir í lögfræðikostnað og málskostnað. Þetta finnst okkur óréttlátt. Þetta finnst okkur ekki í samræmi við vernd tjáningarfrelsisins. Þetta setur risastórt strik í reikninginn hjá minni fjölmiðlum, sjálfstæðum blaðamönnum og fólki sem tjáir sig og fær þá tjáningu sína viðurkennda og verndaða af dómstólum landsins, að þurfa samt sem áður að greiða himinháa lögfræðireikninga vegna þess að einhver kærði þau fyrir tjáningu sína.

Kærur sem þessar eru oft þess eðlis að viðkomandi sem kærir veit fyrir fram að ummælin sem voru látin falla séu í samræmi við tjáningarfrelsi einstaklingsins sem lét þau falla en kærir samt sem áður. Hvers vegna ætli það sé? Vegna þess að það læsir fólk inni í löngum og dýrum málaferlum og þau enda á því að sitja uppi með einhvern reikning. Þannig geta fjársterkir aðilar þaggað umræðu, kæft niður umræðu, fælt annað fólk frá því að tjá sig vegna þess að það getur alveg spreðað einhverjum peningum í það að fara í málaferli sem þeir vita fyrir fram að eru töpuð og þurfa ekki einu sinni að borga allan reikninginn þegar þeim er lokið. Þetta finnst okkur óréttlátt ástand. Þetta finnst okkur ekki ásættanlegt ástand og þetta er ekki ástand sem verndar tjáningarfrelsi, virðulegi forseti.

Það er ýmislegt annað sem hallar á tjáningarfrelsi í dag. Nýlegt dæmi er þar sem lögreglan á Norðurlandi eystra hélt blaðamönnum með réttarstöðu sakborninga í yfir þrjú ár og sakaði þau um að hafa brotið gegn ákvæðum sem þetta þing tók mjög skýrt fram að væri ekki ætlað að ná utan um starfsemi blaðamanna; nýlegt dæmi um mjög vonda og kælandi meðferð á fjölmiðlafólki á Íslandi og þar með vonda meðferð á tjáningarfrelsinu á Íslandi.

Það eru hlutir eins og þessir sem ég er að minnast á, litlir hlutir, smáir í sniðum, sem þarf að laga en það eru líka stórir hlutir, stórar áskoranir sem verður að takast á við þegar kemur að tjáningarfrelsinu. Þá er ég að hugsa um þáverandi fjármálaráðherra og núverandi forsætisráðherra sem stígur fram í fjölmiðlum og styður aðgerðir lögreglu gagnvart þessum blaðamönnum sem voru að segja okkur fréttir af því hvernig hópur starfsmanna Samherja skipulagði vinnu sína við það að hafa æruna af fólki og ekki bara hafa æruna af því heldur reyna að koma í veg fyrir að uppljóstrari í Samherjamálinu bæri vitni, sem má leiða líkur að að sé refsivert athæfi, og að hafa bein afskipti af kjöri í lýðræðislegum stjórnum og að njósna um fólk og sitja um það. Þetta var allt uppljóstrað í fréttaflutningi af skæruliðadeild Samherja sem lögreglan á Norðurlandi eystra tók í gíslingu og gerði að stærsta málinu þar sem sendiboðinn hefur verið skotinn í lengri tíma og setti blaðamennina á sakamannabekk og skrifaði svo langa ritgerð um hversu sekir þeir væru en hún gæti bara ekki sannað það þegar hún endaði á því að þurfa að gefast upp í þessum málaferlum sínum.

Þetta var mjög hættulegt fyrir tjáningarfrelsið, virðulegi forseti, og ég held að þetta hafi haft mikinn skaða í för með, sér í lagi hversu meðvirk og jafnvel hvetjandi ríkisstjórnin var gagnvart þessum aðförum og hversu lítið var gert úr okkur sem mæltum eitthvað á móti þessu, þar sem okkur var sagt að við værum ekki lýðræðisleg að hafa afskipti af störfum lögreglu en ég held að það skipti svolitlu máli samhengið sem gagnrýni okkar var sett fram í og það var auðvitað að lögreglan á ekki að gefa blaðamönnum réttarstöðu sakborninga fyrir að vinna vinnuna sína. Við verðum að hafa virka vernd tjáningarfrelsisins, ekki bara í orði heldur líka á borði á Íslandi.

Þær eru fleiri, ógnirnar sem ég gæti farið yfir gagnvart tjáningarfrelsinu á Íslandi. Það er ekki langt síðan það var sett lögbann á Stundina þegar hún fjallaði um fjármál fyrrum forsætisráðherra, sem þá var reyndar forsætisráðherra, hefur síðan orðið fjármálaráðherra og utanríkisráðherra og er núna aftur orðinn forsætisráðherra, Bjarna Benediktssonar, rétt fyrir kosningarnar 2017. Það var lítill vilji fyrir því inni í þessu húsi að taka á því og koma í veg fyrir að það gæti nokkru sinni gerst aftur og dómstólar tóku sér dágóðan tíma í að komast að þeirri niðurstöðu að þetta lögbann hefði verið ólögmætt, ekki í samræmi við vernd tjáningarfrelsisins og gæti hafa haft áhrif á niðurstöður kosninga. En þetta fékk ekki mikil viðbrögð hér inni og það tók langan tíma að koma einhverjum smávægilegum breytingum í gegn sem gera þetta kannski aðeins torsóttara fyrir næsta sýslumann sem vill beita lögbanni á fjölmiðil sem er að flytja fréttir sem eiga erindi við almenning.

Ég fer hér svolítið vítt og breitt yfir völlinn vegna þess að ég held að það sé mjög mikilvægt að við höfum það í huga að lýðræðisleg þjóðfélög þrífast ekki ef vernd tjáningarfrelsisins innan þeirra er ekki rík og sterk, ef þeir sem stjórna, þeir sem fara með völd í landinu okkar, bera ekki tilhlýðilega virðingu fyrir tjáningarfrelsinu, fyrir fjölmiðlafrelsi. Því miður er staðan þannig í dag að þessi ríkisstjórn sem nú situr ber alls ekki nógu mikla virðingu fyrir tjáningarfrelsinu og fjölmiðlafrelsinu og reyndar ekki fyrir akademísku frelsi heldur en það er önnur saga og lengri.

Virðulegi forseti. Málið sem ég mæli fyrir hér í dag er eitt skref í átt að því að standa betur vörð um tjáningarfrelsi. Það miðar að því að jafna stöðu þeirra sem kæra fyrir meiðyrði gagnvart þeim sem sæta kæru fyrir meiðyrði. Eins og staðan er núna er ekki jafn leikur þeirra á milli. Það er talsvert auðsóttara, miklu auðveldara í raun, fyrir fólk sem kærir fyrir meiðyrði að fá niðurstöðum dóms áfrýjað heldur en þá sem lenda í því að vera kærðir fyrir meiðyrði. Ef okkur er alvara um að standa vörð um tjáningarfrelsið hér á Íslandi verðum við að ganga í það verk a.m.k. að jafna þennan aðstöðumun þannig að þeir sem sæta kæru fyrir sína tjáningu hafi möguleika á að bera niðurstöðu dómstólsins undir æðra dómstig tapi þeir málinu.

Virðulegi forseti. Sú sem hér stendur er frummælandi þessa máls en meðmælendur með því eru allir hv. þingmenn Pírata ásamt hv. þingmönnum Jóhanni Páli Jónssyni, Ásthildi Lóu Þórsdóttur, Guðmundi Inga Kristinssyni, Ingu Sæland, Jakobi Frímanni Magnússyni, Sigurjóni Þórðarsyni og Tómasi A. Tómassyni.

Að lokinni þessari umræðu legg ég til að málið fari til hv. allsherjar- og menntamálanefndar og 2. umræðu.