almannatryggingar.
Frú forseti. Hér mæli ég fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, um frítekjumark vegna lífeyristekna. Með mér á þessu frumvarpi er gjörvallur þingflokkur Flokks fólksins.
„1. gr.
Við 3. mgr. 22. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þá skal lífeyrisþegi hafa sérstakt frítekjumark vegna lífeyristekna sem nemur 1.200.000 kr. á ári.
2. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2025.“
Frumvarpið hefur verið lagt fram á 149., 150., 151., 152., 153. og 154. löggjafarþingi (108. mál) en hlaut náttúrlega ekki afgreiðslu og er ég að leggja það fram í sjöunda sinn, en ég var líka í sjöunda sinn að mæla fyrir frumvarpi til laga um að afnema skerðingar vegna launatekna eldra fólks hér fyrr í dag.
Það bárust fjórar umsagnir um frumvarp þetta á 152. löggjafarþingi. Það var frá Öryrkjabandalagi Íslands, Landssamtökunum Þroskahjálp, Landssamtökum lífeyrissjóða og Landssambandi eldri borgara. Þá bárust tvær umsagnir um málið á 153. löggjafarþingi, frá Landssamtökunum Þroskahjálp og Landssamtökum lífeyrissjóða. Umsagnaraðilar studdu allir markmið frumvarpsins. Það styðja sem sagt allir frumvarpið og markmið frumvarpsins nema stjórnarflokkarnir hér, nema þessi ríkisstjórn. Tvær umsagnir bárust einnig um málið á 154. löggjafarþingi, frá Landssamtökum lífeyrissjóða og Öryrkjabandalagi Íslands, sem ítrekuðu fyrri afstöðu sína. Þeim finnst þetta algjörlega sjálfsagt mál.
Almennt frítekjumark er mjög lágt í sögulegu samhengi og er markmið þessa frumvarps að auka sanngirni í almannatryggingakerfinu og hvetja til sparnaðar lífeyrisþega með því að draga úr skerðingum. Með lögum nr. 116/2016, um breytingu á lögum um almannatryggingar og fleiri lögum, var m.a. gerð sú breyting á ellilífeyriskerfi almannatrygginga að öll sértæk frítekjumörk vegna einstakra tegunda tekna voru afnumin. Þess í stað var lögfest eitt almennt frítekjumark sem nemur 300.000 kr. á ári eða 25.000 kr. á mánuði og gildir það um allar tekjur ellilífeyrisþega óháð tegund þeirra. Þá hefur ríkisstjórnin gefið það út að frítekjumarkið verði hækkað, líklega um næstu áramót, um 11.500 kr., þannig að í stað þess að viðmiðið sé núna 25.000 kr. á mánuði í almenna frítekjumarkinu verði það 36.500 kr. Þeir ætla af mikilli ofrausn sinni að hækka þetta um heilar 11.500 kr. á mánuði sem eru rétt ríflega 5.000 kr. í vasann, 5.175 kr. Það er vissulega búbót fyrir eldra fólk en þetta gengur ansi skammt. Þetta er sýndarmennska sem er að koma hér fram rétt í aðdraganda kosninga. Sjáið þið tindinn, þarna klifum við, við erum svo góðir við eldri borgara. Við ætlum algjörlega að moka í þau peningum, alveg 5.000 kr. á mánuði. Það er skömm að þessu.
En með lögum nr. 96/2017 var einnig lögfest sérstakt frítekjumark vegna atvinnutekna, sbr. nú 2. málsl. 3. mgr. 22. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar. Samkvæmt upplýsingum í svari félags- og barnamálaráðherra við fyrirspurn á 149. löggjafarþingi nema heildarskerðingar til ellilífeyrisþega vegna lífeyrissjóðstekna 37,5 milljörðum kr. á hverju einasta ári. Þá erum við bara að tala um vegna lífeyrissjóðs. Þetta var fyrir sex árum síðan. Þessi tala hefur gersamlega stökkbreyst á þessu tímabili og nú er sennilega verið að skera skerða eldri borgara um hátt í 100 milljarða á ári.
Eldri borgarar hafa sjálfir sparað fyrir lífeyrissjóðshlutdeild sinni. Lífeyristekjur eru því ekki launagreiðslur sem koma frá vinnuveitendum að starfsaldri loknum, bara alls ekki. Því felst í skerðingu bótagreiðslna á grundvelli lífeyristekna óbein skerðing á þeim hagsmunum sem eldra fólk hefur unnið sér inn með vinnu sinni í gegnum lífið. Það mun samkvæmt upplýsingum frá félags- og barnamálaráðherra í fyrrnefndu svari aðeins kosta ríkissjóð 16 milljarða kr. í aukin útgjöld árlega ef frítekjumark lífeyristekna verður hækkað upp í 100.000 kr. á mánuði.
Við erum alltaf að tala um skerðingar og aftur skerðingar, þessa tilfærslu í kerfinu sem hefur verið látin viðgangast þar sem alltaf er verið að níðast á einstaklingum. Það er verið að svipta þá eignarrétti sínum, áunnum réttindum sínum. Við eigum lífeyrissjóðina, þetta er hluti af launagreiðslunum okkar. Við greiðum skatta og skyldur af öllu saman, nema náttúrlega í sambandi við lífeyrissjóðina þá var ég að mæla hér fyrir frumvarpi í fyrradag þar sem við viljum láta greiða staðgreiðslu við inngjöf í lífeyrissjóðina en ekki kreista það út úr okkur þegar við þurfum á því að halda að fá útborgað úr þeim.
Það hefur verið kallað eftir þessari hóflegu hækkun frá félagi eldri borgara mjög svo mikið, að hækka hið almenna frítekjumark upp í 100.000 kr. Það mun skipta sköpum fyrir marga. Það er eðlilegasti hlutur í heimi að við fáum að njóta eigin sparnaðar. Það er skref í rétta átt. Þó svo að þetta sé lítið skref, pínupínulítið skref, þá er það a.m.k. sex sinnum öflugra og ríflega það heldur en þessi hungurlús sem núverandi ríkisstjórn er að boða hér um næstu áramót. Þetta er ein Domino's-pítsa, aðeins meira á henni en margarítu, sem verið er að koma til móts við eldra fólk, með þeirri breytingu sem fyrirhuguð er hjá ríkisstjórninni núna um næstu áramót, félagsmálaráðherranum fræga, hæstvirtum. Ég segi einfaldlega: Það er með hreinum ólíkindum að maður skuli standa hér ár eftir ár eftir ár, sjöunda sinn í röð, að mæla fyrir nákvæmlega því sama. Það er ekki eins og við höfum vísitölutengt það. Þessi upphæð ætti að vera miklum mun hærri miðað við þá ágjöf sem samfélagið okkar hefur orðið fyrir á síðastliðnum árum hvað lýtur að efnahagskerfinu okkar, hvað lýtur að stökkbreytingu í neysluvísitölu og öllu öðru viðmiði.
Það er í raun furðulegt hvernig hægt er að líta í spegil og horfast í augu við sjálfan sig vitandi að það er verið að níðast á fólki sem síst skyldi og vitandi það í þessu tilviki að við eigum lífeyrissjóðina. Við eigum þennan lífeyrissjóð. Þegar farið var að greiða í lífeyrissjóðina á sínum tíma, 1969, þegar ákveðið var að koma upp þessu samtryggingarkerfi var markmiðið sagt vera nákvæmlega það að þú ert lögþvingaður — sjáðu til, kæri launþegi — til að greiða í lífeyrissjóð. Þú ert lögþvingaður með fjármuni þína hingað hvort sem þér líkar það betur eða verr og þú munt í engu missa af þínum áunnu réttindum sem þú hefur fengið sem skattborgari þessa lands þegar kemur að því að þú eigir rétt á töku ellilífeyris, að þú eigir rétt á að fá að nýta þér öryggisnet almannatrygginga í lok dags. En þetta er nú búið að stökkbreytast heldur betur á tímabilinu. Á þessum tíma var staðgreiðsla einmitt við inngjöf í lífeyrissjóðina. Því var breytt til að lífeyrissjóðirnir gætu haldið áfram að hanga á fjármununum okkar og fara með þá eins og þeim sýndist og eiga þeir nú vel á áttunda þúsund milljarða. Þetta eru nokkur margfeldi af íslensku fjárlögunum, hvorki meira né minna, en að þurfa að vera búin að tala um nákvæmlega þetta ár eftir ár og svo er hoppað upp á dekk núna — bara alveg jú, 5.000 kr. á mánuði, það er það sem þið fáið í vasann, 5.176 held ég að sé nákvæma krónutalan.
100.000 kr. frítekjumark vegna lífeyristekna, þetta svokallaða almenna frítekjumark, á ekkert skylt við frítekjumark vegna atvinnutekna, það er það sem fólk virðist oft vilja rugla saman. Þetta kemur því akkúrat ekkert við. Þetta er algerlega hin hliðin á peningnum. Þetta er hið svokallaða almenna frítekjumark, þar sem í rauninni fyrst og síðast þeir sem fá greiðslu út úr lífeyrissjóði eru strax skertir um 45% fyrir hverja krónu umfram 25.000 kr. greiðslu úr lífeyrissjóði. Sjáið þið t.d. einhvern sem á bara alls ekkert mikinn lífeyrissjóð og er hreinlega að hokra, á kannski inni 40.000 kr. í lífeyrissjóðnum eða kannski 50.000 kr. frá lífeyrissjóðnum. Þá eru bara eftir 25.000 krónurnar. Þá er hver króna þarna skert hjá honum frá Tryggingastofnun ríkisins um 45%. Við köllum það hátekjuskatt.
Ég er að vonast til þess að Flokkur fólksins geti farið að taka til hendinni og ég þurfi ekki að koma hér í stjórnarandstöðu að loknum næstu kosningum og mæla fyrir þessu í áttunda sinn. Ég er að vonast til þess að við getum tekið til höndum og virkilega farið að laga þetta kerfi til hagsbóta fyrir fólkið í landinu. Ég segi það enn og ég segi það aftur: Með Flokki fólksins mun fólkið okkar aldrei þurfa að bíða eftir réttlætinu.