155. löggjafarþing — 14. fundur,  10. okt. 2024.

almannatryggingar.

74. mál
[14:08]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegi forseti. Við erum hér að ræða frumvarp Flokks fólksins um breytingu á lögum um almannatryggingar, frítekjumark vegna lífeyrissjóðstekna. Það sem við erum að fara fram á er 100.000 kr. frítekjumark. Landssamband eldri borgara í kjaramálum hefur verið í stefnumörkun um almennar aðgerðir og hvað komi best út fyrir láglaunafólk og þá með miðlungstekjur. Eitt af þeirra baráttumálum hefur einmitt verið að fá frítekjumarkið í 100.000 kr. á mánuði. Svar ríkisstjórnarinnar er, eins og hefur komið hér fram, að hún ætli sér að hækka frítekjumarkið um 11.500 kr. Ég gerði það að gamni mínu áður en ég fór í ræðustólinn að ég sló þessar tölur inn í reiknivél Tryggingastofnunar ríkisins til þess að átta mig nokkurn veginn á því hvað verið væri að tala um með þessar 11.500 kr. Jú, það er ekki fimmþúsundkall, það eru rétt um 4.000 kr. sem það skilar. Ef við værum aftur á móti með 100.000 kr. frítekjumark þá myndi það skila um 65.000 kr. eða 67.000 kr. á mánuði. Þá verðum við að setja þetta í samhengi. Hverjir væru að fá þessar 65.000 kr.? Það eru aðallega konur vegna þess að þær hafa lægri lífeyri þannig að það má eiginlega segja að þessi skerðingarstefna um lífeyrislaun, lögþvingaðan lífeyrissparnað hjá ellilífeyrisþegum, bitni mest á konum. Hvar er nú öll kvenréttindabaráttan eða jafnréttið?

Það hlýtur að vera eitthvað undarlegt við það að við skulum vera með þannig kerfi sem þvingar fólk með lögum til þess að safna fjármunum í lífeyrissjóði til framtíðar en á sama tíma erum við með annað kerfi, bútasaumaðan óskapnað með keðjuverkandi skerðingum, sem skerðir þennan lögþvingaða, eignaupptökuvarða rétt. En auðvitað ver ríkisvaldið sig alltaf með því að það skerði ekki lífeyrissjóð. Það er alveg rétt hjá þeim, þeir gera það ekki, en þeir skerða og minnka það sem fólk fær frá Tryggingastofnun ríkisins. Ég veit ekki hvort einhverjum finnst það rosalega vel í lagt að þeir sem eru með engan lífeyrissjóð og engar aðrar tekjur, þeir sem eru í lægstu þrepunum, fái 293.231 kr. útborgaðar eftir skatta. Eru það einhver ósköp? Þetta er undir 300.000 kr. Svo erum við með annan hóp sem er með búsetuskerðingar sem fær rétt rúmar 260.000 kr. eftir skatta. Jú, þessi hungurlús er sköttuð.

Þetta sýnir svart á hvítu hvers lags fátæktargildrur eru í þessu kerfi, eða bara hreinlega sárafátækt. Hvernig í ósköpunum á einhver að lifa á eða kannski tóra á svona upphæð? Ef viðkomandi á 25.000 kr. í lífeyrissjóði þá kemst hann upp í rétt rúmar 310.000 kr. útborgaðar og ef hann fær þessa hungurlús, sem þessi ríkisstjórn ætlar að skammta núna með stolti, þessar 11.500 kr., þá kemst hann upp í 314.000 kr. Svakalegt, það hlýtur að vera algjör veisla. En ef okkar frumvarp kæmist í gegn, sem er bara fyrsta skref, þá væri hann kominn upp í 340.000 kr. Þá getum við alla vega sagt að það sé eitthvað að ske. Það er ekki til of mikils mælst, þetta eru mjög hógværar kröfur að setja 100.000 kr. frítekjumark. Þetta kostar — það er eiginlega fáránlegt, þetta kostar ekki neitt. Ég ætlaði að fara að segja að þetta kostaði 16 milljarða en þetta kostar ekki neitt. Þetta minnkar sparnað ríkisins um 16 milljarða, sparnað sem ríkið er að taka af ellilífeyrisþegum. Það er ekki kostnaður. Það er bara verið að skila peningum til baka, af því sem ríkið er núna að spara sér. Ríkið er að spara sér í dag um 110 milljarða á ári með því að ráðast í keðjuverkandi skerðingar á lífeyrissjóðakerfinu. Við gerum okkur kannski ekki grein fyrir því hversu ótrúleg upphæð þetta er. Ef við tökum nýja Landspítalann og segjum að hann eigi að kosta einhverja 70 til 80 milljarða, hann endar kannski í 100 milljörðum, þá getum við sagt að eldri borgarar séu að leggja fram andvirði Landspítala á hverju einasta ári. Spáið í það. Bara með því að ríkið er að spara sér þessi útgjöld á þeirra kostnað.

Það er líka svolítið undarlegt að við erum alltaf að segja við eldri borgara að þeirra tími sé kominn, að það eigi að draga úr þessum skerðingum. En um leið og einhver segir við þennan hóp að hann ætli að draga úr skerðingum þá fæ ég hroll vegna þess að viðkomandi þarf ekki að draga úr skerðingum nema um eina krónu og þá er hann búinn að standa við það, hann hefur dregið úr skerðingum. Alveg eins og við vitum með krónu á móti krónu skerðingarnar á sínum tíma hjá öryrkjum sem fóru úr 1 kr. í 65 aura. Þetta voru bara smáaurar. Ef þeir hefðu virkilega viljað draga úr skerðingum eða hreinlega — við eigum að afnema skerðingar. Við eigum að finna lágmarksframfærslu, við eigum að vera með mannsæmandi lágmarksframfærslu. Við í Flokki fólksins viljum byrja á 450.000 kr. skatta- og skerðingarlaust. Það er góð byrjun. Það segir sig sjálft að ef einhverjir einstaklingar þarna úti eru að leigja þá er hægt að fá, eins og markaðurinn er í dag, sæmilega íbúð á 300.000 kr. og þá er þetta engin ofrausn. Við getum líka sagt okkur það að eldri borgarar sem búa í sínu húsnæði þurfa að halda því við, það er viðhaldskostnaður og annað, það er dýrt og kostar mikið í dag. Ég hef heyrt í eldri borgurum sem eru hreinlega í vandræðum og sjá fram á að verða að flytja, þeir vilja ekki flytja en ráða ekki við viðhaldskostnaðinn. Hvað tekur þá við, eins og þeir segja, hvert geta þeir farið? Við vitum hvernig húsnæðismarkaðurinn er og við vitum hvernig lánakjörin eru ef viðkomandi lendir í þeirri aðstöðu.

Það segir sig sjálft að við eigum að sjá til þess, og það hefur margoft komið fram, að búa öldruðum áhyggjulaust ævikvöld. Ég hefði sagt að það væri fínt skref að samþykkja þetta frumvarp og setja bara á 100.000 kr. frítekjumark núna í hvelli. En það er borin von vegna þess að þeir eru búnir að hengja um hálsinn á sér medalíu fyrir það að ætla að hafa þetta 11.500 kr. sem, eins og ég segi, skilar 4.000 kr. á mánuði. Það eru nú öll ósköpin.

Hvað hafa eldri borgarar fengið frá þessari ríkisstjórn síðustu sjö árin? Ég er viss um að ef þið farið að hugsa til baka þá sjáið þið að það er ekki neitt. Ekki fengið 63.000 kr. skatta- og skerðingarlausa desembergreiðslu. Þá var sú skýring gefin hér að eldri borgarar þyrftu ekkert á þessu að halda vegna þess að þeir væru að fá orlofs- og desemberuppbót frá Tryggingastofnun ríkisins sem er 125.000 kr. og af þeim fara 40% í orlofsgreiðslur og 60% í desembergreiðslu. En það er hængur á því. Hugsið ykkur, eins og ég hef margoft sagt, hversu aum og hversu ill hugsunin má vera ef þú ætlar að segja við fólk: Við ætlum að láta þig fá 125.000 kr. í orlofs- og desemberuppbót en við meinum það ekki, nema fyrir suma. Ef þú hefur dirfst að fara að lögum og borgað í lífeyrissjóð, lögþvingaðan lífeyrissjóð, þú verður að borga í hann, þá ætlum við að refsa þér. Þú þarft ekki að fara í neitt orlof eða fá einhverja desemberuppbót. Við tökum það af þér í hlutfalli við það sem þú færð úr lífeyrissjóði, því meira sem þú færð úr lífeyrissjóði því minna færðu í orlofsbætur þangað til þær hverfa. Sumir fá ekki neitt þó að þeir séu enn inni í þessu almannatryggingakerfi og eru ekkert að fá neinar svakalegar greiðslur. Kerfið er svo grimmt, skerðingarnar eru svo brattar. Síðan gleymum við því alltaf að þessar skerðingar eru úti um allt kerfið. Þær eru faldar hér og þar og þær fara jafnvel, eins og ég hef margoft bent á, yfir í félagsbótakerfið og valda tjóni þar.

Ég verð að segja alveg eins og er, því oftar sem maður kemur hérna upp með frumvarp frá Flokki fólksins, við erum komin með þetta í sjöunda skiptið, mörg svona frumvörp aftur og aftur: Ríkisstjórnin hlustar ekki, vegna þess að þeir eru búnir að ákveða hvernig þeir ætla að hafa kerfið. Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn og Vinstri græn, þessir flokkar byggðu þetta kerfi upp. Þeir næra þetta kerfi. Þetta er þeirra barn og þeir vilja hafa þetta svona bútasaumað. Þess vegna setja þeir núna t.d. inn og munu lofa í næstu kosningum að þeir ætli að draga úr skerðingum. Ef einhver ætlar að segja það við ykkur í næstu kosningum að hann ætli að draga úr skerðingum þá eiga allar viðvörunarbjöllur að hringja vegna þess að þá ætlar hann ekki að gera neitt. Það hefur sýnt sig að það hentar þeim að segja að þeir ætli að draga úr skerðingum. En ef þeir væru virkilega að meina það þá hefðu þeir tekið undir þetta frumvarp okkar og sagt: Já, ókei, við setjum þetta á. Þetta kostar þá smáaura í öllu samhenginu. En við verðum líka að spyrja okkur að því: Hvernig í ósköpunum, með alla þá fjármuni sem koma inn í ríkissjóð og allan þann sparnað sem þeir eru með, skiptir það ríkið höfuðmáli hvort það fær 310 milljarða í skerðingar eða 296? Er það það sem skiptir höfuðmáli? Ég segi nei, það skiptir ríkissjóð engu máli en það skiptir fólkið þarna úti gríðarlega miklu máli.

Við verðum líka að átta okkur á því að á öllum þessum tíma, þessum sjö árum, þá hefur ríkisstjórninni einhvern veginn tekist í hverju einasta fjárlagafrumvarpi að hræra saman vísitölugrunni og öðru og búa til einhvern nýjan grunn sem enginn veit hvernig þeir finna út og það er allt að því helmingi minna en það á að vera. Meira að segja voru þeir svo grófir í síðasta eða þarsíðasta fjárlagafrumvarpi að þeir sögðust þurfa að hækka hjá RÚV og einkareknum fjölmiðlum um 10,6% samkvæmt verðlagsvísitölu en komust að því að hækkun almannatrygginga ætti ekki að vera nema um 6%. Þarna var bara himinn og haf á milli. Ég spurði: Bíddu, hvernig getur staðið á því að verðlagsvísitalan er þetta há og þetta mikil hjá einkareknum fjölmiðlum og RÚV en gildir ekki hjá eldri borgurum eða öryrkjum? Þá var lækkað hjá hinum en ekki hækkað hjá eldri borgurum. Þá fóru hinir í þessa sömu kúrfu og fengu aðeins lægra.

Þetta sýnir einbeittan brotavilja þessarar ríkisstjórnar gagnvart eldri borgurum og öryrkjum. Þeir ætla sér ekki að láta ykkur fá krónu. Þeir munu ekki láta ykkur fá 63.000 kr. skatta- og skerðingarlausar í desember. Þeir hafa neitað því undanfarin ár og þeir munu neita því áfram. Það er alveg á hreinu að þeir sem ætla að bíða eftir því að þessi ríkisstjórn muni gera eitthvað fyrir ellilífeyrisþega geta gleymt því. Það er búið að merkja þetta hérna, þessar 11.500 kr. í aukið frítekjumark lífeyristekna sem skilar litlum 4.000 kr. Hungurlús, 4.000 kr. Fyrir hvað duga þær? Hálfu lambalæri í dag? Gerið það sem Flokkur fólksins er að biðja um, 100.000 kr. Byrjum þar. Það skilar nærri 70.000 kr. Það munar um minna. Það er ég alveg með á hreinu. Þau sem eru að reyna að hokra á 290.000 kr., þeim munar um nærri 70.000 kr. á mánuði. Það er það sem þau eiga skilið og eiga að fá.