búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum.
Frú forseti. Þetta er tillaga til þingsályktunar sem ég mæli hér fyrir núna um búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum. Með mér á þessari tillögu er gjörvallur þingflokkur Flokks fólksins.
„Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra að undirbúa og leggja fram lagafrumvarp sem kveði á um eftirfarandi:
1. Ríki og sveitarfélögum verði skylt að útvega öldruðum, sem hafa gengist undir færni- og heilsumat, dvalar- eða hjúkrunarrými eigi síðar en 60 dögum eftir að niðurstöður mats um að viðkomandi eigi rétt á slíku úrræði liggja fyrir.
2. Færni- og heilsumat skuli gefið út eigi síðar en 10 dögum eftir að umsókn um það berst.
3. Öldruðum einstaklingum, sem dvalist hafa lengur en 10 daga á sjúkrahúsi án sérstakrar meðferðar, verði útvegað dvalar- eða hjúkrunarrými.
Ráðherra leggi fram frumvarp þessa efnis á haustþingi 2025.“
Þessi þingsályktunartillaga hefur verið lögð fram tvívegis áður og er ég nú að mæla fyrir henni í þriðja sinn en hún hefur ekki náð fram að ganga eins og sést. Þrátt fyrir skýrar vísbendingar um þörf á fleiri hjúkrunarrýmum og fögur fyrirheit um uppbyggingu þá hefur lítið gerst undanfarin ár. Árið 2007 voru hjúkrunarrými tæplega 2.700 en dvalarrými ríflega 700. Árið 2019 voru almenn hjúkrunarrými á hjúkrunar- og dvalarheimilum landsins 2.648 en dvalarrými 179. Í lok árs 2022 voru 2.790 almenn hjúkrunarrými og 129 dvalarrými. Milli 2019 og 2022 fjölgaði hjúkrunarrýmum um 142 en dvalarrýmum fækkaði um 50. Þessi fjölgun rýma hefur því miður ekki leitt til styttri biðtíma fyrir fólk með færni- og heilsumat. Því má álykta að allar þær viljayfirlýsingar sem fram hafa komið hér hjá hæstv. ríkisstjórn séu í rauninni innantómt blaður.
Ég ætla að segja ykkur hérna stutta sögu af sjálfri mér og því hvernig ég hef þurft að glíma við þetta kerfi þar sem aldraður faðir minn greindist með heilabilun. Við þurftum að taka hann til okkar, börnin hans. Hann bjó hjá mér í ríflega tvö ár á meðan við vorum að bíða eftir því að hann fengi inni á hjúkrunarrými, löngu orðinn algjörlega ósjálfbjarga og þurfti alla umönnun. Eins og pabbi gamli segir og sagði alltaf: Tvisvar verður gamall maður barn og einhvern tímann, Inga mín, átt þú nú eftir að þurfa að hugsa um pabba. Það var víst alveg áreiðanlegt og það gekk ekki átakalaust fyrir sig að koma föður mínum í gegnum þetta mat og fá inni fyrir hann á hjúkrunarrými til að hann fengi þá aðhlynningu og öryggi sem þarfir hans kröfðust.
Það er nöturlegt að þurfa að horfast í augu við það að nú eru elstu borgarar þessa lands liggjandi unnvörpum eins og hráviði hingað og þangað um ganga á Landspítalanum, þar sem þau hafa verið kölluð fráflæðisvandi. Við í Flokki fólksins köllum það nú frekar og kjósum að nefna það útskriftarvanda. Þarna eru um 100 einstaklingar í dýrustu legurýmum sem hægt er að fá á landinu. Hvernig er verið að forgangsraða fjármunum þessarar ríkisstjórnar og fyrir hverja? Mér er spurn. Svo sannarlega ekki fyrir fólkið í landinu.
Efri árin eiga að vera gæðaár. Efri árin eiga ekki að vera fyrirkvíðanleg, óttablandin, kvíðablandin og óöryggi frá A til Ö. Við eigum að fá að njóta þess að verða fullorðin og eyða síðasta æviskeiðinu í öryggi og vellíðan. Það á ekki að koma fram við okkur eins og við séum fyrir, aldrei, þannig að ég segi hér og nú: Það verður að tryggja það að meira að segja þegar makar eru aðskildir — við skulum segja að annar einstaklingurinn sé veikur og fái pláss á hjúkrunarheimili. Hann er jafnvel fluttur hreppaflutningum. Því miður er ekki pláss fyrir þig hér þannig að þú getur kannski farið eitthvert austur á land eða bara eitthvert allt annað, eða bara vestur á firði af því það er ekki pláss fyrir þig hér, þrátt fyrir að þú þekkir engan í hinum landshlutanum, þrátt fyrir að makinn geti ekki einu sinni heimsótt þig. Þetta er Ísland í dag.
Við erum líka að tala um það hér að maki eigi skilyrðislaust að geta fylgt lífsförunaut sínum ef hann kýs svo og fá í rauninni, gegn þeirri greiðslu sem almennt er tekin af okkur þegar við nýtum okkur það að leggjast inn á hjúkrunarrými, að vera þar með maka sínum, þau séu ekki skilin að, einstaklingar sem eru kannski búnir að vera — það eina sem þau eiga jafnvel eftir, eftir alla ævina, er hvort annað. Þetta er mannvonska. Það er ekkert annað. Þetta er mannvonskukerfi.
Mig langar að nefna það hér að þeim fjölgar alltaf sem eru að deyja á biðlista eftir því að fá utan um sig tekið. Þetta er sárara en tárum taki. Það þarf miklu meira samtal. Það verður að fara að taka utan um fólkið okkar. Það verður að fara að sýna úr hverju þetta samfélag er gert. Við verðum að fara að forgangsraða fyrir fólkið fyrst. Við eigum ekki að kasta milljörðum á milljarða ofan í algerlega vonlaust verk. Við eigum ekki að vera með snobbpartí hingað og þangað sem kosta milljarða. Við eigum ekki að kaupa glæsihallir fyrir almannafé. Við eigum ekki að vera á faraldsfæti úti um allan heim fyrir skattfé borgaranna og sitja í einhverjum flottræfilsveislum sem í raun eru ekkert annað en útgjöld og skilja ekkert eftir og maður tekur ekkert með sér heim nema bara hey, jú, ég hef víst kíkt þarna aðeins til New York einhvern tímann og rosalega var það nú gaman. Og hvað lærðirðu svo af því? Ja, bara, hitti alls konar skemmtilegt fólk. Og hverju breytti það fyrir íslenskt samfélag? Nú, eiginlega bara engu. Við eigum hér forsetaembætti og við eigum hér utanríkismálaþjónustu. Við eigum hér utanríkisþjónustu sem kostar milljarða. Það eru tengsl okkar sem við eigum að nýta við útlönd, samskipti okkar við útlönd.
En að ætla að taka utan um fólkið okkar sem meira að segja — fyrst ég er að tala um hjúkrunarrými og hve rosalegur skortur er á þeim þá verð ég að nefna að það eru allnokkur ár síðan Alþingi Íslendinga samþykkti að setja á fót embætti hagsmunafulltrúa fyrir eldra fólk en þrátt fyrir að starf hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra sé í rauninni fólgið í því að fara að vilja löggjafans þá hefur hann tekið þennan vilja löggjafans, fótumtroðið hann og við höfum ekki enn þá séð þennan hagsmunafulltrúa eldra fólks verða að veruleika, ekki enn þá, en hann átti að vera orðinn til fyrir réttum þremur árum.
Hér deyr fólk aleitt heima, jafnvel fólk sem hefur verið veikt, jafnvel fólk á biðlista, einstæðingar sem hafa ekkert bakland og eiga engan að. Og svo er verið að hneykslast á því þegar ég er að segja að það sé á ábyrgð stjórnvalda hvernig komið er fyrir mýmörgum sem einangrast einir heima og hafa ekkert bakland. Að sjálfsögðu er það á ábyrgð stjórnvalda. Að sjálfsögðu er það hundrað prósent á ábyrgð stjórnvalda að koma með þannig úrbætur og þannig umhyggju um þegnana að þeir dagi ekki uppi einhvers staðar aleinir og finnist dánir heima hjá sér mörgum mánuðum seinna eins og hefur verið raunin í sumum tilvikum.
Stjórnvöld bera ábyrgð á því hvernig umbúnaðurinn er hér um okkur þegnana. Það eru stjórnvöld sem bera ábyrgð á því hvernig innviðirnir okkar eru hér allir á brauðfótum. Það eru stjórnvöld sem ákveða hvernig þau forgangsraða fjármununum og við vitum það öll að sömu krónunni verður ekki eytt tvisvar. Það liggur algjörlega á borðinu. En að við skulum ekki geta tekið utan um fullorðna fólkið okkar, sem er að ganga síðasta æviskeiðið og þarf á hjálp okkar að halda til að geta verið sátt í sálinni og liðið vel þar sem um þau er hugsað, er til mikillar minnkunar fyrir þetta samfélag og til svo mikillar ævarandi skammar að ég á bara erfitt með að tjá mig um það. Ég skil þetta ekki. Þetta er allt mannanna verk. Þetta þarf ekki að vera svona en þetta er svona samt. Þetta eru mannanna verk. Við skulum aldrei gleyma því að þetta eru mannanna verk og ég endurtek og ég mun alltaf endurtaka aftur og aftur: Þegar við í Flokki fólksins verðum komin hér með stjórnartaumana þá er eitt sem verður alveg gjörsamlega á hreinu: Við forgangsröðum fyrir fólkið fyrst, alltaf. Fólkið mun aldrei þurfa að bíða eftir réttlætinu og örygginu þegar Flokkur fólksins verður kominn hér við stjórn, aldrei. Fólkið fyrst, svo allt hitt.