búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum.
Virðulegur forseti. Við erum að fjalla um tillögu til þingsályktunar um búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum frá Flokki fólksins, mjög þarfa þingsályktunartillögu sem okkur ber skylda til þess að reyna að taka á. En því miður í sjálfu sér ættum við ekki að vera með svona þingsályktunartillögu. Miðað við það sem hefur verið stefnt að um byggingu hjúkrunarrýma og þá fjármuni sem hefur verið safnað ætti staðan að vera allt önnur en hún er í dag. Eins og hefur komið fram eru um 100 eldri borgarar inni á sjúkrahúsum sem komast ekki í hjúkrunarrými.
Það sem er sorglegast við þetta er að það er núna aldrað fólk heima hjá sér, alveg upp undir nírætt og jafnvel upp undir 100 ára gamalt, sem er í þeirri aðstöðu að geta ekki hugsað um sig sjálft lengur. Hvað býður kerfið þá upp á? Það býður ekki upp á neitt. Jú, þegar í harðbakkann slær og ef vel er gengið á kerfið um að nú verði að gera eitthvað í málinu þá kemur þessi furðulega niðurstaða: Fólki eru boðnir hreppaflutningar. Já, ég endurtek, hreppaflutninga kalla ég þetta. Í gamla daga var fólk sent hreppanna á milli, einhverjir þurfalingar, sem voru kallaðir það, sem er mjög ljótt orð en einhverra hluta vegna hefur kerfið tekið upp þetta skelfilega flutningsform. Fólki er boðið, sem er kannski ekkert slæmt í sjálfu sér, að fara til Bolungarvíkur eða á Þórshöfn eða Dalvík eða þar sem er laust pláss. En við erum að tala um háaldrað fólk á síðasta æviskeiðinu sem á enga aðila þar að. Fjölskyldur þeirra búa kannski hér á höfuðborgarsvæðinu eða öfugt. Segjum að einhver búi á Akureyri og það eigi að fara að senda hann til Bolungarvíkur eða eitthvað, á Höfn í Hornafirði — við sjáum að þetta gengur ekki upp. Það er ótrúleg óvirðing við fólk að þetta skuli vera svona.
Núna í sumar fór ég á vegum velferðarnefndar Norðurlandaráðs til Árósa í Danmörku þar sem við skoðuðum hús kynslóðanna. Þar var búið að byggja hús, eða margar húseiningar sem eru samtengdar, þar sem bjó fatlað fólk, stúdentar, aldrað fólk og það var meira að segja hjúkrunarheimili þar og bara venjulegt vinnandi fólk, og það var barnaheimili í þessu húsi, samkomusalir tengdir með gróðurhúsum, aðstöðu til að grilla og það sem er stórmerkilegt í þessu húsi var að það var þarna stórkostlegur salur með eldhúsi og öllu þar sem var hægt að horfa út á sjóinn og yfir stórglæsilegt umhverfi. Síðan voru þarna íbúðir sem var hægt að leigja á lítinn pening þegar fólk var að koma í heimsókn til ættingja. Síðan var meira að segja líka á öðrum stað í húsinu fullkomið eldhús og fullt af herbergjum sem var líka hægt að leigja út ef einhver einn kom og þá hafði hann aðgang að eldhúsi, baði og sturtu. En það sem var merkilegast var að við hittum þarna konu sem bjó í einni íbúðinni og hún sagði okkur frá því að hún byggi á sömu hæð og maðurinn hennar. Hún bjó í íbúð en maðurinn hennar var á hjúkrunarheimili á sömu hæð. Hún þurfti ekki að labba nema nokkra metra yfir í hjúkrunarheimilið í gegnum eina tengibyggingu sem er mjög lítil, stutt að fara, til að komast í heimsókn til mannsins síns. Þetta var algerlega til fyrirmyndar. Það sem kom manni líka ótrúlega á óvart var leigan þarna. Hún var frá 70.000 kr. fyrir 60–70 m² íbúð og upp í 140.000 kr. á 100 m² íbúðum sem auðvitað er eitthvað sem við þekkjum ekki og myndi sennilega líða yfir okkur ef það væri boðið upp á eitthvað svona hér á Íslandi.
Þetta sýnir svart á hvítu hvað er hægt að gera. Við verðum líka að sjá til þess og nú er enn þá meiri þörf á því að við fáum hagsmunafulltrúa aldraðra sem var búið að lofa okkur fyrir þremur árum síðan. Það var samþykkt hér á Alþingi með öllum greiddum atkvæðum að hagsmunafulltrúi aldraðra yrði settur á. Hvað gerði ráðherra? Hann bjó til nefnd eða eitthvert ráð til að eyðileggja samþykki Alþingis, til að búa til eitthvað allt annað sem honum þóknaðist, sem endaði í einhverri símalínu eða pósthólfi á island.is sem enginn veit af og enginn notar. Þetta sýnir svart á hvítu vinnubrögð þessarar ríkisstjórnar, hvernig hún getur komið fram við aldrað fólk. Við erum búin að vera að flytja hvert frumvarpið á fætur öðru sem sýnir framkomu ríkisstjórna undanfarinna áratuga, hvernig þær haga sér. Þetta versnar bara. Þeir lofa öllu fögru en þetta eru efndirnar. Fólk er fast inni á sjúkrahúsi, fólki er boðið upp á hreppaflutninga, fólk er sent heim, fær kannski tvær heimsóknir í viku, eldra fólk sem getur ekki séð um sig heima. Hver á þá að taka við? Jú, ættingjar. Þeir eiga að sjá um þetta. Þeir eiga að leysa þetta fyrir ríkisstjórnina. Þetta er algerlega ólíðandi.
Við verðum að fara að gera eitthvað en því miður, eina leiðin er að þessi ríkisstjórn sem er, eins og ég hef áður sagt, komin með bullandi ofnæmi fyrir sjálfri sér, bara fatti það að þeir þola ekki hver annan og boði til kosninga. Þá er kannski smá möguleiki á og vonandi að Flokkur fólksins komist að í næstu ríkisstjórn og þá munum við taka á þessu. Við munum sjá til þess að fólkið verði fyrst en ekki þeir sem hafa fjármunina. Vonandi verður svo.