155. löggjafarþing — 14. fundur,  10. okt. 2024.

dánaraðstoð.

76. mál
[14:42]
Horfa

Flm. (Bryndís Haraldsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér enn og aftur fyrir máli er tengist dánaraðstoð. Í þessu tilfelli núna mæli ég fyrir tillögu til þingsályktunar um að Alþingi álykti að fela heilbrigðisráðherra að undirbúa og leggja fram frumvarp til laga sem heimilar dánaraðstoð. Meðflutningsmenn mínir á þingsályktunartillögu þessari eru hv. þingmenn Ásmundur Friðriksson, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Björn Leví Gunnarsson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Hanna Katrín Friðriksson, Hildur Sverrisdóttir, Jakob Frímann Magnússon, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir og Þórunn Sveinbjarnardóttir.

Virðulegur forseti. Ég segi að ég mæli hér enn og aftur fyrir máli um dánaraðstoð. Þetta mál sem hér um ræðir hefur ekki fengið margar umferðir hér í þingsal. Ég mælti fyrir slíkri þingsályktunartillögu fyrir um ári síðan. Ég hef frá því að ég tók sæti á Alþingi árið 2016 á nánast hverju einasta þingi verið með mál sem tengjast dánaraðstoð. Þess vegna leyfi ég mér að segja að mér þykir einstaklega vænt um þetta mál og það skiptir mig mjög miklu. Þegar ég tók hér sæti þá átti ég ásamt fleiri þingmönnum fund með í fulltrúum frá Lífsvirðingu, sem þá var verið að stofna, félagi um dánaraðstoð. Í kjölfarið skrifaði ég mitt fyrsta þingmál sem þá var líka þingsályktunartillaga og lét gera ákveðna samantekt á stöðu þessara mála í öðrum löndum og framkvæma skoðanakönnun á viðhorfum fólks til dánaraðstoðar. Eins og gengur og gerist í þessum þingsal þá fá þingmannafrumvörp nú ekki alltaf afgreiðslu en ég hef engu að síður fundið leiðir til að ná þessum vilja mínum fram, að kalla eftir þessum upplýsingum, með því að leggja fram skýrslubeiðnir í tvígang og jafnframt fyrirspurnir til ráðherra. Ég er því mjög stolt af því, og þakklát fyrir þann stuðning sem ég hef fengið hér hjá meðflutningsmönnum mínum og öðrum á þinginu, að hafa náð því fram að nú eru til allmörg þingskjöl um dánaraðstoð. Ég held að það skipti máli í því máli sem hér um ræðir. Það er viðkvæmt mál en mikilvægt mál. Þetta er mál sem kallar á ýmsar erfiðar siðferðilegar spurningar og vangaveltur. Þetta er líka mál sem þarf svolítið að þroskast og samfélagsleg umræða þarf að þroskast í kjölfarið.

Virðulegur forseti. Ég ætla að leyfa mér að fara hér aðeins yfir greinargerðina. Þar segir að vorið 2023 hafi Alþingi falið heilbrigðisráðherra að gera skoðanakönnun um viðhorf heilbrigðisstarfsfólks, samtaka sjúklinga og almennings til dánaraðstoðar með skýrslubeiðni sem ég, ásamt fleirum, lagði fram. Samkvæmt þeirri könnun voru 56% lækna, 86% hjúkrunarfræðinga og 81% sjúkraliða hlynnt dánaraðstoð alfarið, mjög eða frekar. Þessar niðurstöður sýna að stuðningur heilbrigðisstarfsfólks hefur aukist við dánaraðstoð til mikilla muna á skömmum tíma. Þær staðfesta jafnframt niðurstöðu viðhorfskönnunar sem Brynhildur K. Ásgeirsdóttir framkvæmdi árið 2021 meðal lækna og hjúkrunarfræðinga á aðgerða- og meðferðarsviðum Landspítalans, en sú könnun sýnir að 54% lækna og hjúkrunarfræðinga höfðu jákvætt viðhorf til dánaraðstoðar. Viðhorfskönnun heilbrigðisráðherra sýnir einnig að 84% svarenda hjá samtökum sjúklinga voru hlynnt dánaraðstoð. Þá kom fram í svörum almennings að 75,6% svarenda voru alfarið, mjög eða frekar hlynnt dánaraðstoð. Á Norðurlöndum hafa skoðanir heilbrigðisstarfsmanna einnig breyst hratt í átt að stuðningi við dánaraðstoð. Í Noregi voru til að mynda 31% lækna árið 2019 og 56% hjúkrunarfræðinga árið 2022 hlynnt dánaraðstoð. Í Svíþjóð var stuðningur lækna við dánaraðstoð 47,1% árið 2021 og í Finnlandi var stuðningur lækna 55% árið 2024 og stuðningur hjúkrunarfræðinga 60% árið 2024. Upplýsingar frá Danmörku voru því miður ekki aðgengilegar á þessum tíma en verið er að kalla eftir slíku.

Dánaraðstoð er sá verknaður að aðstoða einstakling við að binda enda á líf sitt á grundvelli yfirlýsts samþykkis hans til að leysa viðkomandi undan, og hér er mjög mikilvægt, óbærilegum sársauka eða þjáningu. Árið 1997 birtist grein í Læknablaðinu þar sem fjallað var um rannsókn á afstöðu heilbrigðisstarfsfólk til siðferðilegra álitamála um takmörkun meðferðar við lífslok. Í umræddri rannsókn var ein af spurningunum um dánaraðstoð, eða líknardráp eins og það var þá kallað í rannsókninni. Aðeins 5% lækna og 9% hjúkrunarfræðinga töldu líknardráp réttlætanlegt undir einhverjum kringumstæðum en einungis 2% svarenda gátu hugsað sér að verða við slíkri ósk. Árið 2010, þegar sambærileg könnun var gerð, var niðurstaðan sú að líknardráp þótti réttlætanlegt hjá 18% lækna og 20% hjúkrunarfræðinga en aðeins 3% vildu verða við slíkri ósk. Í nóvember 2015 lét Siðmennt gera könnun á lífsskoðunum og trú Íslendinga og ein spurning í könnuninni var: Ertu hlynntur eða andvígur því að einstaklingur geti fengið aðstoð við að binda enda á líf sitt ef hann er haldinn ólæknandi sjúkdómi? 74,9% aðspurðra voru mjög eða frekar hlynnt því, 18% voru hvorki hlynnt né andvíg og 7,1% mjög eða frekar andvíg. Á allra síðustu árum eða á árunum 2019 og 2022 lét félagið Lífsvirðing gera skoðanakannanir um afstöðu almennings til dánaraðstoðar og sýndu niðurstöður þeirra að stuðningur Íslendinga við dánaraðstoð var hátt í 80% eða 77% og 76%.

Á síðustu árum hefur reglulega komið upp umræða í íslensku samfélagi um dánaraðstoð og ljóst er að umgjörð um þetta viðkvæma mál er mismunandi eftir löndum. Sviss lögleiddi aðstoð við að binda enda á líf árið 1937. Oregon-ríki í Bandaríkjunum leyfði dánaraðstoð árið 1997 og er ferlið þannig að læknir skrifar upp á lyf sem einstaklingur sækir í apótek og innbyrðir sjálfur. Kólumbía leyfði læknisfræðilega aðstoð við að deyja sama ár en aðstoð við sjálfsvíg er enn bönnuð. Holland lögleiddi dánaraðstoð, læknisfræðilega aðstoð við að deyja og aðstoð við að binda enda á eigið líf árið 2002 gegn mjög ströngum skilyrðum. Með lögleiðingu dánaraðstoðar í Hollandi var undanþáguákvæði sett í hegningarlög sem gerði annars ólöglegan verknað refsilausan að ströngum skilyrðum uppfylltum. Fylgi læknir ekki ítarlegum lagaskilyrðum í Hollandi á hann yfir höfði sér ákæru og getur verið dæmdur til refsingar. Belgía innleiddi svipuð lög sama ár og Lúxemborg fylgdi í kjölfarið árið 2009. Dánaraðstoð er auk þess leyfileg í 12 ríkjum í Bandaríkjunum, í ríkjum Eyjaálfu og í nokkrum löndum í Suður-Ameríku.

Í janúar árið 2017 var Lífsvirðing, félag um dánaraðstoð, stofnuð og í kjölfar stofnunar félagsins, svo og skoðanakönnunar Siðmenntar sem hér er vísað til, spruttu upp umræður í samfélaginu um málefnið og ljóst er að stuðningur við dánaraðstoð hefur aukist til muna á síðustu árum eins og ég fór hér yfir áðan. Ég tel nú, og við flutningsmenn, að það sé tímabært að dánaraðstoð verði heimiluð hér á landi en með mjög ströngum skilyrðum og horfum við þá sérstaklega til Hollands í þeim efnum.

Virðulegur forseti. Í grunninn snýst þessi þingsályktunartillaga og þessi hugmyndafræði um dánaraðstoð um það að við sem einstaklingar höfum frelsi til að velja og ráðum að fullu yfir eigin líkama. Einstaklingar eiga því að ráða hvort og hvers konar meðferðar þeir njóta í heilbrigðiskerfinu. Það er skoðun mín, og ég held að það sýni sig miðað við þær breytingar sem átt hafa sér stað í löggjöf í löndum í kringum okkur, að dánaraðstoð er heilbrigðisþjónusta. Dánaraðstoð í mínum huga snýr ekki að því að fleiri geti dáið heldur fyrst og fremst að færri þjáist. Þannig sé þetta ákvæði til heimildar fyrir þá sem eru sárþjáðir og dauðvona, að þeir hafi sjálfir val um það að fá aðstoð til að binda enda á líf sitt en að þessum skilyrðum uppfylltum, að viðkomandi sé dauðvona og sárþjáður og læknar telji sig ekki geta linað þjáningu einstaklingsins með öðrum hætti.

Í Hollandi er komin mikil og góð reynsla á þetta mál. Þar eru það tveir læknar sem samþykkja þetta ferli og aðstoða viðkomandi einstakling, veita sem sagt þessa heilbrigðisþjónustu, eins og ég kýs að kalla það. Við sjáum það frá því að ég var fyrst að hreyfa við þessu máli þarna í upphafi árs 2017 að þá hafa fleiri lönd tekið upp þessa löggjöf og umræðan í löndunum í kringum okkur er að taka einhverri þróun. Það er þó þannig að ekkert Norðurlandanna hefur enn heimilað dánaraðstoð og ég hef á öðrum vettvangi, í gegnum Norðurlandaráð, lagt fram fyrirspurn þar sem ég óskaði eftir samantekt á því hvaða umræður hafi átt sér stað á öðrum Norðurlöndum því að ég þykist vita að þær séu töluverðar.

Félagið Lífsvirðing, sem ég hef rætt hér um, hefur verið ötull talsmaður þess að opna á umræðuna um þetta mál í samfélaginu og er í samstarfi við sambærileg samtök í löndum víða um heim. Það er ástæða til að nefna að nú á næstu dögum, eða 18. október næstkomandi, heldur Lífsvirðing málþing þar sem verið er að fara yfir reynsluna af dánaraðstoð í Sviss, Hollandi og Kanada. Það munu fulltrúar frá félögum í þessum löndum mæta og fara yfir aðstoðina og ég held að það væri full ástæða fyrir þá sem hafa áhuga á þessu máli, hvort sem það er hér meðal þingheims eða annarra, að sækja þá ráðstefnu og taka þátt í þessu mikilvæga samtali.

Ég nefndi hér áðan að ég aðhyllist sérstaklega þessa hollensku leið. En Sviss er kannski það land sem margir þekkja mikið til vegna þess að löggjöfin er með þeim hætti í Sviss að einstaklingar sem ekki eiga lögheimili í Sviss geta komið og fengið þessa þjónustu á meðan það er t.d. þannig í Hollandi að það eru bara hollenskir ríkisborgarar sem geta fengið þessa þjónustu. Þannig hafa sumir sagt að það sé jafnvel að verða til einhvers konar ferðaþjónusta utan um þessa þjónustu í Sviss. Ég er að nefna þetta hér vegna þess að ég held að það sé svo mikilvægt að fólk átti sig á því að löggjöfin er að breytast víða í kringum okkur og Íslendingar hafa sótt þessa þjónustu til Sviss en hún kostar peninga. Hún kostar mikla peninga og þar af leiðandi er hér um ákveðið misræmi að ræða, þ.e. þeir sem vilja fá slíka þjónustu, geti þeir borgað fyrir hana, geta fengið þá þjónustu í dag en þeir sem hafa ekki efni á að borga fyrir hana geta ekki átt þess kost að ferðast til Sviss til að kaupa slíka þjónustu. Þeir geta það ekki. Mér finnst þetta þess vegna líka mikið réttlætismál.

Mér finnst mjög mikið fagnaðarefni hvað sífellt fleiri hafa orðið þátttakendur í þessu samtali. Ég held að það sé til mikilla bóta að til að mynda sjúklingafélög hafa verið að taka þetta mál upp á sína arma. Ég veit að hjúkrunarfræðingar eru á sömu vegferð og ég vil líka hvetja Læknafélagið og læknasamtök til að gera það því að ég held að það sé til bóta. Ég hef ákveðið hér að fara þessa leið til að berjast fyrir þessu máli sem stendur hjarta mínu nær að fela heilbrigðisráðherra að undirbúa og leggja fram frumvarp vegna þess að ég átta mig á því að málið er flókið og það er mikilvægt að sem flestir hagaðilar komi að gerð slíks frumvarps og undirbúnings fyrir það.

Hér hefur líka reyndar verið á þinginu lagt fram frumvarp sem varaþingmaður Viðreisnar lagði fram á síðasta þingi sem gekk út á að heimila dánaraðstoð. Það skilaði alla vega þeim árangri að um þetta mál var mikil umræða í samfélaginu og það er af hinu góða, tel ég. Ég vil þó nálgast það þannig að reyna ekki að stilla fólki hér mikið upp í andstæðar fylkingar þegar að þessu málefni kemur. Ég tel að þetta sé viðkvæmt mál og þar af leiðandi beri að ræða um það með ákveðnum gleraugum, að við þurfum að bera virðingu fyrir sjónarmiði annarra. En ég vona svo innilega, virðulegur forseti, að við getum sameinast um það hér, í næstum því milljónasta skipti sem ég flyt mál tengt dánaraðstoð, að stíga þetta skref og fela ráðherra undirbúning að þessari vinnu vegna þess að á endanum snýst þetta um virðingu fyrir manneskjunni og virðingu fyrir því að manneskja í veikri stöðu geti valið að deyja með reisn.