umhverfismat framkvæmda og áætlana og skiplagslög.
Herra forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana og skipulagslögum. Þetta mál var lagt fram á síðasta löggjafarþingi en hlaut ekki afgreiðslu og því legg ég það fram hér að nýju. Í grunninn þá fjallar þetta frumvarp um að breyta lögum um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og áætlana og skipulagslögum með það að markmiði að tímafrestir umsagnaraðila í leyfis- og skipulagsferli séu virtir þannig að framkvæmdaraðili geti búið við meiri vissu um framvindu verkefnis og þá aðlagað aðra þætti þess að ferlinu. Með frumvarpinu er verið að einfalda regluverk. Þetta mun fela í sér aukna skilvirkni í framkvæmd laganna og aukna skilvirkni í stjórnsýslunni. Og það sem mikilvægt er, herra forseti, það mun festa málshraðareglu stjórnsýsluréttar mun betur í sessi.
Af hverju er þörf á þessu frumvarpi? Það er þannig, herra forseti, að við erum í ógöngum. Við höfum búið til regluverk sem er meira í ætt við að vera frumskógur tafa og flækjustigs. Þetta snýr að öllum framkvæmdum er heyra undir umhverfismat framkvæmda og áætlanir skipulagslaga og annarra tengdra laga. Við þekkjum mýmörg dæmi á undanförnum árum og áratugum um það hvernig framkvæmdir, mikilvægar framkvæmdir sem snúa að innviðauppbyggingu í landinu, hafa tafist, ekki bara misserum saman heldur árum ef ekki áratugum. Nefna má vegaframkvæmd í Gufudalssveit, Suðurnesjalínu tvö, aðrar virkjunarframkvæmdir, Hvammsvirkjun til að mynda, þetta eru allt mikilvæg innviðaverkefni en þær reglur sem við höfum komið okkur upp í stjórnsýslunni gera það að verkum að tafirnar eru óbærilegar, kostnaðarsamar og valda samfélaginu miklu tjóni án þess að sýnt sé fram á það að eitthvað vanti upp á hina efnislegu meðferð í meðferð málanna á stjórnsýslustigi.
Í grunninn eru það þrír þættir sem orsaka þessar miklu tafir og þyngsli í málsmeðferðinni. Tökum sem dæmi virkjun yfir 10 MW. Það eru þrír leyfisferlar sem þarf að fara í gegnum: Það er mat á umhverfisáhrifum, það er skipulagslöggjöfin og í síðasta lagi framkvæmdaleyfið sjálft. Þetta eru þrír ferlar og þeir eru ekki samsíða með neinum hætti. Þessu til viðbótar eru kæruheimildir á öllum stigum málsins, mjög víðtækar kæruheimildir. Það eru ekki eingöngu einstaklingar sem eiga hagsmuna að gæta vegna framkvæmda, sem lúta að mati á umhverfisáhrifum, í sínu nánasta umhverfi, heldur gríðarlega víðtækar kæruheimildir annarra aðila til að kæra allar framkvæmdir alls staðar um landið. Í þriðja lagi eru það tímafrestirnir. Þetta frumvarp kemur inn á það. Tímafrestir umsagna og kynninga sem eru í fyrsta lagi margir, í öðru lagi eru margir umsagnaraðilar, lögbundnir umsagnaraðilar, kallaðir til og þegar opinber aðili, sem er lögbundinn umsagnaraðili, skilar ekki inn umsögn eða tefur það hefur það engin réttaráhrif. Málið situr fast jafnvel þó að stofnun, segjum Matvælastofnun eða Fiskistofa, fái það verkefni frá Orkustofnun að veita umsögn um tiltekna virkjunarframkvæmd og fái til þess átta vikur þá hreyfist málið ekki af hálfu Umhverfisstofnunar ef þessir umsagnaraðilar skila ekki inn umsögn. Þá er ég ekki að tala um tafir um einhverjar vikur eða mánuði eða misseri heldur ár. Málið situr einfaldlega fast. Það er, herra forseti, með öllu óboðlegt og við því verður að bregðast. Þetta frumvarp miðar að því að taka á þeim þætti að þegar lögbundinn umsagnaraðili skilar ekki inn umsögn sé litið svo á lögum samkvæmt að þögn sé sama og samþykki. Viðkomandi umsagnaraðili gerir þá engar athugasemdir við tiltekna framkvæmd sem leitað er umsagnar um. Þetta hlýtur að vera mjög eðlileg regla, herra forseti. Ef málið er þannig vaxið að viðkomandi fagstofnun, sem er lögbundinn umsagnaraðili, virðir ekki tímafrestinn verður einfaldlega að líta svo á að sú stofnun hafi ekki neinar athugasemdir og að málið geti haldið áfram. Sú stofnun sem ber ábyrgð á málinu, er að óska eftir umsögnum, getur þá afgreitt málið án þess að litið sé svo á samkvæmt lögum að einhver galli sé á málsmeðferðinni, að það sé einhver formgalli að einhver tiltekin umsögn hafi ekki borist. Þetta er einmitt staðan í dag. Þess vegna eru mál að tefjast von úr viti.
Það er líka mikilvægt, herra forseti, að draga það fram að þetta frumvarp miðar að því að tryggja betur í sessi málshraðareglu stjórnsýslulaga. Það kemur fram í skýrslu umboðsmanns Alþingis frá 2022 að löng málsmeðferð sé algengasta ástæða kvartana til embættisins. Algengasta ástæða kvartana til embættisins, löng málsmeðferð, óskilvirk stjórnsýsla þar sem erindum er ekki svarað eða mál eru ekki afgreidd í ljósi málshraðareglu stjórnsýslulaga. Það er mikilvægt að hafa þetta í huga og þetta er ein ástæða þess að það er mjög málefnalegt að setja umsagnaraðilum einhverjar skorður með tímafresti. Það gengur ekki að það hafi engin áhrif ef stofnun skilar ekki umsögn. Það verður að hafa einhverja þýðingu og í frumvarpinu er lagt til að ef stofnun virðir ekki átta vikna umsagnarfrest — ef það er lengri umsagnarfrestur í öðrum lögum þá gildir hann, en þetta setur ákveðið hámark í átta vikur — ef stofnun skilar ekki inn umsögn innan þessara átta vikna, verður að líta svo á að þögn sé sama og samþykki. Þetta er til að festa málshraðaregluna betur í sessi.
Herra forseti. Þetta frumvarp er ekki umfangsmikið. Það varðar þessa tvo meginlagabálka, annars vegar lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana og breytingu á skipulagslögum hins vegar. Það er alveg skýrt til hverra þessi regla nær og þá er ég að vísa til 27. töluliðar 2. gr. skipulagslaga þar sem umsagnaraðilar eru skilgreindir. Það eru, með leyfi forseta, opinberar stofnanir og stjórnvöld sem sinna lögbundnum verkefnum á sviði skipulagsmála og leyfisveitingum þeim tengdum. Áhrif frumvarpsins eru því bundin við þessi stjórnsýslumál, þessa leyfisferla sem eru hér undir, og þetta eru þau mál sem snúa hvað mest að uppbyggingu mikilvægra innviða í landinu. Það eru einmitt þau mál sem eru að tefjast og það eru þau mál sem sitja föst í stjórnsýslunni með tilheyrandi tjóni fyrir samfélagið allt, almenning, einstaka landshluta. Þess vegna er rétt að þetta frumvarp nái fram að ganga. Eins og ég kom inn á í máli mínu í upphafi eru auðvitað mýmörg önnur atriði sem þarf að taka til skoðunar. Þá ætla ég að vísa til þess að hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur á þingmálaskrá sinni frumvarp sem miðar að því að taka þessa leyfisferla alla til endurskoðunar. Það veitir ekki af, herra forseti. Það veitir ekki af að ríkisvaldið, stjórnsýslan, hætti að leggja stein í götu fólks og fyrirtækja í landinu, hætti að koma í veg fyrir mikilvæga innviðauppbyggingu vegna einhverra formgalla eða vegna þess að einhver ein stofnun geti tekið slíkt mál í gíslingu og hreinlega neitað að skila inn umsögn. Stjórnsýslan verður að virka. Við verðum sannarlega að fara yfir þessi atriði sem þessi lög kveða á um. Við verðum að leggja mat á umhverfisáhrif mikilvægra framkvæmda, vissulega. Við verðum að hafa skipulagslöggjöfina í lagi og skipulag þannig og að sjálfsögðu verða íbúar þessa lands að hafa kost á því að koma sjónarmiðum sínum að vegna framkvæmda sem varða þeirra umhverfi, en það verður að vera einhver skynsamleg lína til að mál séu ekki einfaldlega drepinn í dróma innan stjórnsýslunnar.
Herra forseti. Ásamt mér eru hv. þingmenn meðflutningsmenn: Jón Gunnarsson, Hildur Sverrisdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson, Óli Björn Kárason og Berglind Ósk Guðmundsdóttir. Að lokum legg ég því til að málinu verði vísað til 2. umræðu og til hv. umhverfis- og samgöngunefndar.