155. löggjafarþing — 14. fundur,  10. okt. 2024.

sjúkratryggingar.

78. mál
[15:15]
Horfa

Flm. (Inga Sæland) (Flf):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum. Ég er hér að tala um tannheilbrigðisþjónustu fyrir börn, aldraða og öryrkja. Með mér á þessu frumvarpi er gjörvallur þingflokkur Flokks fólksins. 1. gr. er svohljóðandi, með leyfi forseta:

„Eftirfarandi breytingar verða á 20. gr. laganna:

a. 1. mgr. orðast svo: Sjúkratryggingar taka til allra tannlækninga og tannréttinga aldraðra, öryrkja og barna yngri en 18 ára. Þá taka sjúkratryggingar til tannheilbrigðisþjónustu, tannlækninga og tannréttinga sem samið hefur verið um skv. IV. kafla vegna meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma.

b. Við bætist ný málsgrein sem orðast svo:

Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. skal ekki takmarka greiðsluþátttöku sjúkratrygginga vegna tannheilbrigðisþjónustu, tannlækninga og tannréttinga barna. Jafnframt skal ekki takmarka greiðsluþátttöku sjúkratrygginga vegna tannheilbrigðisþjónustu, tannlækninga og tannréttinga aldraðra og öryrkja sem hafa engar aðrar tekjur en lífeyri almannatrygginga sem og aðrar opinberar greiðslur sem tengjast örorku- og ellilífeyrisréttindum.“

2. gr. er svohljóðandi: „Lög þessi öðlast þegar gildi.“

Í greinargerð með frumvarpinu segir, með leyfi forseta:

„Frumvarp þetta var áður lagt fram á 153. og 154. löggjafarþingi (129. mál) og er nú lagt fram að nýju óbreytt.“ — Ég er sem sagt að mæla fyrir þessu máli í þriðja sinn. — „Ein umsögn barst um frumvarpið á 153. löggjafarþingi frá Tannlæknafélagi Íslands sem lýsti yfir stuðningi við framgöngu málsins. Á 154. löggjafarþingi bárust þrjár umsagnir um málið, frá ÖBÍ réttindasamtökum, Landssamtökunum Þroskahjálp og Sjúkratryggingum Íslands. ÖBÍ réttindasamtök og Landssamtökin Þroskahjálp lýstu yfir stuðningi við framgöngu málsins í umsögnum sínum. Sjúkratryggingar bentu á í umsögn sinni að frumvarpið, yrði það samþykkt, myndi fela í sér frávik við þeirri meginreglu að sjúkratryggingar taki aðeins til nauðsynlegrar meðferðar. Flutningsmenn þessa frumvarps telja þó ekki tilefni til að gera breytingar á efni þess þótt það kunni að víkja frá fyrrgreindri meginreglu. Að mati flutningsmanna er nauðsynlegt að gera undantekningu frá meginreglunni í þessu tilviki til að tryggja að jafnræði ríki á milli fólks þegar kemur að tannheilbrigðisþjónustu.“

Í lögum um sjúkratryggingar er kveðið á um að sjúkratryggingar taki til nauðsynlegra tannlækninga aldraðra, öryrkja og barna. Þá taka sjúkratryggingar einnig til nauðsynlegra tannlækninga og tannréttinga í ákveðnum tilvikum, þ.e. vegna afleiðinga alvarlegra meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma.

Þá er greiðsluþátttaka sjúkratrygginga ekki skilyrðislaus. Ráðherra hefur heimild til að takmarka greiðsluþátttöku sjúkratrygginga með reglugerð. Almennt eru nauðsynlegar tannlækningar gjaldfrjálsar fyrir börn en öðru gegnir um tannréttingar. Sem dæmi má nefna að veittur er styrkur að fjárhæð 430.000 kr. …“ — svo að ég tali nú bara íslensku, ef barn þarf að fá upp í sig spangir. Við þekkjum það að börn eru með spangir, það þarf að rétta, það þarf að laga, en almennt er kostnaður við slíkar tannréttingar allmiklu meiri. Þar get ég sagt af eigin reynslu þar sem að einn ungur fjölskyldumeðlimur er nú nákvæmlega að ganga í gegnum þetta tannréttingaferli og það er bara með annan góminn en kostnaðurinn verður ekki undir 1,5 milljónum, a.m.k. miðað við það sem okkur var tjáð í upphafi ferlisins. Það er slíkur munur á því sem Sjúkratryggingar eru að leggja til í þessar aðgerðir og aftur því sem foreldri eða forsjáraðili þarf síðan að reiða fram þegar á hólminn er komið. Svo mikil fjárútlát hafa veruleg áhrif á fjárhag fátækra fjölskyldna. Samfélaginu ber skylda til þess að tryggja að öll börn fái þá heilbrigðisþjónustu sem þau þurfa, án tillits til efnahags. Það kemur sífellt betur í ljós hve mikilvæg tannheilsa er. Þá getur það haft keðjuverkandi neikvæðar afleiðingar ef ekki er gripið til réttra aðgerða á réttum tíma. Því er lagt til að framvegis verði öll tannheilbrigðisþjónusta í þágu barna gjaldfrjáls.

Stór hópur fullorðinna býr við slæma tannheilsu vegna þess að kostnaðurinn er of mikill og tekjur þeirra of lágar. Þeir öryrkjar og eldri borgarar sem reiða sig alfarið á lífeyri almannatrygginga eiga nógu erfitt fyrir með að ná endum saman, eins og allir vita. Það er ekkert fjárhagslegt svigrúm ef tannheilsan versnar. Ég ætla að stökkva aðeins fram hjá merkjum og segja: Þessi kona sem hér stendur er að berjast fyrir því að réttlæti sé náð hvað lýtur að tannheilbrigði þeirra sem eru efnaminni, að við séum ekki alltaf að mismuna fólki eftir efnahag. Ég hafði ekki komist til tannlæknis í tíu ár áður en ég varð öryrkinn á ofurlaunum sem ég er í dag. Það var sannarlega ekki Sjúkratryggingum að þakka að ég fæddist svo heppin að vera með þessar fínu tennur, bara alls ekki. Ég býð engan veginn í það ef ég hefði verið óheppin og hefði þurft að leita á náðir tannlækna til að fá bót á slæmri tannheilsu. Þá væri maður náttúrlega ekki svona tungulipur í dag. Þá væri maður sennilega komin með einhverja lausa góma. Sjúkratryggingar greiða hluta kostnaðar, en fólk í þessari stöðu, fátækur öryrki eða ellilífeyrisþegi sem hefur úr engu öðru að spila en greiðslum almannatrygginga, hefur ekkert bolmagn til að leita sér tannlæknaþjónustu. Það fólk hefur einfaldlega ekki efni á að greiða þann hlut sem á það er lagður. Því er lagt til að öryrkjar og eldri borgarar, sem engar aðrar tekjur hafa en lífeyri almannatrygginga og tengdar greiðslur, fái gjaldfrjálsa tannheilbrigðisþjónustu. Það er sanngjarnt, það er eðlilegt, það er réttlátt. Það er til að koma í veg fyrir mismunun. Það er svo erfitt að vera sífellt að tala um hið augljósa, hið sjálfsagða. Af hverju erum við alltaf að mismuna fólki eftir efnahag? Af hverju er svona ofboðslega dýrt að vera fátækur? Af hverju er alltaf níðst á þeim sem í rauninni höllustum fæti standa? Hvers vegna eru 63 fulltrúar kjörnir á Alþingi Íslendinga? Hvers vegna eigum við ríkisstjórn? Hvert er verkefni þessara ráðherra? Hvað eiga þeir að gera fyrir samfélagið? Ég læt þessar spurningar liggja vegna þess ég veit að þið getið öll svarað þeim. Þeir eru alla vega að gera eitthvað allt annað en að gera ekki neitt eins og þeir eru að gera í dag. Þeir eiga að tryggja að velferð þegnanna sé höfð algerlega í forgangi, hún á að vera þeirra leiðarljós, velferð þegnanna á öllum sviðum og allra þegna, ekki bara sumra.

Núverandi löggjöf tryggir ekki með nægjanlegum hætti að allir þeir sem fæðast með skarð í vör eða klofinn góm njóti stuðnings frá Sjúkratryggingum til að greiða niður kostnað vegna viðhlítandi tannlækninga og tannréttinga. Þetta er vegna þess að það er skilyrði í núgildandi löggjöf að tilteknar aðgerðir séu nauðsynlegar vegna alvarlegra afleiðinga meðfæddra galla. Þetta er matskennt. Það sem einum finnst nauðsynlegt finnst öðrum alls ekki. Eigum við að hafa það svoleiðis að þegar börnin okkar fæðast með galla, með klofinn góm, skarð í vör eða eitthvað slíkt; eigum við að láta það vera eftir geðþótta einhvers bírókrata úti í bæ hvort barnið fær að gangast undir aðgerð sem hjálpar því til framtíðar, sem réttir í rauninni af þennan galla eins og kostur er? Á þetta bara að vera geðþóttaákvörðun? Við í Flokki fólksins segjum nei. Þessi matskenndu viðmið sem lögð eru til grundvallar leiða til þess að réttur til niðurgreiðslu er ekki til staðar nema bara hjá sumum sem fæðast með klofinn góm og/eða skarð í vör. Hópur barna kemst nú ekki í viðhlítandi aðgerðir vegna þess að kostnaðurinn er of hár. Enn og aftur: Sjúkratryggingar Íslands taka ekki þátt í kostnaði þar sem afleiðingar meðfæddra galla hjá þessum tilteknu börnum eru að mati stofnunarinnar ekki nógu alvarlegar og telst aðgerð þar af leiðandi ekki nauðsynleg. Hugsið ykkur, það eru einhverjir sem sitja þarna niðri í þessu stjórnsýslubatteríi Sjúkratrygginga sem ákveða það hvort barn gengur bara áfram með skarð í vör eða klofinn góm eða hvað eina annað sem er vegna þess að þeim finnast aðgerðirnar ekki nauðsynlegar sem barnið á að ganga í gegnum. Barnið er látið sitja uppi með það um ókomna framtíð, bæði með útlitslýti og hversu erfitt það er að tjá sig og annað slíkt með þennan fæðingargalla, með þennan galla. Að hugsa sér, Sjúkratryggingum er bara alveg sama, þeir ætla að meta það hvort gallinn sé nógu alvarlegur til að barn eigi rétt á því að leita nauðsynlegrar hjálpar til að bæta hann eins og kostur er. Börn sem fæðast með klofinn góm og/eða skarð í vör þurfa að ganga í gegnum miklar þrautir. Það er því óboðlegt að hið opinbera geri þeim enn þá erfiðara fyrir. Því er einnig lagt til að sjúkratryggingar taki til tannlækninga og tannréttinga vegna meðfæddra galla óháð alvarleika þeirra og hvort aðgerð teljist nauðsynleg af einhverjum sem þykist vera til þess bær að meta það.

Herra forseti. Ég ætla ekki að fara nákvæmlega út í sérstakar greinar frumvarpsins. Ég hvet bara alla til að kynna sér þetta góða frumvarp og vonast til þess að á það verði hlustað í þetta sinn. Eitt er víst, eins og ég hef sagt, að ég er að mæla fyrir áttunda eða níunda þingmáli Flokks fólksins í þessari viku — nei, nei, ætli við séum ekki komin með ein 12 þingmannamál í þessari viku. Hvert einasta þingmannamál sem við höfum verið að mæla fyrir í Flokki fólksins er til hagsbóta fyrir fólkið í landinu, hvert og eitt einasta, á öllum sviðum í samfélaginu. Ég segi hér og nú, ég er búin að segja það áður í dag, ég er búin að segja það oft áður, þessi vísa verður aldrei nógu oft kveðin: Þegar við í Flokki fólksins verðum búin að taka við stjórnartaumunum eftir næstu kosningar mun verða bragarbót á öllum þeim málefnum sem við höfum verið að mæla fyrir í þessari viku og eigum eftir að mæla fyrir á þessu þingi, eða því sem eftir lifir af því, ef það lafir fram að jólum. Við munum aldrei mismuna fólki, hvorki vegna fötlunar eða efnahags eða búsetu, aldrei nokkurn tímann. Með Flokki fólksins þarf enginn að bíða eftir réttlætinu, enginn.