155. löggjafarþing — 14. fundur,  10. okt. 2024.

þingleg meðferð EES--mála.

80. mál
[15:44]
Horfa

Flm. (Diljá Mist Einarsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég afsaka töfina en ég hefði prentað tvisvar sinnum út sömu ræðu og eflaust ekki fattað það fyrr en ég væri hálfnuð í gegn því að hér flyt ég aðra ræðuna í röð um gullhúðun.

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um að Alþingi álykti að við setningu laga um EES-mál verði að jafnaði, bara almennt, ekki gengið lengra en lágmarkskröfur viðkomandi EES-gerðar kveða á um. Að öðrum kosti skuli rökstyðja sérstaklega slíka tilhögun. Ég lagði málið fyrst fram á síðasta þingvetri en fékk ekki að mæla fyrir því og mæli því fyrir því hér í fyrsta sinn. Auk mín eru meðflutningsmenn á málinu Sjálfstæðismennirnir og hv. þingmenn Óli Björn Kárason, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Hildur Sverrisdóttir, Birgir Þórarinsson, Njáll Trausti Friðbertsson, Bryndís Haraldsdóttir, Ásmundur Friðriksson, Jón Gunnarsson og Vilhjálmur Árnason. Það sést á þessum lista yfir þessi tvö mál í röð að Sjálfstæðismönnum er mjög umhugað um EES-samstarfið og að það gangi snurðulaust fyrir sig.

Það urðu ákveðin vonbrigði fyrir mig, þegar ég hóf störf á virðulegu Alþingi, að verða þess áskynja hvernig utanumhald og vinnubrögð voru í tengslum við innleiðingu EES-gerða á Alþingi. Við höfum sett okkur ákveðnar reglur á þinginu og við höfum reglur í þingsköpum. Forsætisnefnd hefur sérstaklega stafað þetta út í ákveðnum vinnureglum varðandi innleiðinguna og ég varð þess mjög fljótlega áskynja að ekki væri nógu vel að gert. Þegar ég tók síðan við sem formaður utanríkismálanefndar hér á þinginu var það mitt fyrsta verk sem formaður utanríkismálanefndar að senda öllum ráðherrunum bréf þar sem ég áréttaði hreinlega að farið skyldi að þessum reglum. Þá var ég í rauninni bara að stafa út fyrir ráðherrunum vilja þingsins, sem hefur verið greyptur í lög og reglur, og óska eftir því að þeir færu eftir þessum reglum. Það leið ekki á löngu, eftir að ég var búin að senda þetta bréf, þar til áfram bárust mál hingað inn í þingið þar sem ekki var gætt að þessum reglum.

Það er nefnilega heila málið, virðulegi forseti, að þrátt fyrir að við höfum búið svona ákveðið um hnútana þá þykir okkur flutningsmönnum tilefni til þess með þessari tillögu að leggja áherslu á, eins og við höfum gert í bæði lögum og reglum en viljum árétta, að við innleiðingu EES-gerða verði ekki gengið lengra en nauðsynlegt er til að fullnægja þjóðréttarlegum skuldbindingum sem leiða af EES-samningnum nema sérstakar ástæður standi til þess og þegar slík tilvik koma upp skuli það rökstutt sérstaklega. Þetta er einfaldlega árétting á 37. gr. laga um þingsköp Alþingis. Í reglum um þinglega meðferð EES-mála, sem ég hef þegar vísað í og eru settar af forsætisnefnd, kemur sömuleiðis fram að lagafrumvörp til innleiðingar á EES-gerðum skuli að meginstefnu aðeins fela í sér þær breytingar sem nauðsynlegar eru til að endurspegla þá EES-skuldbindingu sem við á. Varði frumvarpið fleiri atriði en innleiðingu gerðar skal tilgreina sérstaklega í greinargerð hvaða greinar frumvarpsins eru til innleiðingar auk þess sem ber að rökstyðja hvers vegna var talið nauðsynlegt að víkja frá meginreglu um hrein innleiðingarfrumvörp, sem sagt um frumvörp sem fela það í sér að verið er að innleiða skuldbindingar samkvæmt EES-samstarfinu, að það sé ekki verið að grauta öllu saman og flækja þannig fyrir löggjafanum og má út skilin á milli þess sem stafar frá íslenskum stjórnvöldum eða löggjafanum og frá valdinu í Brussel.

Þrátt fyrir framangreind tilmæli og fyrirmæli í lögum er ljóst að pottur er víða brotinn, eins og ég hef þegar rakið hér og varð áskynja við störf mín á virðulegu Alþingi. Íslensk stjórnvöld hafa nefnilega ríka tilhneigingu til að herða á íþyngjandi EES-gerðum við innleiðingu þeirra, auk þess sem upplýsingagjöf til þingsins varðandi þetta er oft ábótavant. Þetta eru því tvenns konar vandamál; það er annars vegar oft tilhneiging til þess að ganga lengra en við þurfum samkvæmt EES-samstarfinu og hins vegar er löggjafinn, Alþingi, ekki upplýst nægilega um þessa tilurð. Þetta hefur komið fram og verið bent á í þó nokkrum skýrslum, m.a. skýrslu dr. Margrétar Einarsdóttur, um innleiðingu EES-gerða í Landsrétt, sem var lögð fram á Alþingi á síðasta þingvetri og var svar við beiðni minni um skýrslu frá hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Rannsókn dr. Margrétar leiddi m.a. í ljós að gullhúðun væri beitt í talsverðum mæli með þeim afleiðingum að meira íþyngjandi regluverk hefði skapast en þörf var á miðað við lágmarkskröfur viðkomandi EES-gerða. Svo að farið sé nánar út í þá niðurstöðu var það í yfir 40% tilvika sem dr. Margrét rak sig á að í málaflokki hæstv. umhverfisráðherra væri gengið lengra en viðkomandi EES-gerð kvað á um.

Það er mikilvægt að við göngum ekki lengra við innleiðingu á EES-gerðum en þörf er á. Innlend fyrirtæki og neytendur eiga að sitja við sama borð og aðrir á innri markaði Evrópusambandsins, auk þess sem íþyngjandi og óskilvirkar reglur, sem eru sagðar stafa frá EES-samstarfinu, koma óorði á samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Ég veit að ég er nýbúin að segja þetta hér úr ræðustól og ég hef sagt þetta margoft áður en þetta verður ekki of oft sagt: Það er fullkomlega eðlilegt að greint sé á milli skuldbindinga sem stafa frá EES-samstarfinu og annarra skuldbindinga eða bara reglusetningargleði íslenskra stjórnvalda.

Reyndar telja flutningsmenn nauðsynlegt að gert sé ráð fyrir því að í sumum tilvikum kunni að vera ástæða til að ganga lengra en lágmarkskröfur kveða á um til að uppfylla EES-skuldbindingar Íslands. Í þeim efnum má sérstaklega nefna að EES-gerð getur haft í för með sér ívilnandi áhrif fyrir einstaklinga eða lögaðila þar sem þeim kann að vera tryggður betri eða meiri réttur en ella. Það er því ólíku saman að jafna þegar verið er að leggja óþarfa byrðar á íslenskt samfélag samhliða innleiðingu EES-gerða. Þar sem lög og reglur Alþingis hafa ekki dugað til að koma skikki á þessa framkvæmd telja flutningsmenn nauðsynlegt að Alþingi árétti þetta sérstaklega með þessum hætti og sendi þannig skýr skilaboð. Það er auðvitað miður að löggjafanum, Alþingi, sé ekki sýnd tilhlýðileg virðing að þessu leyti en vilji stjórnvöld ganga lengra en lágmarkskröfur viðkomandi EES-gerðar kveða á um er þeim í lófa lagið að rökstyðja þá tilhögun sérstaklega eða bara leggja fram sérstök frumvörp þess efnis sem eru þá ekki innleiðingarfrumvörp.

Virðulegi forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að málið verði sent hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.