155. löggjafarþing — 15. fundur,  17. okt. 2024.

Tilkynning forsætisráðherra um þingrof og alþingiskosningar.

[10:33]
Horfa

forsætisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti.

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Forsætisráðherra hefur tjáð mér að það sé mat hans eftir samtöl við formenn Framsóknarflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs að flýta eigi almennum kosningum til Alþingis.

Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með vísan til 24. gr. stjórnarskrárinnar, nr. 33/1944, eins og henni var breytt með 5. gr. stjórnskipunarlaga, nr. 56/1991, sbr. 4. mgr. 23. gr. kosningalaga, nr. 112/2021, er með skírskotun til framanritaðs ákveðið að þing verði rofið 30. nóvember 2024 og að almennar kosningar til Alþingis fari fram sama dag.

Gjört á Bessastöðum, 17. október 2024,

Halla Tómasdóttir.

 

_________________

Bjarni Benediktsson.

 

Forsetabréf um þingrof og almennar kosningar til Alþingis.“

Virðulegi forseti. Komið er að leiðarlokum sögulegs stjórnarsamstarfs, samstarfs þvert á hina hefðbundnu ása stjórnmálanna. Langlífasta þriggja flokka ríkisstjórn lýðveldissögunnar, svo miklu munar. Ríkisstjórnin hefur verið skipuð fólki sem sameinaðist um að stuðla að framförum á Íslandi þrátt fyrir ólíka sýn á mörg mál. Það hefur verið heiður að starfa með hverju og einu þeirra. Við höfum staðið saman um að vinna að bættum kjörum, grunnþjónustu og innviðum, vaxandi hagsæld, meiri nýsköpun og fleiri tækifærum, að samfélagi þar sem fólk vill freista gæfunnar, eignast fjölskyldu, ala upp börn og eldast. Hér eru aðstæður ekki fullkomnar frekar en annars staðar en við stöndum sannarlega hvað fremst meðal þjóða og í tíð þessarar ríkisstjórnar höfum við lifað mikið framfaraskeið. Um þetta vitna allar mælingar og samanburður.

En við höfum sömuleiðis lifað hamfaraskeið. Það féll í skaut þessarar stjórnar að takast á við heimsfaraldur, stöðu okkar í breyttum heimi þar sem stríð er rekið handan við hornið í Evrópu og jarðelda sem sviptu þúsundir Íslendinga heimilum sínum og atvinnu. Af þessu hafa störf okkar um margt litast í áherslum og útgjöldum. Ég segi það fullum fetum að ég er stoltur af því hvernig við höfum virkjað samstöðuna margítrekað, við Íslendingar, þegar á reynir.

Virðulegi forseti. Í hátíðarræðu á Austurvelli þann 17. júní á 80 ára afmæli lýðveldisins minntist ég þess hvernig kynslóðirnar sem á undan komu lögðu grunn að framúrskarandi samfélagi nútímans. Sá grunnur var ekki lagður með því að lifa á afrekum fortíðar heldur með framsýni, kjarki og baráttu fyrir stöðugum framförum. Þótt ríkisstjórnin geti gengið stolt frá borði var erindi hennar komið á endastöð. Ég leit svo á að ég væri að bregðast sjálfum mér, mínum flokki og umfram allt landsmönnum öllum með því að þykjast geta leitt stjórnina áfram án sáttar um okkar stærstu mál. Á það jafnt við um áframhaldandi styrkingu landamæranna og frekari uppbyggingu í orkumálum en ekki síður blasti við í sífellt meiri mæli grundvallarmunur á sýn okkar þegar kom að þáttum eins og aðhaldi í ríkisútgjöldum, málum sem varða uppbyggingu nýrra atvinnugreina og frelsi einstaklingsins. Að svo komnu máli taldi ég ekki annan kost í stöðunni en að leggja framhaldið í dóm kjósenda.

Við stjórnmálamenn eigum ekki að kvarta yfir snemmbúnum kosningum heldur fagna tækifærinu sem þeim fylgir. Tíma okkar er vel varið á ferð um landið meðal fólks um öll kjördæmin, hlusta á frásagnir fólks, hlusta á áskoranir fólks og tillögur að lausnum. Við berjumst í framhaldinu fyrir því að leiða þær hér fram og samþykkja í þinginu og fáum tækifæri til að færa hugmyndir fólksins inn í þennan sal á nýju kjörtímabili.

Lýðræðið er ekkert sjálfsagt. Bent hefur verið á að við Íslendingar tilheyrum aðeins 8% mannkyns sem búa við það sem kallað er fullt lýðræði. Vöndum okkur í komandi kosningabaráttu og varðveitum hina lýðræðislegu umræðuhefð sem er sterk hér á landi og hún er okkur gríðarlega dýrmæt.

Virðulegi forseti. Að lokum vil ég hvetja þingheim til þess að nýta vel þann stutta tíma sem hér er eftir. Áframhaldandi lækkun verðbólgu og vaxta skiptir heimilin og fyrirtækin langmestu um þessar mundir. Okkar stærsta verkefni er að sýna áfram aðhald í ríkisfjármálum eins og það birtist í fjárlagafrumvarpinu sem fram er komið. Við skulum sameinast um að samþykkja aðhaldssöm fjárlög fyrir árið 2025. Þótt hér sé enginn starfandi meiri hluti þá er verkið þessu þingi alls ekki ofvaxið. Ljúkum störfum okkar hér með sóma, sinnum þeim starfa sem landsmenn völdu okkur til og höldum svo út í drengilega kosningabaráttu.