155. löggjafarþing — 15. fundur,  17. okt. 2024.

Tilkynning forsætisráðherra um þingrof og alþingiskosningar.

[10:51]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Sjö ára samstarf er komið að leiðarlokum. Það var mat okkar í Framsókn að það hefði verið hægt að ná saman um mikilvæg mál og halda þessu samstarfi gangandi áfram. Sú ákvörðun Sjálfstæðisflokksins að slíta sjö ára samstarfi og óska eftir þingrofi var tekin einhliða og án samráðs við hina stjórnarflokkana.

Þessi ríkisstjórn hefur ekki tekist á við eina, ekki tvær heldur þrjár óvæntar áskoranir. Í öllum tilvikum tókst að leiða saman sérfræðinga og hagaðila og grípa til viðeigandi ráðstafana við einstakar aðstæður og landið er nú loksins farið að rísa og það er bjart fram undan. Verðbólgan er á niðurleið og vextir að lækka.

En þetta er niðurstaðan og við í Framsókn horfum ekki um öxl. Við horfum fram á veginn. Við lítum til þeirra fjölmörgu tækifæra sem blasa við hér á Íslandi. Við erum full tilhlökkunar og hlökkum til samtals við kjósendur um öll þau góðu verk sem við höfum framkvæmt á kjörtímabilinu. Búið er að gera umtalsverðar breytingar á heilbrigðiskerfinu en heilbrigðismálin brunnu mjög á kjósendum í síðustu kosningum. Samningum hefur verið lokið við nánast alla er tengjast heilbrigðismálum, styrkur vegna kostnaðar við tannréttingar hefur aukist og fleira og allt hugsað með eitt markmið að leiðarljósi; að lækka heilbrigðiskostnað íbúa þannig að allir standi jafnfætis óháð efnahag og búsetu. Örorkubótakerfið hefur einnig verið stórbætt og bjart er fram undan í efnahagsmálum og það er mikilvægt að verja þann árangur. Við göngum full tilhlökkunar til verka okkar og einhuga um að gera enn betur.

Mikilvægt er að þingið nái nú góðri samstöðu um að ljúka mikilvægum málum sem þarf að ljúka svo halda megi áfram að loknum kosningum vinnunni við að gera Ísland og íslenskt samfélag enn betra en það er í dag.