Tilkynning forsætisráðherra um þingrof og alþingiskosningar.
Hæstv. forseti. Nú liggur fyrir að kosningar verða haldnar 30. nóvember næstkomandi. Þetta eru gríðarlega mikilvægar kosningar því með þeim gefst okkur tækifæri til þess að ákveða hvers konar samfélag við viljum verða. Fyrir okkur Pírötum er valið skýrt. Við getum valið frjálst og öruggt samfélag fyrir öll, samfélag þar sem viðurkennt er að félagslegt öryggi er helsti vísirinn að líkamlegu og andlegu öryggi okkar allra, samfélag sem býður upp á öruggt þak yfir höfuðið fyrir öll með þéttu öryggisneti sem tryggir að enginn er skilinn eftir á jaðrinum. Þess vegna vilja Píratar byggja samfélag sem virðir og verndar mannréttindi fyrir öll, alltaf, ekki bara fyrir suma og ekki bara stundum. Píratar vilja samfélag sem býður upp á örugga heilbrigðisþjónustu, þar með talið geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og fullorðna, sama hvar fólk er statt í lífinu og á landinu. Börnin okkar eiga framtíðaröryggi sitt undir því að við sameinumst um markvissar aðgerðir í loftslagsmálum, ekki seinna heldur strax.
Herra forseti. Píratar hafa alltaf barist fyrir frjálsu og lýðræðislegu samfélagi. Tjáningarfrelsið er ein mikilvægasta stoðin í slíku samfélagi og þar er sannarlega verk að vinna. Við höfum andmælt aðför lögreglunnar að fjölmiðlafrelsinu með forkastanlegum vinnubrögðum sínum í garð blaðamanna sem sögðu okkur frá skæruliðadeild Samherja. Við höfum alltaf og munum áfram taka slaginn fyrir tjáningarfrelsi því án þess búum við ekki í frjálsu samfélagi. Frelsið er stærra en frelsið til þess að græða á daginn og grilla á kvöldin. Við þurfum frelsi til að taka ákvarðanir um eigin líkama, til þess að vera við sjálf og við þurfum að vera frjáls frá afkomuótta og sligandi afborgunum af húsnæðislánum eða himinhárri leigu til að hafa rými og pláss til að taka þátt í lýðræðissamfélagi.
Forseti. Fyrir síðustu kosningar skrifaði formaður Sjálfstæðisflokksins grein þar sem fram kom, með leyfi forseta:
„Það skiptir öllu hvort eftir kosningar taki við sundurlaus samtíningur margra flokka eða öflug ríkisstjórn sem getur tekist á við stór verkefni og hefur burði til að leysa áskoranir til framtíðar.“
Í sömu grein sagði formaðurinn að yrði Sjálfstæðisflokkurinn ekki við völd myndi verðbólgan fara upp úr öllu valdi og afborganir af húsnæðislánum stóraukast. Eflaust hefur kjósendur Sjálfstæðisflokksins ekki grunað að ráðherrann færi með öfugmæli og við tæki sundurlaus samtíningur margra flokka; Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og VG, þar sem verðbólgan færi upp úr öllu valdi og húsnæðislánin líka.
Sjálfstæðismenn buðu fram undir slagorðinu land tækifæranna, sem segja má að hafi raungerst fyrir um 10% þjóðarinnar, efsta lagið í samfélaginu. Sá hópur hefur grætt ævintýralega mikla peninga í tíð þessarar ríkisstjórnar og sópað til sín æ stærri sneið af kökunni. Á meðan millistéttin og neðri tekjutíundir sligast undir húsnæðiskostnaði og aukinni skattbyrði hefur efsta tíundin haft tækifæri til að græða stjarnfræðilegar upphæðir í fjármagnstekjur.
Kæru kjósendur. Eftir rúmar sex vikur fáum við tækifæri til að hafna íhaldinu og hræðsluáróðri þess í eitt skipti fyrir öll. Við getum hafnað þeirri mýtu að verði stóriðjunni ekki að ósk sinni um að hér verði virkjuð hver einasta lækjarspræna slokkni ljósin á öllu landinu. Við getum hafnað þeirri heimssýn að nú þurfum við víggirðingar hringinn í kringum landið og lögreglumenn með byssur á hverju horni til að passa okkur frá hvert öðru. Við getum hafnað ríkisstjórn sem hefur brugðist sínu hlutverki að gera allt sem í hennar valdi stendur til að stöðva þjóðarmorðið á palestínsku þjóðinni. Þá getum við hafnað því að hagsmunaaðilar í iðnaði og sjávarútvegi séu best til þess fallnir að vernda auðlindir okkar og náttúru og stjórna öllu bak við tjöldin. Þess í stað getum við valið mennsku og mannúð, mannréttindi, öryggi og frelsi fyrir öll. Ég hvet ykkur til að vanda valið.