Tilkynning forsætisráðherra um þingrof og alþingiskosningar.
Virðulegi forseti. Já, hingað erum við komin. Auðvitað hefðum við öll kosið að þessi ríkisstjórn hefði skilið aðeins betur við en mér líður, sjálfsagt eins og okkur langflestum, eins og við séum almennt að losna undan leiðindum og einhverjum grámyglulegum drunga. Viðbrögðin úti í samfélaginu við þessum stjórnarslitum eru slík að það er alveg augljóst að þetta endalausa brambolt og hringlandaháttur stjórnarflokkanna hefur hvílt á þjóðinni eins og mara, enda tekur það á að vera í stormasamri sambúð þar sem enginn er hamingjusamur og lítið þokast áfram. En nú er þessi sundurleita ríkisstjórn frá og við þjóðinni okkar blasir tækifæri til að hefja nýtt upphaf, og það er auðvitað gleðilegt. Það færir manni kraft, og vekur hjá okkur öllum von og birtu, að geta loksins horft fram á við, að þjóðin fái nú tækifæri til að velja sér kjarkmikla forystu, forystu sem gengur í verkin. Um það er skýrt ákall í samfélaginu hvert sem við förum. Og við í Viðreisn erum reiðubúin til að svara því kalli. Slík forysta, slík ríkisstjórn, sem lætur verkin tala, verður ekki mynduð nema með Viðreisn innanborðs. Við erum flokkur sem talar fyrir og trúir á raunverulegar aðgerðir og munum ráðast í mikilvægar breytingar sem hafa áhrif á daglegt líf fólks, verulega venjulegs fólks, sem veit að það er engin glóra í því að greiða svimandi háa vexti af húsnæðislánum og búa aldrei við fyrirsjáanleika. Það er ekkert náttúrulögmál eða óbreytanlegur fasti að fólk sjái ekki fram á að koma sér þaki yfir höfuðið, sama hvað það leggur á sig, eða sjái mánaðarlaunin fuðra upp á verðbólgubáli í þessum nöturlega krónuveruleika. Það er heldur enginn óbreytanlegur fasti að það sé einungis á færi þeirra efnameiri að huga að andlegri heilsu, sama hvað það leggur á sig — eða fá sjálfsagða heilbrigðisþjónustu, hún á ekki að vera eingöngu fyrir freka, ríka eða vel tengda. Þessu mun Viðreisn breyta, þessu þorir Viðreisn að breyta. Veikleikar þeir sem blasa við í íslensku samfélagi eru að vissu leyti heimasmíðaðir. Þetta þarf ekki að vera svona. Gömlu flokkarnir vilja setja 80 milljarða í aukavaxtagreiðslur ríkisins, í vexti. Við viljum nota þá fjármuni í fólkið okkar, í heilbrigðiskerfið, í menntakerfið, í það að taka utan um venjulegt fólk og byggja upp innviði en gömlu flokkarnir vilja setja þessa 80 milljarða í vexti. Við viljum ekki gera það, við sem erum í Viðreisn.
Viðreisn er flokkur sem setur hag almennings og líðan fólks alltaf á fremsta bekk og meinar það. Við erum flokkur sem neitar að umgangast fjárhirslu ríkisins, peninga almennings, eins og það sé endalaust hægt að keyra allt á yfirdrætti. Höfum hugrekki til að forgangsraða fjármunum, einfalda kerfin — og til hvers? Til að geta tekið utan um fólk, venjulegt fólk eins og ungu konuna í Kringlunni sem sagði við mig: Þorgerður, ég vil bara geta flutt að heiman einhvern daginn, þó að mamma og pabbi séu æðisleg. Og líka: Á starfstíma þessarar ríkisstjórnar hefur ekkert breyst; frá því að pabbi veiktist og fór inn á hjúkrunarheimili, var á þvælingi um bráðamóttökuna, Vífilsstaði, þá hefur nákvæmlega það sama gerst með mömmu, það hefur ekkert breyst. Gamla fólkið er á þvælingi um allt kerfið af því að þessi ríkisstjórn hefur ekki tekið til hendinni.
Við segjum sem sagt: Ekkert af þessu er óbreytanlegur fasti. Við viljum vinna eftir framtíðarsýn sem byggir m.a. á traustum gjaldmiðli. Við viljum ekki þurfa að sætta okkur við sleðahátt í geðheilbrigðismálum, sinnuleysi í menntamálum eða þetta skeytingarleysi gagnvart eldri borgurum. Þetta er valkosturinn sem Viðreisn leggur á borðið. Við stígum sterk og keik inn í þessa kosningabaráttu og við heitum því að hrista upp í klossföstum kreddum um að okkur farnist best ef við gerum sem minnst og breytum helst bara akkúrat engu.
Það sem íslensk þjóð þarf núna, virðulegur forseti, er von. Hún þarf að finna að við sem stöndum í stjórnmálum getum verið raunverulegt hreyfiafl breytinga. Og það er þessi von sem við í Viðreisn viljum bjóða upp á sem valkost nú í lok nóvember. Við munum einhenda okkur í að taka til við að ráðast á vaxtakostnaðinn. Við munum taka til í rekstri ríkisins. Við munum gera gangskör að geðheilbrigðismálum og menntamálum og efla löggæslu. Þar eru okkar áherslur og það er það sem fólk fær þegar það kýs Viðreisn. Við erum klár í verkin og göngum glaðbeitt inn í komandi kosningabaráttu. — Gleðilegt nýtt upphaf, kæra þjóð!