Tilkynning forsætisráðherra um þingrof og alþingiskosningar.
Herra forseti. Loksins er því lokið, lengsta dauðastríði nokkurrar ríkisstjórnar í íslenskri stjórnmálasögu sem staðið hefur ekki bara undanfarna daga og vikur heldur undanfarin ár því að allt frá því að skjólinu sem Covid veitti þessari ríkisstjórn til að framlengja líf hennar lauk og við fórum aftur að ræða stjórnmál á Íslandi hefur blasað við betur og betur með hverri vikunni og hverjum mánuðinum að þetta var vonlaus ríkisstjórn. Hennar verður ekki saknað og þetta hefði auðvitað átt að gerast löngu fyrr því þótt mikið hafi verið talað um ósamstöðu innan ríkisstjórnarinnar, ágreining, þá má segja að þótt vont sé þeirra rifrildi var verri þeirra samstaða því það voru allt of mörg mál sem þessi ríkisstjórn náði saman um sem voru til óþurftar og við hefðum betur sloppið við. Þau náðu líka saman um að nýta ekki eða hindra mörg þeirra tækifæra sem hefði mátt líta á þessu kjörtímabili.
Þessi framhaldsútgáfa ríkisstjórnarinnar eða samstarf þessara flokka var kynnt þannig til sögunnar að hún ætti að snúast um einkum þrjú mál; að taka á útlendingamálum, ríkisútgjöldum og þar með efnahagsmálunum og orkumálum. Dagurinn var varla liðinn, a.m.k. ekki næsti dagur, áður en félagar hins nýja forsætisráðherra í ríkisstjórninni tóku að útskýra að þeir væru ekki sammála því að þessi ríkisstjórn ætti endilega að snúast um þá hluti. En hún reyndi, skakklappaðist áfram þangað til allir stjórnarflokkarnir allt í einu gerðu sér grein fyrir því, kannski nokkurn veginn á sama tíma, að það þýddi ekkert að bíða bara og vona og það væri vonlaust að fara í kosningar með þessa ríkisstjórn saman. Það væri betra að fara í kosningar með hana brotna.
En við megum ekki gleyma þessu tímabili þegar kemur að því að kjósa, því sem gengið hefur á hér undir stjórn þessara flokka með vaxandi bákni, fjölgun starfa aðallega í opinbera geiranum, meira en í einkageiranum sem þarf að standa undir velferðinni og rekstri hins opinbera. Samgöngukerfið hefur verið vanrækt og látið grotna niður en um leið farið í ótrúlegar delluhugmyndir eins og borgarlínu þar sem þessi ríkisstjórn, ekki hvað síst Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur, ótrúlegt en satt, hafa eytt og samþykkt að eyða meiri og meiri peningum í stefnu Samfylkingarinnar í Reykjavík og auk þess gefa eina verðmætustu eign ríkisins inn í nýtt félag, enn eina stofnun, enn eitt nýtt ríki í ríkinu sem tók völdin af ríkisstjórninni í málaflokknum.
Já, stofnununum fjölgar og kerfið þenst út. Á sama tíma hefur þessi ríkisstjórn sýnt kæruleysi gagnvart fullveldi landsins, sýnt kæruleysi gagnvart húsnæðismarkaðnum og ástandinu þar sem er auðvitað afleiðing af óstjórn á öðrum sviðum. Stjórnleysið í útlendingamálum hefur haft áhrif á alla aðra málaflokka, m.a. menntakerfið og heilbrigðiskerfið. Það er sérstakt rannsóknarefni hvernig þessi ríkisstjórn gat aukið útgjöld í þessa málaflokka eins mikið og raun ber vitni án þess að fá neitt fyrir, að ná t.d. að reka hér eitt dýrasta grunnskólakerfi í heimi og fá næstlakasta árangur í Evrópu. Það þarf að skoða hvernig þessi kerfi eru rekin og það þarf að laga það.
Það væri hægt að gera þau mistök að halda að þetta væri bara allt í lagi næst ef menn reyna meira af því sama en nú er tækifæri til að gera hlutina öðruvísi og betur. Þá megum við ekki gleyma reynslu liðinna ára. Þetta er einstakt tækifæri sem nú gefst til að breyta stjórnarfarinu í landinu og úrslit næstu kosninga munu hafa mikil áhrif á alla framtíð Íslands, til allrar framtíðar. Næsta ríkisstjórn þarf nefnilega að verja þjóðina og fullveldið. Hún þarf að verja réttarríkið og nýta þau ótal vannýttu tækifæri sem hafa beðið og það mun Miðflokkurinn gera.