155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

starfsáætlun þingsins.

[10:30]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Eftir fund með formönnum þingflokka og fund forsætisnefndar í gær var starfsáætlun Alþingis fyrir 155. löggjafarþing felld úr gildi.

Á fundunum í gær var farið yfir fyrirkomulag þinghaldsins á næstunni, bæði þing- og nefndafundi, og var ágætt samkomulag í meginatriðum um það hvernig að þeim málum skuli staðið. Það er ljóst að nú reynir á Alþingi við meðferð og afgreiðslur nokkurra veigamikilla mála. Forseti væntir góðs samstarfs við forsætisnefnd, formenn þingflokka og þingmenn alla um þingstörfin næstu daga og vikur.