155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

skattar og gjöld.

300. mál
[10:33]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér með fyrir frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld o.fl.. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á allmörgum lögum sem að mestu leyti varða skatta og gjöld. Við vinnslu þess var haft samráð við dómsmálaráðuneytið, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið, heilbrigðisráðuneytið, innviðráðuneytið, matvælaráðuneytið, menningar- og viðskiptaráðuneytið, Rannís, Seðlabanka Íslands og Skattinn vegna einstakra ákvæða frumvarpsins.

Í fyrsta lagi er það starfsemi til almannaheilla og almannaheillaskrá Skattsins. Lagðar eru til breytingar á lögum um tekjuskatt þannig að ekki leiki vafi á því að lögaðila, sem hefur með höndum starfsemi sem telst til almannaheilla og skráður er í almannaheillaskrá Skattsins, er einungis heimilt að stunda takmarkaða atvinnustarfsemi til fjáröflunar innan þeirra marka sem tilgreind eru í samþykktum hans og leiða má beint af tilgangi lögaðilans og atvinnustarfsemin hefur aðeins óverulega fjárhagslega þýðingu með tilliti til heildartekna hans eða er óverulegur hluti heildarstarfsemi. Jafnframt er lögð til reglugerðarheimild svo setja megi frekari skilgreiningar á starfsemi til almannaheilla og þau skilyrði sem uppfylla þarf fyrir skráningu í almannaheillaskrá Skattsins.

Í öðru lagi eru það áreiðanleikakannanir vegna alþjóðlegra skuldbindinga um upplýsingaskipti á sviði skattamála. Í frumvarpinu er lögð til breyting til að styrkja gildandi lagagrundvöll um viðurlög lögaðila, samkvæmt lögum um tekjuskatt, í þeim tilvikum þegar upplýsingagjöf fjármálastofnana vegna áreiðanleikakannana í skattamálum til skattyfirvalda er ábótavant. Er hér verið að koma til móts við athugasemdir frá jafningjamati OECD en Ísland hefur skuldbundið sig til að innleiða lágmarkskröfur um upplýsingaskipti undir svokallaðri BEPS-aðgerðaáætlun sem felur m.a. í sér endurskoðun annarra ríkja á regluverki Íslands.

Í þriðja lagi eru það fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða. Í frumvarpinu er lagt til að lögfest verði til frambúðar heimild lífeyrissjóða til að eiga allt að 35% í stað 20% af hlutdeildarskírteinum eða hlutum í sjóðum um sameiginlega fjárfestingu sem eingöngu fjárfesta í litlum eða meðalstórum fyrirtækjum skv. lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, eða einstakri deild þeirra, þó aldrei umfram 1% heildareigna sinna í hverjum sjóði. Núgildandi heimild fellur að óbreyttu niður 1. janúar 2025. Sú tillaga sem lögð er til í frumvarpinu er að meginefni í samræmi við núgildandi tímabundna heimild þó að því leyti að lagt er til að skilyrðið um fimm ára innlausnartíma fjárfestingar verði fellt brott.

Í fjórða lagi er það skattskyld sala á þjónustu leiðsögumanna til erlendra fyrirtækja til notkunar hér á landi. Þá er komið að breytingum á lögum um virðisaukaskatt þannig að þau nái einnig til sölu á þjónustu leiðsögumanna til atvinnufyrirtækja, sem hvorki hafa heimilisfesti hér á landi né stunda hér atvinnustarfsemi frá fastri starfsstöð, enda sé þjónustan nýtt hér á landi. Það þýðir að leiðsögumanni ber að innheimta virðisaukaskatt þegar hann selur erlendu atvinnufyrirtæki leiðsögn sem nýtt er hér á landi. Á móti kann hið erlenda atvinnufyrirtæki að eiga rétt á að fá endurgreiddan þann virðisaukaskatt sem það hefur greitt vegna kaupa á þjónustu leiðsögumanna hér á landi til atvinnustarfsemi sinnar erlendis enda séu uppfyllt skilyrði reglugerðar um endurgreiðslu virðisaukaskatts til erlendra fyrirtækja. Þá er lagt til að tilvísun „til vara“ í lögunum falli brott þar sem töluliðurinn í heild sinni fjallar eingöngu um sölu á þjónustu. Sala á vörum innan lands er ætíð skattskyld hér á landi.

Í fimmta lagi varðar þetta það að fjölga aðilum sem skulu nota almanaksmánuð sem uppgjörstímabil virðisaukaskatts. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um virðisaukaskatt í tengslum við skráningu á virðisaukaskattsskrá. Samkvæmt gildandi ákvæði er einstaklingum eða félögum, eigendum, stjórnarmönnum eða framkvæmdastjórum þess, við nýskráningu og endurskráningu á virðisaukaskattsskrá skylt að nota hvern almanaksmánuð sem uppgjörstímabil í að minnsta kosti tvö ár frá skráningu, ef þeir hafa orðið gjaldþrota á næstliðnum fimm árum fyrir skráningu. Með breytingunni nú mun ákvæðið einnig ná til félaga og einstaklinga sem óska eftir skráningu á virðisaukaskattsskrá og hafa verið eigendur, stjórnarmenn eða framkvæmdastjórar í gjaldþrota félögum einhvern tíma á síðustu tólf mánuðum fyrir gjaldþrot þeirra. Í tilviki félaga er miðað við að félag hafi orðið gjaldþrota á næstliðnum fimm árum fyrir skráningu á virðisaukaskattsskrá. Breytingin er liður í því að styrkja áhættumiðað eftirlit Skattsins með þeim sem eru skráðir á virðisaukaskattsskrá.

Í sjötta lagi varðar þetta aðgang tollyfirvalda að efni úr myndavélakerfum þeirra sem viðhafa slíka vöktun á svæðum þar sem tolleftirlit fer fram. Í frumvarpinu er lagt til að kveðið verði sérstaklega á um það í tollalögum að tollyfirvöld skuli hafa aðgang að rafrænni vöktun og upptökum úr myndavélakerfum þeirra sem viðhafa vöktun á svæðum þar sem lögbundið tolleftirlit skuli viðhaft. Einnig að tollyfirvöldum verði heimilt að taka upp eða taka afrit af því efni sem þau fá aðgang að. Einnig er lagt til að kveðið verði á um stjórnvaldssektir veiti aðilar tollyfirvöldum ekki aðgang að umræddum upplýsingum. Enn fremur er lagt til að áréttað verði að tollyfirvöldum sé jafnframt heimilt að viðhafa sjálf rafræna vöktun og taka upp efni úr henni eftir því sem þau telja sig þurfa.

Í sjöunda lagi er það greiðslufrestur á aðflutningsgjöldum við uppgjör þeirra í tilvikum bráðbirgðatollafgreiðslu og tollafgreiðslu á grundvelli neyðarleyfa. Samkvæmt tollalögum njóta þeir sem skráðir eru á virðisaukaskattsskrá greiðslufrests, svokallaðrar tollkrítar, á aðflutningsgjöldum enda séu þeir í skilum við ríkissjóð. Greiðslufrestur gildir ekki þegar um er að ræða bráðabirgðatollafgreiðslu eða tollafgreiðslu á grundvelli neyðarleyfis. Lagt er til að því verði breytt þannig að heimilt verði að veita greiðslufrest við uppgjör á aðflutningsgjöldum vegna bráðabirgðatollafgreiðslu eða tollafgreiðslu á grundvelli neyðarleyfa. Tollyfirvöld geta þá veitt innflytjanda frest til að skila inn fullnægjandi gögnum og er gjalddagi aðflutningsgjalda ákveðinn við sama tímamark, venjulega innan 20 daga frá bráðabirgðatollafgreiðslu.

Í áttunda lagi er það notkun lágskammta röntgenskanna við nákvæma leit á manni. Lagt er til að lögfest verði heimild fyrir tollgæsluna að framkvæma nákvæma leit á aðila með lágskammta röntgenskanna að fengnu samþykki hlutaðeigandi. Samkvæmt núgildandi ákvæði tollalaga hefur tollgæslan heimildir til leitar á mönnum og hefur í framkvæmd verið gerður greinarmunur á leit og nákvæmari leit. Við nákvæma leit er farþegi látinn afklæðast á meðan almenn leit á sér stað utan klæða. Þegar upp vaknar grunur um innvortis smygl á fíkniefnum hjá farþega fer í gang ferli sem getur reynst bæði tíma- og mannaflafrekt fyrir farþegann og tollgæsluna ásamt því sem inngripið getur reynst farþegum þungbært. Í þeim tilfellunum er lögregla kölluð til og farþegi handtekinn og færður í fangaklefa. Hann er síðan sendur í tölvusneiðmyndatöku á heilbrigðisstofnun og honum haldið áfram þar til búið er að lesa úr myndunum. Með innleiðingu á lágskammta röntgenskanna væri þeim farþegum sem ella þyrftu að gangast undir nákvæma leit gefinn kostur á, gegn upplýstu samþykki, að fara í skönnun og þar með leysa sig undan tolleftirlitsskoðun á tiltölulega skömmum tíma.Tollgæslan ráðgerir að mynda aðeins búk en með því er dregið töluvert úr mögulegri geislun. Þá verða myndir úr röntgenskanna ekki vistaðar.

Í níunda lagi eru það breytingar á lögum um gistináttaskatt og innleiðing á innviðagjaldi. Í frumvarpinu eru jafnframt lagðar til breytingar á lögum um gistináttaskatt þess efnis að skemmtiferðaskip í millilandasiglingum greiði innviðagjald í stað gistináttaskatts líkt og verið hefur frá 1. janúar síðastliðnum. Breytingartillagan tekur mið af ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til ársins 2030 sem kom fram í þingsályktun menningar- og viðskiptaráðherra og var samþykkt á Alþingi 21. júní síðastliðinn. Innviðagjaldið verður innheimt fyrir hvern byrjaðan sólarhring fyrir hvern farþega. Skemmtiferðaskip í innanlandssiglingum greiða áfram gistináttaskatt en lagt er til að skipin greiði skattinn fyrir hvern byrjaðan sólarhring fyrir hvern farþega í skipi í stað fyrir hverja selda gistináttaeiningu líkt og nú er. Þá er lagt til að skemmtiferðaskip í innanlandssiglingum geri upp gistináttaskatt á saman hátt og þeir sem selja gistináttaeiningar. Jafnframt er lögð til hækkun á fjárhæð gistináttaskatts hjá öllum þeim sem eiga að greiða skattinn. Enn fremur er lagt til að gistináttaskattur myndi ekki lengur gjaldstofn til virðisaukaskatts. Áætlað er að tekjur af gistináttaskatti og innviðagjaldi nemi um 5,8 milljörðum kr. árið 2025 en þar af eru 1,9 milljarðar vegna innviðagjaldsins. Fyrirhugað er að gistináttaskattur á hótel og gistiheimili hækki úr 600 kr. í 800 kr. fyrir hverja selda gistináttaeiningu. Þá er hlutfallsleg hækkun gistináttaskatts á tjaldsvæði jafnmikilvæg og í tilfelli hótela og gistiheimila, en fyrirhugað er að það gjald hækki úr 300 kr. í 400 kr. Þar myndar gistináttaskattur ekki heldur stofn til virðisaukaskatts. Skemmtiferðaskip í innanlandssiglingum greiða áfram gistináttaskatt en bæði andlag og fjárhæð hans breytist og verður 400 kr. fyrir hvern byrjaðan sólarhring fyrir hvern farþega í stað 1.000 kr. fyrir hverja selda gistináttaeiningu eins og nú gildir. Fyrirhugað er að skemmtiferðaskip í millilandasiglingum greiði innviðagjald í stað gistináttaskatts eins og nú er og gert er ráð fyrir að innviðagjaldið nemi 2.500 kr. fyrir hverja selda gistinótt fyrir hvern farþega. Áætlað er að breytt gjaldtaka af skipum í millilandasiglingum skili 1,5 milljörðum kr. umfram það sem ella hefði orðið miðað við óbreyttar gjaldfjárhæðir og andlag.

Í tíunda lagi er það gjaldtaka á nikótínvörur, einnota rafrettur og áfyllingarvökva í rafrettur. Og nú ætla ég að víkja að breytingum á lögum um gjald á áfengi og tóbak þess efnis að nýjum kafla verði bætt við lögin um gjald á nikótínvörur, einnota rafrettur og áfyllingarvökva í rafrettur. Almennt eru vökvi í rafrettur og nikótínpúðar tóbakslausir og falla því utan gjaldtöku laga um gjald af áfengi og tóbaki. Fyrir liggur að notkun á nikótínpúðum hefur aukist hröðum skrefum hér á landi undanfarin ár. Kallað hefur verið eftir að stjórnvöld bregðist við útbreiddri notkun meðal ungs fólks á nikótínvöru sem eykst frá einu ári til annars, frá ári til árs. Til að setja áætlaða gjaldtöku hér á landi í nokkurt samhengi myndi 20 kr. hækkun á hvert gramm af nikótínvöru hækka staðlaða dós af nikótínpúðum, sem vegur um 15 gr. um 300 kr. Þá myndi 40 kr. verðhækkun millilítra af vökva í rafrettu hækka einnota rafrettu með 2 millilítra af vökva um 80 kr. Gjaldið mun ekki ná til rafretta sem flokkast sem lækningatæki né til áfyllingar fyrir rafrettur sem flokkast sem lyf samkvæmt lyfjalögum. Þá mun gjaldið ekki ná til nikótínvara sem markaðssettar eru sem lyf og flokkast sem lyf samkvæmt lyfjalögum. Verði tillögur frumvarpsins, um 40 kr. gjaldtöku á hvern millilítra af vökva í einnota rafrettum og áfyllingarvökva fyrir rafrettur, að lögum má vænta þess að tekjur ríkissjóðs af gjaldinu gætu numið um 1,4 milljörðum kr. á næsta ári. Gert er ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs af gjaldtöku á nikótínvörur, að fjárhæð 20 kr. á hvert gramm, gætu numið 3,2 milljörðum kr. Að auki má búast við hliðaráhrifum á virðisaukaskatt sem gæti numið 1,1 milljarði kr. Matið er þó næmt fyrir því hversu mikið eftirspurn mun dragast saman vegna gjaldtökunnar.

Í ellefta lagi er það stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki. Þá er komið að breytingum á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki. Í úttekt sem OECD vann að beiðni fjármála- og efnahagsráðherra og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra komu fram margvíslegar ábendingar sem lutu að lögunum og framkvæmd þeirra. Í samræmi við niðurstöður OECD um að markmiðum laganna sé frekar mætt með stuðningi við minni fyrirtæki er lagt til að í stað þess að stuðningurinn verði 20% fyrir öll fyrirtæki verði hann 34% fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki og 22,5% fyrir stórfyrirtæki. Þá verði hámarksþak frádráttarbærs kostnaðar 1.000 milljónir eða milljarður, auk þess sem hámarksstuðningur til lítilla og meðalstórra fyrirtækja verður 340 millj. kr. og 225 millj. kr. til stórra fyrirtækja. Jafnframt eru lagðar til breytingar og skerpingar á lögunum í samræmi við ábendingar OECD og til nánari skýringar á þeim. Einstakar breytingar hafa ýmist áhrif til hækkunar eða lækkunar á áætluðum stuðningi við nýsköpunarfyrirtæki en samanlögð eru áhrifin áætluð tæpir 4 milljarðar kr. á árinu 2026. Áhrifin eru þó háð óvissu um fjölda fyrirtækja og umsókna.

Í tólfta lagi er það brú yfir Ölfusá og ætla ég að víkja að breytingum tengdum brú yfir Ölfusá. Í frumvarpinu er lagt til að hægt verði að mæta mögulegum umframkostnaði standi veggjöld ekki undir framkvæmd við hringveg norðaustan Selfoss og brú yfir Ölfusá. Fjármála- og efnahagsráðherra er veitt heimild, í samráði við innviðaráðherra, til að undirgangast skuldbindingar fyrir hönd ríkissjóðs í því skyni. Þá er kveðið á um að standi gjaldtaka ekki undir öllum kostnaði vegna verkefnisins verði gert ráð fyrir mismuninum í samgönguáætlun og veitt fjárheimild fyrir kostnaðinum í fjárlögum þess árs þegar þar að kemur. Breytingarnar stuðla að því að hægt verði að vinna áfram framkvæmd við hringveg norðaustan Selfoss og við brúarsmíði yfir Ölfusá miðað við mat Ríkisábyrgðasjóðs á fjárhagslegri sjálfbærni verkefnisins út frá áætluðu umferðarmagni. Samkvæmt grunnspá um mannvirkið er gert ráð fyrir að kostnaður ríkissjóðs geti numið um 150 millj. kr. á ári í tíu ár eða samtals um 1,5 milljörðum. Áætlaður stuðningur úr ríkissjóði þarf hins vegar að vera mun meiri eða 9,8 milljarðar ef miðað er við lágspár en hins vegar engin ef miðað er við háspá. Þá er verkið að fullu sjálfbært.

Í þrettánda lagi eru það aðrar breytingartillögur. Í frumvarpinu eru að lokum lagðar til nokkrar minni breytingar á lögum. Hér er í fyrsta lagi lagt til að felld verði brott heimild til að jafna ónýttum persónuafslætti á móti greiðslu auðlegðarskatts á eftir greiðslu tekjuskatts og útsvars. Heimild þessi er óþörf þar sem hinn tímabundni auðlegðarskattur hefur runnið sitt skeið og var síðast lagður á við álagningu á einstaklinga árið 2014. Þá er í frumvarpinu gert ráð fyrir því að hlutfall óráðstafaðs persónuafsláttar sem ráðstafað er til greiðslu fjármagnstekjuskatts breytist úr 22/37 í 22/31 í samræmi við gildandi lög. Breytingin hefði með réttu átt að eiga sér stað við tekjuskattsbreytingar 2020–2021 en fórst fyrir þá. Í öðru lagi er lagt til að heimilað verði að úrskurðir og önnur samskipti Skattsins við einstaklinga og lögaðila verði staðfest með árituðu nafni viðkomandi starfsmanns eða eftir atvikum mynd af eiginhandarundirritun hans. Í þriðja lagi er til einföldunar lögð til breyting á lögum um aukatekjur ríkissjóðs þess efnis að sama gjald verði greitt fyrir lögskilnaðarleyfi og leyfi til skilnaðar að borði og sæng eða 6.500 kr. Jafnframt er lagt til að tekið verði sérstakt gjald fyrir ökuskírteini úr plasti, flýtiafgreiðslu þeirra og fyrir ökuskírteini úr plasti til handa 65 ára og eldri. Kostnaður vegna útgáfu og prentunar ökuskírteina úr plasti er því felldur á rétthafa ökuréttinda. Gjald vegna útgáfu stafrænna ökuskírteina helst hins vegar óbreytt. Í fjórða lagi er gert ráð fyrir eins árs framlengingu á gildistíma ákvæðis til bráðabirgða í búvörulögum þannig að það gildi út árið 2025. Í ákvæðinu er kveðið á um tímabil sem afmarka lægri innflutningstolla á tilteknar tegundir grænmetis. Í fimmta lagi eru lagðar til breytingar á búnaðarlögum. Gjaldtökuákvæði laga um útflutning hrossa hefur verið fellt brott þar sem yfirskattanefnd komst að þeirri niðurstöðu að lagastoð fyrir gjaldtökunni væri ekki nægileg. Vegna þessa er nú lagt til að stofnverndarsjóður íslenska hestakynsins verði lagður niður og hafa matvælaráðherra og Bændasamtök Íslands ásamt deild hrossabænda sammælst um það. Þess má geta að nýverið var auglýst í fyrsta sinn eftir umsóknum til þróunarstyrkja í hrossarækt á Íslandi og frá og með þessu hausti er þannig hægt að sækja um sérstaka þróunarstyrki í hrossarækt. Í sjötta lagi eru lagðar til breytingar á lögum um innheimtu opinberra skatta og gjalda til frekari skýrleika. Annars vegar þess efnis að það sé einungis gjaldandi sjálfur sem höfðað hefur dómsmál, sem geti krafist dráttarvaxta frá þeim tíma þegar dómsmál telst höfðað. Hins vegar að bætt verði við lögin ákvæði þess efnis að málshefjandi geti átt rétt til dráttarvaxta vegna greiðslna ólögmæts gjalds sem inntar eru af hendi eftir málshöfðun. Að lokum eru í sjöunda lagi lagðar til breytingar á lögum um vátryggingasamninga, lögum um vátryggingastarfsemi og lögum um dreifingu vátrygginga til að bæta samræmi í orð- og hugtakanotkun laganna. Ekki er talið að þessar breytingar muni hafa samanlagt teljandi áhrif á afkomu ríkissjóðs verði frumvarpið óbreytt að lögum.

Virðulegi forseti. Að þessu sögðu legg ég til að frumvarpi þessu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umræðu að lokinni þessari umræðu.