skattar og gjöld.
Virðulegi forseti. Mig langar að spyrja hæstv. fjármálaráðherra varðandi afnám persónuafsláttar lífeyrisþega sem búsettir eru erlendis. Þetta var í frumvarpi í fyrra, bandorminum, en gildistökuákvæðinu var frestað til 1. janúar næstkomandi, og þá var það með því skilyrði að það myndu koma gögn sem myndu meta áhrifin af þessu á lífeyrisþega sem eru búsettir erlendis, en þeir eru fjölmargir, talið í þúsundum. Þessi gögn hafa ekki komið, efnahags- og viðskiptanefnd vantar þessi gögn. Það liggur ekkert mat fyrir á áhrifunum. Ég sé það í frumvarpinu núna að ekki er fjallað um það að fella þetta niður eða fresta því um eitt ár í viðbót. Á ekki að standa við samkomulagið sem gert var við afgreiðslu bandormsins í fyrra, og fresta þessu þar sem gögnin hafa ekki borist eða þá að afnema þessa breytingu algerlega þannig að hún taki ekki gildi 1. janúar.