155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

skattar og gjöld.

300. mál
[10:52]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er rétt hjá hv. þingmanni að þetta ákvæði var lögfest í fyrra og frestað um eitt ár og hefur verið gerð ítarleg skoðun á áhrifum þess, gert áhrifamat bæði á fólk og samfélag. Minnisblað þess efnis eins og lofað var er á leið til efnahags- og viðskiptanefndar og til þingsins og mun skýra, held ég, ítarlega fyrir hv. þingmanni og þeim sem hafa haft áhyggjur af þessu að þarna er um fullkomlega eðlilega aðgerð að ræða í samræmi við það sem önnur lönd gera og íslenskir ríkisborgarar sem njóta 75% af tekjum sínum á Íslandi geta óskað eftir því að verða skattlagðir hér og halda sínum persónuafslætti þar sem þeir eru að fá meginþorra af sínum tekjum hér og þetta er þar af leiðandi engin breyting fyrir þá. Þeir sem hafa tekjur annars staðar (Forseti hringir.) njóta þá persónuafsláttar í viðkomandi ríki.