155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

skattar og gjöld.

300. mál
[10:53]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég hef heyrt af álitsgerð Magna lögmanna. Þar kemur fram að þetta hafi áhrif á fjölda lífeyrisþega. Að sjálfsögðu væri eðlilegt að þetta kerfi væri þannig að ef lífeyrisþegi óskar þess að persónuafsláttur verði afnuminn á Íslandi — hann muni geta óskað þess en það verði ekki þannig að hann þurfi að biðja um það að halda persónuafslætti sínum. Það er miklu eðlilegra og þá er það í samræmi við það kerfi sem verið hefur, að einstaklingar sem flytja t.d. til Spánar, sem er oft fátækt fólk, lífeyrisþegar, haldi persónuafslætti sínum nema þeir óski eftir því að fá persónuafslátt í því landi sem það óskar. Það er eðlileg þjónusta við fólkið í landinu. Ég skora á hæstv. ráðherra að taka tillit til þessarar beiðni frá Flokki fólksins og öðrum þingmönnum um það að þessi persónuafsláttur haldi sér en fólkið geti þá a.m.k. óskað eftir því að fá persónuafslátt í því ríki sem það óskar. Ég trúi ekki öðru en að þessi gögn sem var óskað eftir (Forseti hringir.) verði þannig að þetta verði afnumið eða þessu frestað a.m.k. um eitt ár til. Við fáum ekki þinglega meðferð núna vegna kosninga 30. nóvember þannig að það eru engar forsendur fyrir því að láta þetta taka gildi 1. janúar, engar.