155. löggjafarþing — 16. fundur, 24. okt. 2024.
skattar og gjöld.
300. mál
Virðulegur forseti. Eins og ég nefndi var þetta lögfest í fyrra og beðið um frekari gögn. Þau munu birtast þingnefndinni og ég held að þau muni skýra sig sjálf en það er sjálfsagt að taka það samtal, bæði af hálfu ráðuneytisins við þingnefndina sem og við alla aðra til þess að útskýra þessa stöðu sem þarna er. Eins og ég segi, það er eðlilegt, held ég, að þeir sem fá um 75% af tekjum sínum á Íslandi séu skattlagðir á Íslandi og þeir geta þá notið fulls persónuafsláttar hér.