155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

skattar og gjöld.

300. mál
[10:55]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferð yfir þennan bandorm númer tvö sem, eins og heyrðist í framsögu hæstv. ráðherra, fjallar um allt mögulegt eins og bandormar gera jú oft. Mig langaði í þessu fyrra andsvari að fjalla aðeins um stuðninginn við nýsköpun sem verið er að breyta. Það er mjög ánægjulegt að sjá að lífeyrissjóðir fái að fjárfesta meira í nýsköpunarfyrirtækjum. Það er eitthvað sem hefur verið kallað mikið eftir. En síðan er alveg heill kafli um breytingar á stuðningnum við nýsköpunarfyrirtæki, XIV. kaflinn, sem eru ansi veigamiklar breytingar og vekja upp spurningar um hvort þetta séu breytingar sem þurfi að keyra í gegn núna á síðustu metrum þingsins eða hvort ekki hefði verið betra að þessi kafli fengi sérstaka meðhöndlun þegar nýtt þing kemur saman.