skattar og gjöld.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það er nú samt þannig að það hefur komið fram mikil gagnrýni frá nýsköpunarsamfélaginu á þessar breytingar og ég held að ef það á að reyna að keyra þær í gegn hratt og örugglega þá þurfi nú að hlusta á þær gagnrýnisraddir vegna þess að það var ekki hlustað á þær allar saman í því samráðsferli sem verið hefur hingað til.
En í seinna andsvarinu langar mig að spyrja hæstv. ráðherra um XV. kafla sem tengist einmitt samgönguverkefni í hans kjördæmi. Mig langar að vita frá hæstv. ráðherra af hverju það skiptir máli að slíkt verkefni sé sett inn hér líka á síðustu metrunum í forgang á móti öðrum samgönguverkefnum sem brýn eru víða um land. Mig langar bara að fá að heyra hjá hæstv. ráðherra af hverju þetta en ekki göng einhvers staðar eða eitthvað annað komi hraðar inn.