155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

skattar og gjöld.

300. mál
[10:59]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er svo sem erfitt að fara yfir það á einni mínútu en stysta útgáfan er þessi: Í núgildandi lögum er heimild til fjármálaráðherra að staðfesta þann samning og útboð sem búið er að gera svo fremi að verkefnið sé að fullu sjálfbært. Að mati Ríkisábyrgðasjóðs eru möguleikar miðað við ákveðnar forsendur, umferðarspá, sniðgöngu, vexti og annað, að á tilteknu tímabili sé það ekki og þess vegna er nauðsynlegt að koma aftur til þingsins og þá eðlilega, kannski bara á grundvelli sömu heimildar og þingið gaf í fyrra, að tryggja að verkefnið geti haldið áfram. Útboðið allt er búið, það bíður bara eftir því að fá þessa staðfestingu að hægt sé að halda áfram á meðan önnur verkefni lúta þá að samgönguáætlun og eru verkefni sem við munum reyna að skoða við fjárlagagerðina til þess að tryggja að heimildir næsta árs séu tryggðar þó að ekki liggi fyrir langtímaáætlun eða fimm ára framkvæmdaáætlun. Útskýringin er að þetta verkefni spratt upp úr fjárlögum síðasta árs. Heimildin (Forseti hringir.) er ekki nægilega skýr vegna álits Ríkisábyrgðasjóðs og þess vegna er verið að bregðast við með þessum hætti.