skattar og gjöld.
Virðulegi forseti. Ef ég man rétt var hækkun á fiskeldisgjaldinu í bandormi. Það er hins vegar rétt hjá hv. þingmanni að varðandi veiðigjald þá var það fyrirhugað í þessum bandormi á grundvelli frumvarps sem átti að koma frá matvælaráðuneytinu. Fyrrverandi matvælaráðherra hafði komið með í ríkisstjórn minnisblað í lok ágúst þess efnis að við núverandi aðstæður myndi þetta gjald væntanlega skila milljarði brúttó og jafnvel 800 milljónum nettó, ef ég man rétt. Núverandi starfandi matvælaráðherra hefur komið með í ríkisstjórn upplýsingar þess efnis að það skili enn minna og hefur því skilað inn minnisblaði þess efnis að þessu verkefni verði frestað, m.a. vegna loðnubrests og minnkandi makríls, þar sem þessar tekjur áttu fyrst og fremst að koma af uppsjávartegundum. Ég verð að fá að svara varðandi reiknað endurgjald í seinna andsvari.