155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

skattar og gjöld.

300. mál
[11:04]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Forseti. Varðandi reiknaða endurgjaldið, eða að skattleggja þá sem fyrst og fremst hafa fjármagnstekjur, þá hef ég lagt mikla áherslu á að það kæmi fram. Sú vinna skilaði sér í nokkuð flóknu verki sem hefði haft meiri áhrif á fólk yfir sjötugu, sem er kannski hætt að vinna og hefur fjármagnstekjur. Ég lagði því til, þar sem upphæðin er ekki þeim mun hærri, að þetta þyrfti að skoða betur, sérstaklega við þær aðstæður sem við erum í akkúrat í augnablikinu, að hafa knappan tíma til að breyta. Ég tel enn að það sé gríðarlega mikilvægt og eðlilegt að fólk sem lifir af fjármagnstekjum greiði útsvar og eftir atvikum tekjuskatt.

Varðandi síðan heildarpakkann, þ.e. þær tekjur sem dragast augljóslega saman við að þetta fellur brott, þá get ég bent á að í frumvarpi sem ég mæli fyrir á eftir erum við að hækka kolefnisgjald, (Forseti hringir.) sem hækkar þar á meðal gjald á sjávarútveg um 2 milljarða brúttó en sirka milljarð nettó. (Forseti hringir.) En við getum farið nánar yfir það í þeirri umræðu.

Síðan verð ég aðeins að fá að bæta við, herra forseti, að nikótíngjald (Forseti hringir.) sem leggst á, að út úr þessum pakka eru gjöldin (Forseti hringir.) svipuð. Þannig að aðhald ríkissjóðs og tekjur eru í samræmi. Afsakaðu, herra forseti.

(Forseti (BÁ): Forseti minnir á að ræðutími er takmarkaður í andsvörum og svörum við eina mínútu þegar svo margir óska eftir að veita andsvör.)