skattar og gjöld.
Virðulegur forseti. Eins og ég nefndi áðan er auðvitað flókið í öllum þessum málum að útskýra þau hér á einni mínútu. En heildarkostnaðurinn með fjármagnskostnaði er sem sagt einhverjir rúmir 17 milljarðar. Þar af eru aðrir aðilar að fjárfesta í þessu verkefni um 2 milljarða. Brúin sjálf er held ég 8,5 milljarðar. Ríkisábyrgðasjóður tekur lágspá Vegagerðarinnar. Grunnspá Vegagerðarinnar og sú viðskiptaáætlun sem þar er og augljóslega háspáin, þ.e. umferðarspáin, segja að verkið sé sjálfbært. Ábyrgðasjóður tekur lágspána og gerir eiginlega að sinni grunnspá eftir að hafa fengið ráðgjöf frá Summu. Það þýðir að frá og með árinu 29 til 39, sem sagt ekki á næstu árum, getur komið til þess, ef umferðin verður minni, ef sniðgangan verður meiri, ef vextirnir verða hærri, að sirka þessi upphæð, á grundvelli grunnspárinnar sem eru þá sirka 10% af framkvæmdakostnaði, að þingið þyrfti að geta fjármagnað hana með skuggagjöldum samhliða. En það er líka hægt að meta það frá ári til árs.