155. löggjafarþing — 16. fundur, 24. okt. 2024.
skattar og gjöld.
300. mál
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir svar hans hér. Mér þótti það merkilegt, þegar ég var að lesa textann á bls. 26 í bókinni um þennan bandorm, að þetta skuli gert í samráði fjármála- og efnahagsráðherra við innviðaráðherra nokkurn. Ég velti því fyrir mér, svona í gríni, hvort það gangi erfiðlega fyrir þá að hafa samskipti og hvort þeir hafi náð að ræða saman um málið og hvort það sé komin niðurstaða milli þessara ráðherra í þessu máli.