155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

skattar og gjöld.

300. mál
[11:09]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er rétt að það fara úr einu ráðuneyti í annað gerir það að verkum að maður hefur talsverðra þekkingu með sér og þó að maður fari aftur til baka þá hefur maður ekki tapað henni. En ég vil líka ítreka að samstarf mitt við þáverandi innviðaráðherra síðustu mánuði, þar sem þetta verkefni hefur verið til skoðunar, hefur verið mjög gott, frábært, og í raun og veru hefur engin breyting orðið á þeirri afstöðu sem við höfum haft. Ég vitna hér til sameiginlegs fundar sem við áttum með allri fjárlaganefnd og umhverfis- og samgöngunefnd fyrir nokkru — það eru held ég ekki nema einhverjir tíu eða 14, 15 dagar síðan en mér finnst það vera heil eilífð — þar sem bæði þáverandi innviðaráðherra og fjármálaráðherra fóru með okkar fólki og Vegagerðinni yfir verkefnið frá A til Ö og það var býsna góður fundur og upplýsandi fyrir alla aðila.