155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

kílómetragjald á ökutæki.

301. mál
[11:11]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til nýrra laga um kílómetragjald á ökutæki. Frumvarpið er á þskj. 308 og er 301. mál þingsins. Með frumvarpinu er lagt til að næsta skref verði stigið í lögfestingu á nýju tekjuöflunarkerfi af ökutækjum og eldsneyti með upptöku á kílómetragjaldi frá og með 1. janúar 2025 vegna notkunar ökutækja á vegakerfinu, þar með talið ökutækja sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti.

Með lögum um kílómetragjald vegna notkunar hreinorku– og tengiltvinnbifreiða var fyrsta skrefið stigið í lögfestingu á nýju tekjuöflunarkerfi af ökutækjum og eldsneyti með upptöku á kílómetragjaldi frá og með 1. janúar 2024 vegna notkunar hreinorkubifreiða og tengiltvinnbifreiða á vegakerfinu. Innleiðingin gekk vel en til marks um það má nefna að fyrir lok janúar síðastliðinn höfðu 97% eigenda eða umráðamanna þessara bifreiða skráð stöðu akstursmælis á Ísland.is. Sú reynsla sem þar hefur fengist og sá lærdómur sem af því hefur verið dreginn, auk mikilvægra ábendinga sem hafa komið fram við innleiðingu kerfisins, hefur nýst við áframhaldandi innleiðingu kerfisins sem lagt er til í frumvarpi þessu.

Kílómetragjald á öll ökutæki mun taka mið af þyngd ökutækja og þar með af því niðurbroti og sliti á vegum sem þau valda. Með því verður gjaldtaka af ökutækjum í betra samræmi við áhrif þeirra á viðhaldskostnað vegakerfisins. Þó er lagt til að kílómetragjald af bifhjólum verði lægra og verði miðað við fasta krónutölu, óháð þyngd. Breytingarnar skjóta ekki aðeins styrkari stoðum undir tekjuöflun ríkisins heldur koma þær einnig á skilvirkara og sanngjarnara gjaldakerfi fyrir eigendur og umráðamenn ökutækja, grundvallað á notkun á vegum en ekki á orkugjafa.

Samhliða innleiðingu á kílómetragjaldi fyrir ökutæki eru lagðar til breytingar á lögum um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. þar sem lagt er til að vörugjöld af eldsneyti falli niður. Jafnframt er lagt til að lög um olíugjald og kílómetragjald falli brott. Olíugjöld og bensíngjöld munu því falla brott ef frumvarp þetta verður að lögum samhliða því kílómetragjaldi sem nú er lagt á þung ökutæki. Auk þess er lögð til breyting á lögum um umhverfis- og auðlindaskatta þar sem lagt er til að kolefnisgjald á kolefni af jarðefnauppruna verði u.þ.b. tvöfaldað til að viðhalda hvötum til orkuskipta og til að fanga neikvæð ytri áhrif af notkun jarðefnaeldsneytis.

Áform um lagasetningu voru kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda 11. júlí til 12. ágúst síðastliðinn og drög að frumvarpinu voru kynnt til umsagnar í samráðsgáttinni dagana 15.–20. október.

Varðandi tilefni og nauðsyn lagasetningarinnar má nefna að tekjur af ökutækjum og eldsneyti eru að miklu leyti tengdar því eldsneyti sem notað er á ökutækin og losun þeirra á gróðurhúsalofttegundum. Sá mikli árangur sem náðst hefur af aðgerðum stjórnvalda í orkuskiptum í samgöngum með fjölgun vistvænna og sparneytinna bifreiða hér á landi hefur leitt til þess að skatttekjur ríkissjóðs af ökutækjum og eldsneyti hafa rýrnað umtalsvert.

Stjórnvöld hafa markað þá stefnu að auka notkun hreinna orkugjafa í samgöngum og hraða þannig orkuskiptum, m.a. með verulegum skattastuðningi undanfarin ár. Á sama tíma er viðvarandi þörf fyrir uppbyggingu og viðhald á vegakerfinu. Sú þörf mun síst minnka í fyrirsjáanlegri framtíð með vaxandi íbúafjölda, grósku í ferðaþjónustu og tilheyrandi umferð. Við þessari þróun þarf að bregðast og innleiða nýtt, einfaldara og gagnsærra fyrirkomulag gjaldtöku á ökutæki og eldsneyti til framtíðar með aukið jafnræði eiganda og umráðamanna ökutækja að leiðarljósi.

Orkuskipti og aukin kaup landsmanna á vistvænum ökutækjum, þ.m.t. rafmagnsbílum, marka jákvæða þróun og eru til marks um grundvallarbreytingu á neysluhegðun og umhverfisvitund. Orkuskiptin hafa hins vegar áðurnefndar áskoranir í för með sér þar sem tekjur ríkis¬sjóðs af ökutækjum og eldsneyti munu þverra eftir því sem betri árangur næst í orkuskiptum. Segja má að þróunin í þessum efnum hafi verið það hröð að ekki megi draga lengur að bregðast við. Þetta kallar einfaldlega á nýja löggjöf til að innleiða nýtt fyrirkomulag gjaldheimtu.

Nýtt tekjuöflunarkerfi á rætur að rekja til sáttmála stjórnarflokkanna um ríkisstjórnarsamstarf frá nóvember 2021 þar sem fram kemur að framtíðartekjuöflunarkerfi ríkissjóðs vegna umferðar og orkuskipta verði mótað og innleitt á kjörtímabilinu. Í febrúar 2023 var sett á fót sameiginleg verkefnastofa fjármála- og efnahagsráðuneytisins og innviðaráðuneytisins til að móta tillögur um nýtt fyrirkomulag, en forsætisráðuneytið á einnig aðild að stýrihópi vegna verkefnisins.

Í þeirri vinnu hefur komið fram að eftirsóknarvert þyki að nýtt fyrirkomulag tekjuöflunar af ökutækjum og eldsneyti feli í sér heildstætt og samræmt gjaldtökukerfi á landsvísu þar sem tekjulindir og hagrænir hvatar falli vel saman innbyrðis. Einnig þannig að gagnsæi og einfaldleiki kerfisins verði sem mestur gagnvart greiðendum og að gjaldtaka verði notendavæn og yfirbygging sem minnst til að óhagræði og innheimtukostnaði verði haldið í lágmarki.

Nýtt kílómetragjald mun því endurspegla betur kostnað vegna aksturs ökutækja á vegakerfinu, stuðla að auknu jafnræði hjá notendum ásamt því að hvetja til orkuskipta með hækkun á kolefnisgjaldi.

Nú ætla ég að fjalla nánar um uppbyggingu frumvarpsins og skráningarferlið. Varðandi gjaldskyld ökutæki er í frumvarpinu gert ráð fyrir að þau ökutæki sem tilgreind eru í frumvarpinu og eru bæði skráningar- og skoðunarskyld samkvæmt umferðarlögum séu gjaldskyld. Í frumvarpinu eru talin upp í fimm töluliðum þau ökutæki sem eru gjaldskyld en það eru bifhjól, bifreiðar, dráttarvélar, eftirvagnar og létt bifhjól. Hugsunin er því sú að þau ökutæki sem í raun eru að nýta vegakerfið greiði kílómetragjald. Jafnframt er gert ráð fyrir að ökutæki sem nýtt eru tímabundið hér á landi, til að mynda þau ökutæki sem koma hingað tímabundið og eru hér á landi að hámarki í allt að 12 mánuði, verði einnig gjaldskyld.

Þá er gert ráð fyrir því að meginreglan verði sú að eigendur þeirra gjaldskyldu ökutækja sem skráðir eru í ökutækjaskrá hér á landi verði gjaldskyldir. Hér er verið að fjalla um sem sagt gjaldskylda aðila. Þó er gert ráð fyrir því að skráður umráðamaður bifreiðar skuli vera gjaldskyldur, t.d. vegna umráða yfir bifreið út frá svokölluðum kaupleigusamningum fjármögnunarfyrirtækja eða leigusamningum við ökutækjaleigur, til að mynda vegna langtíma- eða vetrarleigu slíkra ökutækja. Með sama hætti er gert ráð fyrir að leigutaki samkvæmt samningi við ökutækjaleigu geti orðið gjaldskyldur ef ótvírætt samþykki hans liggur fyrir um gjaldskylduna, samkvæmt samningi við ökutækjaleigu, en tilkynna ber um það til Skattsins.

Þá er gert ráð fyrir því að auk gjaldskyldu skráðra eigenda og umráðamanna gjaldskyldra ökutækja skuli þeir sem fá heimildir tollyfirvalda til tímabundinnar notkunar ökutækis hér á landi að hámarki 12 mánuði vera gjaldskyldir samkvæmt frumvarpinu.

Varðandi fjárhæð kílómetragjalds er í frumvarpinu gengið út frá því að fjárhæð kílómetragjalds á hvern kílómetra skuli vera lagt á í 29 gjaldbilum eftir leyfðri heildarþyngd ökutækis í kílóum, sem sagt hækka eftir þyngd ökutækis. Lagt er til að upphæðin ráðist af gjaldþyngd ökutækis þar sem miðað verður við heildarþyngd þess. Lagt er til að grunnfjárhæð kílómetragjalds verði 6,7 kr. á kílómetra fyrir ökutæki allt að 3.500 kíló, eða 3,5 tonn, að leyfðri heildarþyngd sem aukist síðan eftir þyngd upp í 43,90 kr. fyrir þyngstu ökutækin. Þó er miðað við að fjárhæð kílómetragjalds af bifhjólum og léttum bifhjólum skuli vera 4 kr. Víða í Evrópu þekkist það að innheimt séu lægri gjöld af bifhjólum en t.d. af fólksbifreiðum, m.a. til að einfalda flokkun á gjaldtöku slíkra léttari ökutækja og til að auka skilvirkni opinberra aðila við innheimtu gjaldanna.

Fyrir liggur að álag af notkun þungra ökutækja sem geta verið allt að 32 tonn að þyngd er umtalsvert meira en álag af notkun léttra ökutæki eins og fólksbifreiða og sendibifreiða sem eru að jafnaði léttari en 3,5 tonn. Álag ökutækja á vegslit og niðurbrot vega eykst í veldisvexti með aukinni þyngd sem þýðir að munur á álagi á milli misþungra bifreiða eykst með vaxandi þyngd. Því er t.d. verulegur munur á því álagi sem 2 tonna bifreið og 18 tonna bifreið veldur en að sama skapi er munurinn óverulegur milli 2 tonna fólksbifreiðar og 3 tonna fólksbifreiðar. Það er hins vegar þannig að þrátt fyrir að niðurbrot og slit vega aukist í veldisvexti er annar kostnaður sem snýr að veganotkun nokkuð einsleitur fyrir alla þyngdir ökutækja, t.d. ytri kostnaður vegsamgangna og sumar- vetrarþjónusua, en þetta er skýrt vel í mynd nr. 2 í frumvarpinu og vísa ég þeim sem vilja kynna sér það betur á það. Þar sem munur á heildarniðurbroti og sliti vega er óverulegur á ökutækjum frá 0 upp í 3.500 kíló af leyfðri heildarþyngd er talið rétt að þau ökutæki greiði sama grunngjald, kílómetragjald, þ.e. 6,7 kr.

Varðandi ökutækjaleigur er gert ráð fyrir að ökutækjaleigum verði heimilt að skila sérstöku daggjald í ríkissjóð þar sem miðað verði við tiltekinn aksturs ökutækis á dag út frá ákveðinni fastri fjárhæð. Daggjald skal vera 1.340 kr. og skal reikna fyrir hvern hafinn útleigudag samkvæmt leigusamningi. Ökutækjaleigur munu þannig hafa þrjá valkosti við innheimtu á kílómetragjaldi, þ.e. hefðbundin skil samkvæmt álestri á aksturs mæli, í öðru lagi þá daggjald og í þriðja lagi skráningu umráðamanns sem gjaldskylds aðila, til að mynda út frá langtímaleigusamningi um leigu ökutækis eins og ég hafði áður farið yfir.

Varðandi skráningarferlið hefur Stafrænt Ísland unnið náið með Skattinum, Fjársýslunni, Samgöngustofu og fleiri aðilum að innleiðingu á einföldu skráningarviðmóti vegna kílómetragjaldsins fyrir almenning og fyrirtæki. Hugmyndin er sú að kerfið verði einfalt fyrir notendur þannig að einstaklingar og fyrirtæki geti skráð kílómetrastöðu á vefnum Ísland.is. Þeir einstaklingar sem ekki geta nýtt sér rafræna skráningu munu þó ávallt geta nýtt sér hefðbundinn skráningarmáta hjá Skattinum eða farið með bíl í álestur á skoðunarstöð til skráningar á kílómetrastöðu. Hugmyndin er þannig sú að viðmótið verði eins einfalt og notendavænt og kostur er fyrir gjaldskylda aðila.

Í frumvarpinu er lagt upp með að greidd verði bráðabirgðagreiðsla upp í álagningu kílómetragjalds í hverjum og einum á almanaksmánuði. Það er síðan gert ráð fyrir því að meginreglan verði sú að skráning á kílómetrastöðu fari fram að lágmarki einu sinni á hverju almanaksári. Slík skráning skal framkvæmd af gjaldskyldum aðila, faggiltri skoðunarstofu eða öðrum álestraraðila í tilfelli þyngri ökutækja, t.d. tollyfirvöldum við inn- og útflutning eða Vegagerðinni. Þegar slík skráning á sér stað fer fram uppgjör og álagning á liðnum heilum almanaksmánuðum og dregst þá bráðabirgðagreiðsla frá við álagningu kílómetragjaldsins. Það er grundvallaratriði að akstursmælir í mælaborði eða eftir atvikum ökuriti í þyngri ökutækjum sé virkur og mæli rétta stöðu á akstri. Hafa ber hliðsjón af þeim alþjóðlegu reglum, m.a. reglum sem settar hafa verið á vegum Sameinuðu þjóðanna, um virkni akstursmæla við mat á virkni þeirra en akstursmælar skulu m.a. hafa ákveðið nákvæmnissvið til að tryggja áreiðanleika mælinga.

Þá er talið rétt í eftirlitsskyni og til að tryggja eins og kostur er eftirlit með kílómetrastöðu, út frá akstursmæli þeirra gjaldskyldu ökutækja sem skráðar eru í ökutækjaskrá hér á landi og falla undir lögin, að skráning á kílómetrastöðu akstursmat fari einnig fram hjá söluaðilum bifreiða í atvinnuskyni, t.d. vegna ábyrgðar- og þjónustuskoðana eða viðgerðum í atvinnuskyni, svo sem út frá tjónaviðgerðum út frá skilmálum vátryggingafélaga. Þessar skráningar á kílómetrastöðu er hins vegar eingöngu gerðar í eftirlitstilgangi út frá skatteftirliti og skoðun á almennri framkvæmd kílómetragjaldsins.

Að lokum er að finna ýmis ákvæði í frumvarpinu er varða m.a. boðun í álestur hjá faggiltri skoðunarstöð af hálfu ríkisskattstjóra, ákvæði um eigandaskipti afskráningu, virkni akstursmælis, greiðslu kílómetragjalds vegna aðalskoðunar, kæruheimildir, vanskráningargjald og heimild til lögveðs og fjarnáms og loks ákvæði um gildistöku. Gert er ráð fyrir því að frumvarpið öðlist gildi 1. janúar 2025 samhliða.

Virðulegur forseti. Samhliða innleiðingu á kílómetragjaldi fyrir öll ökutæki er síðan lagt til að vörugjöld af eldsneyti og olíugjaldi falli brott. Af því leiðir að eldsneytisgjöldin falla brott ásamt því kílómetragjaldi sem lagt hefur verið á þungu ökutæki samkvæmt lögum um olíugjald og kílómetragjald þar sem þau þungu ökutæki munu falla undir gjaldskrá á nýju kílómetragjaldi.

Vegna brottfalls eldsneytisgjalda er lagt til að bráðabirgðaákvæði vegna lagaskilanna verði lögfest þar sem olíufélögunum verður gert að senda ríkisskattstjóra upplýsingar um þær óseldu birgðir sem eru í þeirra vörslu, þ.m.t. á innlendum birgða- og sölustöðum í lok árs 2024. Upplýsingar skulu berast ríkisskattstjóra þann 25. janúar 2025 og í kjölfarið skal uppgjör fara fram á óseldum tollafgreiddum birgðum þann 15. febrúar 2025 með tilliti til þeirra kerfisbreytinga sem lagðar eru til í frumvarpinu og brottfalls eldsneytisgjalda og hækkunar kolefnisgjalds.

Markmið ákvæðisins er að tryggja eins og kostur er að verðlagning eldsneytis hjá gjaldskyldum aðilum frá 1. janúar 2025 taki mið af þeim kerfisbreytingum sem lagðar eru til í frumvarpinu þar sem nýtt kílómetragjald mun koma í stað allra eldri eldsneytisgjalda. Miklu máli skiptir að olíufélögin axli ábyrgð og tryggi að lækkað bensín og olíuverð skili sér til neytenda um áramótin í kjölfar kerfisbreytinganna.

Nýtt kerfi felur í sér að greitt verður áfram fyrir losun koltvísýrings, CO2, með kolefnisgjaldi á jarðefnaeldsneyti vegna neikvæðra ytri áhrifa á notkun þess sem þá viðheldur hvötum til orkuskipta. Gjaldtakan mun þannig endurspegla betur kostnað vegna aksturs ökutækja á vegakerfinu og stuðla að auknu jafnræði hjá notendum þess ásamt því að hvetja til orkuskipta. Í frumvarpinu er lagt til að kolefnisgjald verði u.þ.b. tvöfaldað sem leiðir til þess að kostnaður af brennslu jarðefnaeldsneytis verður í samræmi við söluverð losunarheimilda í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir sem við erum aðilar að. Verð á losunarheimildum í viðskiptakerfi ESB hefur verið um 70 evrur á hvert tonn af CO2 síðustu ár. Lagt er til í frumvarpinu að kolefnisgjaldið verði um 10.200 kr. á hvert tonn af CO2 sem er sambærilegt því gjaldi.

Innleiðing á nýju kerfi kílómetragjalds mun hafa töluverð áhrif á þyngri ökutæki. Í því sambandi ber að geta þess að kílómetragjald hefur ekki verið innheimt af ökutækjum sem ætluð eru til fólksflutninga samkvæmt lögum um olíu- og kílómetragjald. Til að milda áhrif kerfisbreytinganna á þau ökutæki og til að veita eigendum eða eftir atvikum umráðamönnum þyngri ökutækja aðlögun að upptöku á nýju kílómetragjaldi og styðja við orkuskipti umhverfisvænna hóp- og vörubifreiða er lagt til að kílómetragjald skuli lækkað á árunum 2025 og 2026 hjá hópbifreiðum og eftirvögnum og á árunum 2025 til og með árinu 2027 hjá þeim hópbifreiðum og vörubifreiðum sem knúnar eru metani, metanóli, rafmagni eða vetni, sem sagt hreinorkubílum.

Í frumvarpinu er m.a. einnig að finna bráðabirgðaákvæði sem varða fyrstu skráningu og bráðabirgðagreiðslu eftir gildistöku frumvarpsins.

Virðulegi forseti. Gert er ráð fyrir að þær lagabreytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu muni hafa jákvæð áhrif á tekjur ríkissjóðs og er áætlað að tekjuauki af breyttu tekjuöflunarkerfi verði um 7 milljarðar kr. á árinu 2025. Tekjur af ökutækjum og eldsneyti verða þá um 1,5% af vergri landsframleiðslu árið 2025. Hliðaráhrif á virðisaukaskatt eru áætluð neikvæð um 2,7 milljarða kr. árið 2025 og koma til lækkunar á tekjum ríkissjóðs, þar sem ekki er virðisaukaskattur á kílómetragjaldi. Auk þess eru hliðaráhrif á tekjuskatt og veiðigjald sem koma inn með tímatöf árin þar á eftir, sem við getum farið nánar yfir.

Gert er ráð fyrir að samþykkt frumvarpsins feli í sér aukinn kostnað hjá Skattinum vegna álagningar og eftirlits, upplýsingagjafar og þjónustu við gjaldendur, rekstur og viðhald á tölvukerfi o.fl. Gert er ráð fyrir að viðbótarkostnaður hjá Skattinum vegna innleiðingar á nýju kílómetragjaldi á öll ökutæki á árinu 2025 nemi 135 millj. kr.

Í frumvarpinu er að finna ítarlegt mat á ýmsum öðrum áhrifum, m.a. á samfélagslegum áhrifum og áhrif eftir tekjuhópum á búsetu. Skattlagning sem byggist nánast eingöngu á eyðslu bifreiða, líkt og í núverandi kerfi, leiðir til þess að þeir sem aka á eldri bifreiðum, sem menga að meðaltali meira en aðrar bifreiðar, greiða almennt meira fyrir veganotkun en eigendur nýrra og sparneytnari bifreiða. Breytt tekjuöflunarkerfi byggist hins vegar að stórum hluta á raunverulegri veganotkun, óháð gerð bifreiðar. Það stuðlar að jafnari skattlagningu bifreiða eftir tekjuhópum en almennt eiga einstaklingar í lægri tekjuhópum eldri bifreiðar og þar af leiðandi meira mengandi bifreiðar en einstaklingar í efri tekjuhópum, sbr. mynd nr. 6 í frumvarpinu. Þar að auki er hlutdeild rafmagns- og tengiltvinnbifreiða meiri hjá einstaklingum í efri tekjuhópum. Af þessum upplýsingum má draga þá ályktun að áhrif skattlagningar á notkun bifreiða verði meiri hjá tekjuhærri hópum en tekjulægri hópum ef breytt tekjuöflunarkerfi verður samþykkt.

Áhrif kerfisbreytinganna eru þannig í samræmi við markmið stjórnvalda um réttlát umskipti sem felur það í sér að allar aðgerðir stjórnvalda gegn loftslagsvánni tryggi um leið jöfnuð og réttlæti. Í því sambandi ber jafnframt að hafa í huga að mengun verður áfram skattlögð með hækkuðu kolefnisgjaldi og verða eyðslufrekari bifreiðar áfram skattlagðar meira en sparneytnar bifreiðar.

Gera má ráð fyrir að skattlagning á notkun ökutækja hafi mismunandi áhrif á kynin. Ferðavenjukannanir og kannanir á ferðum innan vinnusóknarsvæða hafa sýnt fram á kynbundinn mun á ferðavenjum, en þær sýna að konur nota einkabílinn ekki síður en karlar. Umtalsverður kynjamunur er þó á eignarhaldi ökutækja þar sem karlar eru skráðir eigendur tæplega ? fólks- og sendibifreiða. Þá eyða bifreiðar í eigu kvenna almennt minna eldsneyti en bifreiðar í eigu karla, sbr. mynd nr. 8. Af þeim sökum má gera ráð fyrir að áhrif skattlagningar á notkun bifreiða í eigu kvenna verði meiri en á notkun bifreiða í eigu karla ef breytt tekjuöflunarkerfi verður samþykkt. Þó skal tekið fram að konur og karlar munu greiða sama gjald fyrir veganotkun bifreiða en konur munu að jafnaði greiða lægra kolefnisgjald fyrir mengun þar sem bifreiðar í eigu þeirra eru almennt sparneytnari.

Áhrif af kerfisbreytingunni koma einnig til með að vera ólík eftir landshlutum enda samsetning ökutækjaflotans ólík eftir búsetu. Til að mynda eru hlutfallslega flestar rafmagns- og tengiltvinnbifreiðar á höfuðborgarsvæðinu og nærliggjandi sveitarfélögum en annars staðar á landinu. Þá eru bifreiðar á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum sparneytnari en annars staðar á landinu líkt og sjá má á mynd nr. 10. í frumvarpinu. Þar af leiðandi má draga þá ályktun að áhrif skattlagningar á notkun bifreiða á þeim svæðum hækki umfram skattlagningu á öðrum svæðum landsins verði breytt tekjuöflunarkerfi samþykkt. Á landsbyggðinni eru tekjulægri á eldri bílum sem eyða meira og lækkar þar af leiðandi skattlagningin á þá.

Breytingar frumvarpsins eru margþættar og eru áhrifin af þeim því fjölbreytt. Bein áhrif af afnámi eldsneytisgjalda ásamt hækkun kolefnisgjalds munu birtast einstaklingum og fyrirtækjum í lægra verði við kaup á eldsneyti, sem sagt á dælunni. Að teknu tilliti til vægis bensíns og olíu í vísitölu neysluverðs má ætla að áhrif þeirra breytinga feli í sér lækkun á vísitölunni um 1%.

Í frumvarpinu er í bráðabirgðaákvæði kveðið á um hvernig uppgjöri á óseldum tollafgreiddum birgðum af eldsneyti hjá gjaldskyldum aðilum skuli háttað um áramót. Ákvæðið tekur á því að nýtt kílómetragjald taki gildi um áramót og eldsneytisgjöld falli brott sama dag. Því má gera ráð fyrir því að ekki verði töf á því að þær skattbreytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu birtist í verði eldsneytislítra. Hinn 1. janúar 2024 var tekið upp sams konar kílómetragjald fyrir hreinorku- og tengiltvinnbíla, þ.e. fólksbíla og sendibíla, og tekið er nú upp í frumvarpi þessu fyrir öll ökutæki. Hagstofa Íslands mat þá að það gjald skyldi ekki vera tekið inn í útreikning í vísitölu neysluverðs. Hagstofa Íslands er nú með til skoðunar hvort og hvernig kílómetragjald á öll ökutæki verður meðhöndlað í vísitölu neysluverðs. Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur ekki forsendur til að meta hver niðurstaða Hagstofu Íslands verður.

Virðulegi forseti. Loks ber að nefna að á upplýsinga- og kynningarvefsíðunni ,Vegir okkar allra er að finna gagnlegar upplýsingar um kerfisbreytingarnar fyrir almenning. Á vefsíðunni má finna ítarlegar upplýsingar um forsendur og nauðsyn breyttrar tekjuöflunar ríkissjóðs, auk þess sem finna má spurningar og svör undir liðnum ,,Spurt og svarað“. Ánægjulegt er að geta þess að vefsíðan var tilnefnd til íslensku vefverðlaunanna sem markaðsvefur ársins á árunum 2023 og 2024.

Virðulegi forseti. Að þessu sögðu legg ég til að frumvarpi þessu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umræðu að lokinni þessari umræðu.