155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

kílómetragjald á ökutæki.

301. mál
[11:36]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Eins og hæstv. ráðherra benti á er hér um margþættar breytingar að ræða sem flestar hafa fengið neikvæðar umsagnir í samráðsferlinu, enda margt og mikið sem verið er að breyta í umfangsmiklu frumvarpi á svo skömmum tíma. Það er stór spurning hvort hægt verður að fara nógu vel í gegnum það allt á þeim stutta tíma sem eftir er af þessu þingi. Eitt af því sem hefur verið gagnrýnt er það hvernig sama gjald er lagt á öll ökutæki, allt frá léttustu ökutækjum upp í stóra jeppa sem eru kannski 3,5 tonn. Þar má t.d. nefna að af bifhjólum, sem einungis hafa helming af fjölda hjóla undir sér og eru þar að auki mun léttari, greiða menn sama gjald og af Land Cruiser jeppa sem er 3,499 tonn. Þar að auki eru bifhjól oftast bara notuð yfir sumarmánuðina því að ekki er öruggt að keyra á vegum landsins á veturna á slíkum hjólum nema kannski á negldum dekkjum, en ég hef ekki séð það enn þá. Eins er fjallað um það hvaða áhrif þetta hefur á fólk á mismunandi stigum efnahagsins. Lægri tekjuhópar, jú, þeir eru kannski á eldri bílum en þeir keyra líka á smærri bílum, léttari bílum og oft sparneytnari, alla vega léttari bílum sem hafa minni áhrif, en þeir sem eru í hæstu tekjutíundunum eru jafnvel með stóru jeppana fyrir utan hjá sér. Hefur verið gerð athugun út frá þessu? Og af hverju erum við ekki að gera eitthvað annað fyrir bifhjólin?