155. löggjafarþing — 16. fundur,  24. okt. 2024.

kílómetragjald á ökutæki.

301. mál
[11:38]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Fyrst vil ég nú geta þess að það voru ekki allar umsagnirnar neikvæðar. Þær voru hins vegar mjög margar frá bifhjólaeigendum, enda var þá í samráðsgáttinni verið að tala um að sama gjald yrði greitt af bifhjólum. Í frumvarpinu hefur verið hlustað á þau sjónarmið og sú tala hefur verið lækkuð niður í 4 kr., eða u.þ.b. 60% af því verði sem ellegar er greitt, sem er sambærilegt, þannig að því hefur verið svarað. Þar sem gjaldtakan snýst um notkun á vegum þá byggir hún fyrst og fremst á því sliti sem notkunin hefur í för með sér. Það er þannig, og þetta eru alþjóðlega viðurkennd vísindi sem vinir okkar á Nýja-Sjálandi hafa pælt mikið í — þeir eru með gríðarlega flókna gjaldskrá en þeir eru með sömu gjaldskrá fyrir alla bíla upp að 3,5 tonnum vegna þess að þeir bílar eru ekki markvert að slíta meiru. Ef við færum í þessa átt, að velta þessu fyrir okkur, ef við héldum að þangað væri eitthvað að sækja, þá myndi gjald á rafmagnsbíla vera hærra en gjald á bíla sem gengju fyrir bensíni og dísil. Þetta er einfaldara og skýrara og það er hægt að rökstyðja þetta fullkomlega út frá því sliti sem bílar valda á vegunum.

Varðandi greiningar á áhrifum á mismunandi hópa þá hefur sú greining verið gerð eins ítarlega og hægt er. Ég veit að ráðuneytið mun koma fyrir efnahags- og viðskiptanefnd í dag. Við höfum átt þess kost að upplýsa alla þingflokkana í aðdraganda þessa um hvernig þetta er. Þar eru gríðarlega góðar upplýsingar sem erfitt er að fara í hér á tvisvar sinnum tveimur mínútum, eða einni sinnum einni, til útskýringar. En ég get fullyrt að þar eru svör við öllum þeim spurningum hv. þingmanns og efasemdir um að þetta gengi upp. Þær liggja þar fyrir og birtast auðvitað í frumvarpinu en það er líka gott að fá yfirferð frá sérfræðingum og skýringarmyndir.